Leita í fréttum mbl.is

Ráðherrar á Íslandi og í Englandi eru rúnir trausti

Krataflokkurinn í Bretlandi fékk rassskell í kosningunum í gær og greinilegt að ríkisstjórnin er rúin trausti. Það hefur áhrif á sveitarstjórnarkosningarnar þar í landi. Gordon Brown tekur líka við ömurlegu búi frá heræsingamanninum og lýðskrumaranum Tony Blair. (Myndin er tekin af Guardian)

En ráðherrarnir hér á landi eru einnig rúnir trausti. Geir H. Haarde hefur fallið í áliti hjá þjóðinni samkvæmt Gallup könnun. Og Þorgerður "vinsæla" Gunnarsdóttir sagði í útvarpinu áðan að búast mætti við óvinsældum meðað tekið er á efnahagsvandanum. Hér er  ef til vill komin skýringin á því af hverju stjórnin tekur ekki á vandanum, hún er hrædd við að verða enn óvinsælli. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Árna Matt því það eru ekki margir eftir sem treysta honum, eða aðeins 8%! og samt segjast 37% ætla að kjósa flokkinn hans. 92% kjósneda treysta ekki manninum.

Góðu fréttirnar eru þær að Vinstri græn eru með byr í seglin enda með einu raunhæfu tillögurnar og lausnir á efnahagsvandanum og kynntu þær fyrir 2 mánuðum. Er ekki kominn tími til að Samfó hætti að vera næst sætasta stelpan á ballinu og segi upp þessum hrokagikk, Sjálfstæðisflokknum?


mbl.is Verkamannaflokkurinn tapaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skilnaður tryggði ekki nýtt hjónaband á traustum grunni, því síður stjórnarstopp í mánuði ef ætti að boða til kosninga. Getur formaður þinn ekki haldið sér í blakinu? kv úr borginni...gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Ég skil vel Gísli að þú viljir að Steingrímur sé sem mest í blaki því hann fór ekki sérstaklega mjúkum höndum um formanninn þinn í útvörpinu í morgun. Enda engin ástæða til. Ingibjörg Sólrún er ekki að standa sig vel og stjórnin öll er afleit. Sorglegt að sjá Samfó í sporum Framsóknar, Gísli.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 2.5.2008 kl. 12:24

3 Smámynd: SeeingRed

Ánægjulegt að sjá þessa uppsveiflu hjá VG.

SeeingRed, 3.5.2008 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband