Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigðisráðherra í djúpum skít

Picture_006_optGuðlaugur Þór er í alvarlegum vandræðum. Hann þóttist rétta út "sáttahönd" sem var frekar blá og ansi seint á ferðinni. Og nú er hann að smiða einhverja neyðaráætlun í ráðuneytinu sínu sem verður auðvitað ekki neitt svar við ástandinu. Neyðaráætlanir eru meira hugsaðar fyrir faraldur, kóleru, berkla og þessháttar en ekki vegna þess að ráðherra vill ekki hækka lág laun fólks. En það er auðvitað neyð að hafa Sjálfstæðisflokkinn í heilbrigðisráðuneytinu með einkavæðingu efst á dagskránni.

140 skurðhjúkrunarfræðingar og geislafræðingar eru að fara heim í kvöld og koma ekki aftur. Það var aðeins of seint að ætla að fresta málunum fyrir Gulla. Hann var frekar lúpulegur í viðtali í fréttum útvarpsins í gær og gat ekki svarað neinu þó að fréttmaðurinn Arnar Páll hafi spurt hann ítrekað.
En hvernig væri bara að borga fólkinu mannsæmandi laun. Nei, það kemur auðvitað ekki til greina því þetta eru aðallega konur sem vinna þessi störf. Frekar bara að fresta málunum þar til alger upplausn blasir við og ástandið orðið grafalvarlegt. Þetta er fullkomin vanvirðing við starfsfólkið og á ekki að líðast.

Þráinn Bertelsson er með sennilegustu skýringuna á þessu tómlæti heilbrigðisráðherra, hægt að lesa það hér.

Hjúkrunarfræðingarnir og geislafræðingarnir á Landsspítalanum á hinsvegar heiður skilinn fyrir að láta ekki kúga sig.


mbl.is Geislafræðingar hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Já, heilbrigðisráðherra er í djúpum skít, en því miður eru margir sjúklingar það líka! Sorglegt er að aftur og aftur komast gjörsamlega óhæfir menn í ráðherraembættin.

Úrsúla Jünemann, 30.4.2008 kl. 11:48

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Oftast höfum við Íslendingar haft betri heilbrigðisráðherra en þennan sem nú situr. Óskandi er að hann verði ekki lengi í þessu embætti sem hann virðist ekki hafa neinar faglegar forsendur að valda.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 30.4.2008 kl. 11:55

3 Smámynd: haraldurhar

   Hlynur það er sérkennilegt orðbragðið þitt að heibrigðisráðherra sé í djúpum skít, ég ekki svo viss um að þessi   skipulagsbreiting sé af hinu góða.   Það er ekki alltaf hægt að hlaupa á eftir fólki eins og óþægum krökkum, einhversstaðar eru mörk

   Við höfum úr takmörkuðu fé moða, og auðvitað ber stjórnendum spítalanna að nýta það sem bezt.  Það er eins og starfsmenn Ríkisins geri sér ekki grein fyrir því að um verulega lífskjarskerðingu verður  hér á næstu misserum.

haraldurhar, 30.4.2008 kl. 17:31

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Lífskjaraskerðingin á enn og aftur að bitna á þeim sem hafa það skítt og græddu ekkert á þessu svokallaða góðæri. Um það snýst málið haraldurhar. En nú á loksins að hafa samráð við starfsfólkið um hlutina og betra hefði verið að gera það strax frá upphafi.

Sammála ykkur Úrsúla og Guðjón, Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 1.5.2008 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.