Leita í fréttum mbl.is

Tímamót í Hafnarfirði - Græn framtíð fyrir okkur öll

solistraumi.org

Það munar ekki miklu, aðeins 50 atkvæðum og allt getur gerst. En þessar fyrstu tölur gefa von um bjarta tíma fyrir hafnfirðinga. Alcan sem kostaði öllu til í áróðri sínum með fullar hendur fjár hefur ekki tekist annað en að skipta íbúum Hafnarfjarðar í tvær jafn stórar fylkingar. Umhverfisverndarsinnar með Sól í Straumi í fararbroddi hafa nú þegar unnið sigur. Er hægt að stækka jafn umdeilt álver jafnvel þó að 50 atkvæðin falli á hinn veginn? Til hamingju hafnfirðingar þið hafið markað tímamót. Glæsileg framtíð fyrir Hafnarfjörð með hreinna lofti og betri efnahag fyrir okkur öll.


mbl.is Fylkingar nánast jafnar samkvæmt fyrstu tölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stórkostlegt.  Nú getur Ísland einbeitt sér að því að auka ferðamannastrauminn til landsins til að vega upp á móti töpuðum iðnaðartekjum .

Reyndar mun tvöföldun á ferðamannafjölda menga meira en 3 álver til samans en rök skipta litlu máli þegar kemur að umræðu um framtíð landsins.

Kalli (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 00:21

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Kæra Hega Vala, bæjarstjórinn í Hafnarfirði er sérstaklega hugaður.) Þetta fór sem betur fer vel og maður hefur enn trú á lýðræðinu. Hinsvegar er það umhugsunarefni þegar auðhringir á borð við Alcan beita sér í kosningabaráttu. Ég býð ekki í það þegar Alcoa fer af stað, þá fyrst verður þetta óhugnanlegt.

Og Kalli (án eftirnafns), ætlar þú að banna ferðamönnum að koma til landsins? Þessar tölur þínar um 3 álver eru í besta falli slappur brandari en ég skil vel að sumir kunni ekki að taka tapi. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 1.4.2007 kl. 07:28

3 identicon

 

Hlynur minn, Tvöföldun ferðamanna til landsins myndi menga meira en 3 álver.

Það er ekki slappur brandari, Það er staðreynd.

Og þá er einungis verið að tala um flugfarið til og frá íslandi.  Næsta skref eftir stóriðjustopp hlýtur þá að vera ferðamannastopp er það ekki?  Eða er sú mengun á einhvern hátt betri?

Kalli (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband