Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2010

"... og tilbiđur guđ sinn sem deyr" opnar í Verksmiđjunni á Djúpavík

djupavik.jpg

Áfram međ smjörlíkiđ!

... og tilbiđur guđ sinn sem deyr.

 

Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf Halldórsdóttir

 

Síldarverksmiđjan Djúpavík

524 Árneshreppi

 

17.07. - 29.08. 2010

Opnun laugardaginn 17. júlí kl. 14

 

afram

Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf vinna áfram saman ađ ţríleiknum Áfram međ smjörlíkiđ! sem fer fram í Reykjavík, á Djúpavík, og í Berlín í sumar og haust. Ţetta er í fyrsta sinn sem ţau samvinna sýningaröđ en ţau eiga ađ baki víđtćka reynslu af sýningarhaldi međ öđrum og ein og sér. Yfirskriftin Áfram međ smjörlíkiđ! slćr taktinn og gefur fyrirheit um viđfangsefni listamannanna. Fyrsta sýningin í röđinni var í Listasafni ASÍ međ undirtitlinum Innantóm slagorđ og fékk hún afar góđar viđtökur. Nú er komiđ ađ Verksmiđjunni á Djúpavík. “... og tilbiđur guđ sinn sem deyr” er undirtitill sýningarinnar en ţar verđa rýmisbundnar innsetningar í fyrirrúmi. Sýningin opnar laugardaginn 17. júlí 2010 kl. 14 og allir eru velkomnir. Sýningin stendur til 28. ágúst 2010.

Ţriđja sýningin opnar svo 3. september 2010 í 111 – a space for contemporary art í Berlín. Undirtitill hennar er Byltingin er rétt ađ byrja og á ţeim nótum endar síđasti hluti rađarinnar.

Verk Hlyns og Jónu eru allt í senn einföld, fjölbreytt og hugmyndaauđug. Ţau vinna međ marga ólíka miđla – Hlynur hefur fengist viđ ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar, Jóna hefur unniđ međ ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar. Verkin draga dám af ţví hvađa miđill verđur fyrir valinu í hvert sinn en ţátttaka áhorfandans er oft mikilvćg.

Í verkum beggja er ađ finna margbrotna en einfalda tjáningu. Verkin virđast á einhvern hátt hrein og bein og eiga greiđa leiđ inn ađ hjarta- og heilarótum. Sum verkanna eru lćvís, önnur kröftug, og mörg bera slagyrđingalegan brag á sér. Einfaldleikinn talar beint til manns og virđist fela í sér einhverja nánd, kannski falska (hver veit?)
 

Hlynur Hallsson (f. 1968) er menntađur viđ Myndlistarskólann á Akureyri, Myndlista – og handíđaskóla Íslands sem og viđ listaháskóla í Hannover, Hamborg og Düsseldorf í Ţýskalandi. Hann hefur veriđ gestakennari viđ Myndlistarskólann á Akureyri. Hann hefur hlotiđ ýmsa styrki og viđurkenningar fyrir verk sín.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir (f. 1978) er menntuđ viđ Myndlistarskólann á Akureyri, var viđ nám í Finnlandi og lauk MFA-gráđu frá Glasgow School of Art í Skotlandi. Hún hefur veriđ safnstjóri hjá VeggVerk og Gallerí Ráđhús og hefur líkt og Hlynur hlotiđ ýmsar viđurkenningar og styrki fyrir verk sín.

Sjá nánar á www.hallsson.de og www.jonahlif.com

 

Á ţessu ári er haldiđ upp á 75 ára afmćli Verksmiđjunnar og Hótel Djúpavík á 25 ára afmćli. 

Listrćnir viđburđir í Síldarverksmiđjunni á Djúpavík hafa fariđ fram frá árinu 1990. Leikverk hafa veriđ sett upp, haldnir tónleikar og listsýningar, auk ţess sem haldin hafa veriđ árleg stórmót í skák í samvinnu viđ Hrókinn.  Fastasýning í vélasal verksmiđjunnar er Sögusýning Djúpavíkur sem segir sögu stađarins í máli og myndum.  

Ţessar vikur stendur yfir sýning sem heitir Pictures and their sounds eftir Claus Sterneck og ennfremur er í bígerđ vinna viđ Innsetningu eftir tvo unga listamenn frá Bandaríkjunum sem mun verđa gestum til sýnis síđustu vikur

sumarsins 2010.

Sjá nánar á www.djupavik.is

 

Nánari upplýsingar veita:

Hlynur Hallsson 6594744

Jóna Hlíf Halldórsdóttir 6630545

Eva Sigurbjörnsdóttir, Hótel Djúpavík 4514037, 8472819


Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síđur

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband