Leita í fréttum mbl.is

Borgum umönnunarstéttum mannsæmandi laun

Hvað er málið í þessu landi? Af hverju þurfa kennarar, hjúkrunarfræðingar og nú ljósmæður alltaf að berjast fyrir því að fá smá hækkun á skammarlega lág laun? Á sama tíma eru einhverjir forstjórar og bankastjórar að skammta sjálfum sér stjarnfræðilega há laun, fyrir ekki neitt. Bera einhverja meinta ábyrgð en þegar þeir eru búnir að setja allt klabbið á hausinn eða svo gott sem þá semja þeir bara um "starfslok" og fá einhverjar hundruðir milljóna fyrir að drífa sig.

Þetta er náttúrulega rugl. Það er fyrir löngu kominn tími til að umönnunarstéttir (í flestum tilfellum þar sem konur eru í miklum meirihluta) fái almennileg laun. Ljósmæður bera raunverulega ábyrgð á lífi og velferð barna og fjölskyldna (en ekki innistæðulausum pappírum). Þær eiga að fá laun á við bankastjórana

Það að ítrekað þurfi starfsfólk að hóta uppsögnum eða fara í verkfall til að knýja á um hærri laun er smánarblettur á okkar samfélagi. Ríkisstjórnin var með fagurgala um að leiðrétta laun kvennastétta og nú er komið að því að efna loforðin en... það var ekkert á bakvið þessi loforð Samfylkingarinnar og íhalds frekar en fyrri daginn. Bara plat og lygi.

Myndin er fengin af wimmer-hebamme.at


mbl.is Heimaþjónusta en engin mæðravernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Þær stéttir sem verst standa er haldið meira eða minna niðri af stóru verkalýðsfélögunum.

Ef stétt eins og Ljósmæður fá einhverja alvöru úrbætur í sínum launamálum þá kemur Ögmundur vinur þinn alveg brjálaður og setur fram kröfur sem munu gera launa hækkanir Ljósmæðra að engu og þær halda þá áfram að vera í lægsta launaflokknum. 

Fannar frá Rifi, 8.8.2008 kl. 10:41

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Þetta er ótrúlegt bull í þér kæri Fannar frá Rifi. Ögmundur er einmitt að berjast fyrir láglaunastéttirnar.

En ég kannast svo sem við þessar söguskýringar frá atvinnurekendum en þær eru í besta falli broslegar og í versta falli hræsni.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 8.8.2008 kl. 11:18

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

Þá ætti Ögmundur, fyrir hönd eins stærsta verkalýðssamtaka á Íslandi, að geta lofað Ljósmæðrum að aðrar stéttir sem eru í betri stöðu en þær, muni ekki gera sömu kröfu um aukin laun. Ef Ljósmæður fá laun sín bæt verulega og önnur verkalýðsfélög halda ekki að sér höndum, heldur krefjast þess að fá sömu hækkun, myndi launskriðið eyða öllum áviningi sem Ljósmæður hefðu náð.

Samkomulag milli Ljósmæðra og Ríkissins mun standa og falla með Verkalýðsfélögunum. Annað hvort hjálpa allir Ljósmæðrum, eða þá að þær muni áfram vera verst borgaðar af háskólastéttunum sem vinna eitt mikilvægasta starfið með tilheyrandi flótta úr stéttinni. 

Fannar frá Rifi, 8.8.2008 kl. 11:59

4 identicon

Ljósmæður og kennarar mættu alveg fara taka presta sér til fyrirmyndar, þá er ég að tala um launinn þeirra. Það er furðulegt að prestur sé með frá 550 - 800 þúsund á mánuði á meðan kennarar og ljósmæður eru ekki með mannsæmandi laun. Hvernig stendur á því að ein stétt manna er tekin svona fram yfir aðrar? Hvernig stendur á því að prestar sem eru titlaðir embættismenn, skuli vera á hærri launum heldur en þingmenn? Svo er ljósmæðrum með sex ára nám á bakinu þakkað með lágmarks framfærslu í laun. Þetta er í mínum huga, skandall.

Valsól (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 13:15

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heyr heyr

Hólmdís Hjartardóttir, 8.8.2008 kl. 14:06

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er alveg dæmalaust þegar eignirnar fara að hjala um það sem þær halda að séu verkalýðsmál.

Jóhannes Ragnarsson, 8.8.2008 kl. 17:01

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta eru mikilvægar stéttir og vinna vel og eina að fá mannsæmani laun.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.8.2008 kl. 19:57

8 identicon

Ágætt mál að bera saman ljósmæður og bankastjóra Því bankarnir skapa engin verðmæti, þeir eru aðeins milliliðir. Þess vegna er rökrétt að laun bankastjóra fylgdu eingöngu lands meðaltali. Bankastjórar á ofurlaunum eru þar af leiðandi ekkert annað en þjóðfélags afætur, því þeir skapa ekki verðmæti sem samsvara þeim peningum sem þeir fá í vasann. Það eru augljóslega aðrir sem vinna fyrir þeim. Sjálfur gæti ég ekki verið stoltur í slíkum sporum. Ljósmæður geta verið stoltar af því sem þær leggja til samfélagsins.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 20:49

9 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hlynur minn, við vitum báðir og landsmenn flestir að stefnuskrá Samfylkingar var sett í tætarann á kosninganótt.

Víðir Benediktsson, 9.8.2008 kl. 23:44

10 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Hvaða stefnuskrá? Ég man ekki til þess að Samfylkingin hafi haft stefnuskrá, aðra en að koma Sjálfstæðisflokknum frá og sjá svo til. Sú stefnuskrá er jú fyrir bí...

Ingvar Valgeirsson, 10.8.2008 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband