Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju međ nýja ríkisstjórn!

Ţessi nýja stjórn er merkileg fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi tekur hún viđ skelfilegu búi sem 18 ára stjórnaseta Sjálfstćđisflokksins skilar af sér, gjaldţrota ţjóđarbú međ svimandi milljarđa skuldum, atvinnuleysi sem stefnir í 13% og verđbólgu um 18%, himinháum vöxtum og svo mćtti lengi telja. Í öđru lagi er ţetta fyrsta stjórnin ţar sem ráđherrar eru jafn  margir konur og karlar og í ţriđja lagi er í fyrsta skipti í sögu landsins kona forsćtisráđherra. Ţađ var fyrir löngu kominn tími til. Í fjórđa lagi eru tveir ráđherrar utanţings og í fimmta lagi er ţetta í fyrsta skipti sem Vinstri grćn setjast í ríkisstjórn. Ţađ var einnig löngu tímabćrt.

Verkefnin eru risavaxin er ađgerđaráćtlunin lofar góđu. Aumingja íhaldiđ hrökklađist frá völdum í búsáhaldabyltingunni. Og nú fáum viđ ađ kjósa ţann 25. apríl. Til hamingju međ ţađ!


mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk Björn. Nú verđa verkin látin tala í stađ ţess ađ gera ekki neitt:)

Hlynur Hallsson, 2.2.2009 kl. 09:12

2 identicon

Mér sýnist orđalagiđ á ţessari ađgerđaráćtlum vera skýrt og afdráttarlaust. Auđvitađ má búast viđ ađ ţessi stjórn verđi umdeild, enda hefur líklega engin stjórn séđ fram á jafn erfitt starf og ţessi sem nú tekur viđ. Viđ verđum bara ađ vona ţađ besta og standa saman.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráđ) 2.2.2009 kl. 09:21

3 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Í sjötta lagi leiđir ríkisstjórnina fyrsti forsćtisráđherrann í heiminum sem er opinberlega samkynhneigđur.

Ég hef hinsvegar fyrirvara á kynjahlutföllum hjá vinstri-grćnum sem láta stundum međ jafnréttiđ eins og öfgatrú. Ţrátt fyrir ađ tvćr konur séu vissulega jafn margar og tveir karlar ađ hausatölu, ţá fara karlarnir međ samtals fjögur embćtti en konur ađeins tvö eđa helmingi fćrri. Ég er ekki ađ setja út á ţađ sérstaklega, en hef samt dálitlar áhyggjur af ţví ađ SJS sé ađ fćrast helst til mikiđ í fang ađ taka ađ sér ţrjú veigamikil embćtti á sama tíma auk ţess ađ vera formađur síns flokks. Svo dćmi sé tekiđ ţá hafa fjármálaráđherrar undanfarinna ríkissstjórna veriđ í a.m.k. hálfu starfi viđ ţađ embćtti eitt og sér.*

* Ţ.e.a.s. hálft starf = fullt starf fyrir hálfvita.

Guđmundur Ásgeirsson, 2.2.2009 kl. 11:39

4 identicon

...ţađ mćtti fylgja međ ađ ţessi 18 ára stjórnarseta var međ ţátttöku Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Ţorgeir Ragnarsson (IP-tala skráđ) 2.2.2009 kl. 12:11

5 Smámynd: Lilja Guđrún Ţorvaldsdóttir

Til hamingju međ ţessi merku tímamót í sögu Vinstri grćnna og í stjórnmálasögu landsins. - Nú munu verkin verđa látin tala. -

Lilja Guđrún Ţorvaldsdóttir, 2.2.2009 kl. 12:15

6 Smámynd: Kristján Logason

eftir blót og bölvađ strit        
bljúgur leggst á bedda
Vinstri grćn međ verk og vit
víst munu öllu redda

Kristján Logason, 2.2.2009 kl. 14:04

7 Smámynd: Karl Tómasson

Sjáumst nćstu helgi, ţokkalega hressir.

Bestu kveđjur frá K. Tomm úr Mosó.

P.s. bandiđ verđur svakalegt.

Karl Tómasson, 2.2.2009 kl. 22:54

8 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Já Hlynur ţađ verđur ofsa mikiđ ađ gera á 80 dögum. Hvađ gerist svo eftir 25 apríl? Hverjir taka viđ? Ég veit ţađ eitt ađ nái gömlu klíkurnar völdum aftur ţá mun ég og mín familía íhuga brottflutning af landinu.

Arinbjörn Kúld, 2.2.2009 kl. 23:06

9 Smámynd: Hlynur Hallsson

Gömlu klíkurnar mega ekki ná völdum aftur, Arinbjörn. Viđ ţurfum grundvallabreytingar til ađ losna viđ spillinguna, einkavinavćđinguna og sukkiđ. Nú er tćkifćri til ađ breyta. Kosningarnar 25. apríl verđa sennilega ţćr mikilvćgustu hingađ til!

Ps. hlakka til nćstu helgar Kalli. 10 ára afmćli međ almennilegu bandi!

Bestu baráttukveđjur,

Hlynur Hallsson, 3.2.2009 kl. 08:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síđur

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband