Leita í fréttum mbl.is

Fjórir karlar að spjalla saman í Vikulokunum

301237AMér finnst Hallgrímur Thorsteinsson ágætur útvarpsmaður. Sumar breytingar á hinum ljómandi þætti "Vikulokin" á Rás eitt sem hann hefur gert eru góðar, þátturinn byrjar til dæmis á yfirliti beint úr fréttum. Hinsvegar finnst mér Hallrígrímur ekki mjög fær í að velja sér viðmælendur. Í þættinum í dag eru fjórir karlar sem sitja saman og hlæja. Tveir fallnir þingmenn, Mörður Árna Samfó og Magnús Þór Frjálslyndi og svo er þarna einn frjálshyggjugaur, Ólafur Teitur sjálfstæðismaður. Geisp.

Það að Sharon Stone sé búin að fá sig fullsadda af karlmönnum kemur mér ekki á óvart, þeir eru margir ansi þreytandi, sjálfumglaðir og halda að þeir séu færastir í að stjórna öllu þó að þeir hafi enga hæfileika.


mbl.is Hefur meiri áhuga á konum en körlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Æ, ég gleymdi að kveikja. En ég er sammála með valið á viðmælendum frá því Hallgrímur tók við. Nú er bara valið í þáttinn stöðugt sama fólkið og maður er alltaf að hlusta á alls staðar annars staðar. Eins konar "viðurkenndir viðmælendur" úr stjórnmálageiranum og eitthvað sem fréttamönnum finnst vera "frægt fólk". Áður var miklu breiðari hópur valinn og já vægi kvenna meira. Það er kannski þess vegna sem ég gleymdi að kveikja!

María Kristjánsdóttir, 12.1.2008 kl. 12:02

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég datt aðeins út yfir þættinum í dag. Ég er samt mikill aðdáandi þáttanna til langs tíma og finnst Hallgrímur flinkur útvarpsmaður. Skemmtilegt hjá honum að byrja með innleggi úr útvarpi og tengja þáttinn tilteknum fréttum. Ég held að vandamálið í dag hafi verið að viðmælendurnir gátu ekki komið okkur á óvart.

Berglind Steinsdóttir, 12.1.2008 kl. 13:01

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hananú, er ekki nema Sóley Tómasdóttir, ritari VG, farin að skrifa í gegnum Hlyn Hallsson. Þetta er hvorki meira né minna en dásamleg sönnun fyrir því að svokölluð ,,ósjálfráð skrift" óumdeilanleg staðreynd, rétt eins og vatnið sem kemur úr krananum þegar skrúfað er frá. 

Jóhannes Ragnarsson, 12.1.2008 kl. 14:40

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

kvusslax! hvernig var annars skiptingin milli samkynhneygðra/gagnkynhneigðra, eða milli æsingamanna/rólyndismanna, eða milli kynþátta?

er ekki málið að stjórnandinn velur þáttakendur eftir því hvað hann telur þá hafa til málanna að leggja? skiptir hlutfall estrogens og testosterons þar einhverju máli?

Brjánn Guðjónsson, 12.1.2008 kl. 19:58

5 Smámynd: Pétur Þorleifsson

Það er líka hægt að velja þá í þáttinn sem eru á sama máli og maður sjálfur.  Mig minnir að í gamla daga hafi Páll Heiðar þó gjarnan valið menn á öndverðum meiði til að fara yfir fréttir vikunnar.

Pétur Þorleifsson , 12.1.2008 kl. 20:03

6 Smámynd: Pétur Þorleifsson

Ríkisstjórnin ku vera með 70 % fylgi. Skyldi það þýða að fjölmiðlar séu 70 % jákvæðir gagnvart henni í vali á viðmælendum ?

Pétur Þorleifsson , 12.1.2008 kl. 23:33

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hlynur ég dáist að þér fyrir það hugrekki að ganga í gegn um glerþakið hér á blogginu!

Ekki að því að þú sért að gera það í fyrsta skiptið, heldur bara vegna þessara þjáninga sem birtast í athugasemdum aðallega frá kynbræðrum þínum á blogginu þegar komið er inn á kynjaslagsíðu, og endurspegla ákveðið málstol eða mállost.

Edda Agnarsdóttir, 13.1.2008 kl. 00:42

8 Smámynd: Fríða Eyland

Frábær færsla! 

Gleðilegt nýtt ár 

Fríða Eyland, 13.1.2008 kl. 23:32

9 identicon

Góðan daginn allir. ég vildi bara láta ykkur vita að Jafnréttindafélag Íslands verður stofnað í næstu viku. Fyrsti fundurinn verður miðvikudagskvöldið 23. Janúar kl 20:00. Nánari upplýsingar eru á síðunni minni.

Ólafur Hannesson (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 18:14

10 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ég vona að sá dagur komi að við hættum að þurfa að telja. Mikilvægt er að það komi fjölbreyttur hópur í slíka spjallþætti og að margvísleg sjónarmið komi fram.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 15.1.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband