Leita í fréttum mbl.is

Ferðamannaparadísin

Akureyri

Þessa grein skrifaði ég fyrir umræðuvettvanginn pollurinn.net og þar er hægt að koma með viðbrögð og gera athugasemdir við greinar.

Ferðamannaparadísin Akureyri, Eyjafjörður, Norðurland

Í síðustu viku var tilkynnt að IcelandExpress hefði ákveðið að hefja beint flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar næsta sumar. Þetta er afar ánægjuleg þróun og verður örugglega til þess að fleiri ferðamenn koma á Austur- og Norðurland beint, auk þess sem við íbúar á svæðinu eigum auðveldara og með að komast til Evrópu fyrir minni pening. Það væri hinsvegar óskandi að IcelandExpress hefði úthald til að halda áfram beinu flugi einnig yfir vetrartímann til Kaupmannahafnar frá Akureyri. Það tekur tíma að vinna slíku flugi sess þó að Akureyringar og Norðlendingar hafi tekið fljótt og vel við sér, þá þarf lengri tíma til að kynna flugið erlendis.

En vonandi hefur IcelandExpress þolinmæði og það áræði sem þarf til að fylgja þessu flugi eftir. Samgönguyfirvöld með ráðherra Sjálfstæðisflokksins, Sturlu Böðvarsson í farabroddi hafa hinsvegar dregið lappirnar í því að efla flugstöðvarnar á Egilsstöðum og Akureyri til að þessir vellir geti talist fullgildir millilandaflugvellir. Sturla hefur sagt að "300.000 manna þjóð hafi bara efni á einum millilandaflugvelli"  sem eru ótrúleg ummæli frá sjálfum samgönguráðherra landsins. Þessu viðhorfi yfirvalda þarf að breyta og vonandi skapast þverpólitískur vilji til að laga það sem laga þarf svo að getum boðið uppá þrjá fullgilda millilandaflugvelli. Ef ekki strax þá í kosningunum í vor. Akureyri, Eyjafjörður og Norðurland hefur nefninlega uppá svo margt að bjóða á sviði ferðamennsku og það allan ársins hring. Það eru til dæmis ekki margir staðir í Evrópu sem bjóða uppá flugvöll í 20 mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegu skíðasvæði.

Ásókn ferðamanna í óhefðbundnar ferðir utan álagstíma á eftir að aukast svo og þeirra sem koma til að leita að norðurljósum, kyrrð og myrkri sem er eitthvað sem margir vilja upplifa. Uppbygging ferðaþjónustu á Húsavík með hvalaskoðun og Hvalasafn í öndvegi hefur verið stórkostleg. Jarðböðin við Mývatn eru einstök á sínu sviði. Eyjafjörðurinn, Grímsey og Hrísey eru einnig perlur og það eru margir sem vilja koma og dvelja í alvöru sjávarþorpi eða á sveitabæ í faðmi fjalla. Veitingastaðir á heimsmælikvarða sem bjóða uppá úrvalsrétti úr hráefni úr heimabyggð eins og Friðrik V, Halastjarnan og Karólína eru staðir sem við getum státað af. Við höfum uppá svo margt að bjóða og sumt á enn eftir að uppgötva. Við eigum því framtíðina fyrir okkur á þessu sviði og möguleikarnir eru óþrjótandi. Það þarf bara smá velvilja, áræði og þolinmæði og þá getum við gert kratftaverk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Baldursson

Heyrðu við ætlum að vera með útgáfuhátíð vegna bókarinnar 2006 í grófum dráttum á föstudaginn. Þar sem þú ert ein af söguhetjum bókarinnar, bindislaus, þá væri gaman ef þú gætir komist. Sendu okkur póst á spottbok@gmail.com og við sendum þér nánari upplýsingar.

Halldór Baldursson, 3.12.2006 kl. 23:53

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sæll Halldór,

ég væri alveg til í að mæta, sérstaklega ef að Bússi og pabbi hans koma yfir hafið. En ég verð hér á Akureyri á föstudaginn. Er ekki bara hægt að hafa aðra útgáfuhátíð hér fyrir norðan? Þá mæti ég með bindi. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 4.12.2006 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.