Leita í fréttum mbl.is

Rugl í álliðinu

Hvaða della er að taka skóflustungu að einhverri álbræðslu sem aldrei á að rísa? Er ekki orðið löngu ljóst að það er hægt að selja orkuna til fyrirtækja sem skapa meiri arð, fleiri störf og menga mun minna? Ætti bæjarstjórinn í Reykjanesbæ ekki að fara frekar að rukka fyrir húsin sem hann "seldi" vinum sínum á Vellinum í staðinn fyrir að grafa holur?

Svör:

1. Íhaldsdella

2. Jú

3. Nákvæmlega


mbl.is Framkvæmdir við álver í Helguvík að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfurðuleg samlíking hjá Bandaríkjastjórn

guantanamo

Samlíkingin: Nürnbergréttarhöldin og réttarhöldin vegna hryðjuverkanna 11. september er meira en lítið einkennileg. Árásin á Tvíburaturnana er þannig óbeint sett á sama stað og helför nasista gegn gyðingum og öllum andstæðingum nasista, þar sem sex milljónir voru drepnar á viðbjóðslegan hátt.

Í plagginu sem sent var til bandarískra sendiráða segir, að dauðarefsing fyrir gróf brot á lögum um hernað sé viðurkennd á alþjóðavettvangi.

Þetta er bull frá Pentagon sem dugar ef til vill í Fox fréttum í BNA en allir aðrir vita að er lygi.

Þó er umfangi þessara glæpa ekki líkt saman, en öll tvímæli tekin af um að Bandaríkjastjórn líti á Nürnbergréttarhöldin sem sögulegt fordæmi fyrir því að krefjast dauðadóms fyrir Guantanamoföngunum.!

Bandaríkjastjórn með sitt Pentagon og CIA upplýsir sig enn og aftur sem óhugnanlega hræsnara og glæpamenn. Réttast væri að draga George Bush fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag. Þar sleppur hann þó við dauðarefsingu.

Pentagon viðurkennir að beita pyntingum til að ná fram játningu í Guantanomo. Þessi sýndarréttarhöld sem nú eiga að fara fram yfir sex mönnum sem ef til vill voru eitthvað viðrinir árásirnar á tvíburaturnana eru út í hött. Hefndarþorsta Haukanna í BNA eru engin takmörk sett og þeir beita öllum aðferðum, glæpum, lygum, blekkingum og pyntingum.

Bandaríkjastjórn í hefndarhug svertir minningu fólksins sem lét lífið þann 11. september 2001 og einnig minningu sex milljóna gyðinga, homma, vinstrisinna og allra sem voru drepnir á valdatíma nasista

Nürnbergréttarhöldin voru stórgölluð og þessi svokölluðu "réttarhöld" yfir föngunum í Guantanamo eru enn verri. Þar gæti ef til vill samlíkingin átt við.

Meira á AmnestyUSA.org 


mbl.is Líkt við Nürnbergréttarhöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjötfarsi í Valhöll

452002ADario Fo hefði getað verið stoltur handritshöfundur að farsanum sem sýndur var í Valhöll í dag. Fló á skinni hér fyrir norðan hefði getað óttast samkeppni en sennilega verður farsinn í Valhöll bara sýndur einu sinni. Gísli Marteinn og Hanna Birna komust undan í gegnum kjallarann á Valhöllinni. Hinir hlupu fram hjá fréttamönnum og skelltu hurðum. Villi vinalausi sat einn eftir með tvo auða stóla sér til hægri- og vinstrihandar og var frekar vandræðalegur. Er búinn að axla ábyrgð með því að hrökklast frá völdum því Björn Ingi vildi ekki lengur vera memm. (Það heitir semsagt að "axlaábyrgð"). Búinn að að axla málið og yppir öxlum. Fundurinn átti að vera í Ráðhúsinu en það var skipt um leiksvið til að plata áhorfendur strax í upphafi. Blaðamannafundurinn átti að vera klukkan eitt en kjötfarsið var svo seigt að það þurfti að fresta öllu til klukkan 14:20 (þegar þau síðustu voru flúinn út um neyðarútganginn í kjallaranum, í kjallaranum...)

Svo átti bara að hleypa einum og einum eða sérvöldum fréttamönnum inn í einu. Smá stimpingar við starfsmenn Sjálfstæðisflokksins og svo fengu allir sem voru í beinni að fara inn í einu. Blaðamennirnir biðu fram á gangi á meðan. Og svo var engin frétt, bara gamlar endurteknar fréttir.

Geir H. Haarde er ekki viss um að hann styðji Villa eftir nokkra mánuði, ætlar bara að sjá til. Enginn sexmenninganna sá sér fært að mæta í Kastljósið um kvöldið og ekki heldur Villi (þarf að ráðfæra sig við sitt fólk).

Þetta er farsi sem tekur öllu öðru fram. Samt sorglegt að þetta er raunveruleikinn en ekki farsi eftir Dario Fo. Þetta er kjötfarsi.


mbl.is Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn rjúkandi rúst

getfile

Það er einkennilegt hvað Flokkurinn ætlar að draga á langinn skrípaleikinn í Borginni. Það stendur ekki steinn yfir steini lengur. Villi ætlar greinilega ekki að segja af sér, hann hefur að eigin mati ekkert á samviskunni, ekkert. Og sexmenningarnir styðja hann "á meðan hann er oddviti". Það er bullandi valdabarátta innan Sjálfstæðisflokksins og hann logar nú stafnanna á milli. Sökkvandi skip.

Það var vandræðalegt að horfa uppá Pétur Blöndal í Silfri Egils í dag. Dagur og Svandís voru hinsvegar afdráttarlaus og ætla að vinna saman og ekki hoppa uppí með óstjórntækum Flokki. Maður vorkennir næstum Geir H. Haarde að standa í þessu, eða "lenda í þessu" eins og hann gæti auðvitað orðað það.

Auðun Gíslason fer ýtarlega yfir þessi mál á blogginu sínu og hörðum sjálfstæðismönnum eins og Stefáni Fr. er ekki heldur sama.


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Röskva

m_24dc7ca401123c3c302ff49bc934e925 Það mátti vart tæpara standa! En Röskva, Samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands vann Vöku með 5 atkvæða mun. Til hamingju með það nemendur HÍ! Þetta sannar hið fornkveðna að hvert atkvæði skiptir máli.
mbl.is Röskva sigraði naumlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Occupation 101 sýnd í kvöld

101 Það er áhugaverð heimildarmynd sýnd í Alþjóðahúsinu í kvöld klukkan 20. Í texta um þessa margverðlaunuðu mynd segir:

" Occupation 101 kemur fram með greiningu á staðreyndum og leyndarmálum sem eru umvafin hinni langvinnu deilu um Ísrael og Palestínu. Myndin lýsir líka lífi fólks undir hersetu Ísraels, hlutverki Bandaríkjanna í baráttunni og stærstu hindrununum sem standa í vegi fyrir langvarandi friði. Rætur átakana eru útskýrðar út frá sjónarmiði friðarsinna, fréttamanna, trúarleiðtoga og fræðimanna í málefnum miðausturlanda og mannúðarmála."

Occupation 101 (90 min)
Þriðjudagurinn 5. Febrúar, klukkan 20:00
Alþjóðhúsið, Café Cultura, Hverfisgata 18
Aðgangur ókeypis! - Allir velkomnir!

Félagið Íslands-Palestína mun í vetur standa fyrir sýningum á  athyglisverðum heimildar- og bíómyndum  er hafa  með málefni Palestínu og Ísraels að gera. Sýningarnar verða fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Alþjóðahúsinu og er það hin margverðlauna heimildarmynd Occupation 101 sem er fyrst í sýningarröðinni.

Hér eru meiri upplýsingar um myndina: http://www.occupation101.org


mbl.is Landamæri Gasasvæðisins opnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steinn Kristjánsson opnar sýninguna "Hugrenningar" á Café Karólínu laugardaginn 2. febrúar 2008, klukkan 14

steinn


Steinn Kristjánsson

Hugrenningar

02.02.08 - 29.02.08


Velkomin á opnun laugardaginn 2. febrúar 2008, klukkan 14

Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---

Laugardaginn 2. febrúar 2008, klukkan 14 opnar Steinn Kristjánsson sýninguna "Hugrenningar", á Café Karólínu á Akureyri.

Steinn Kristjánsson útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2007. Hann stundar nú nám við kennaradeild Háskólans á Akureyri.  Hann segir um sýninguna á Café Karólínu:

"Umræðan í þjóðfélaginu fer fram á ólíkum stöðum. Mörgum sýnist sem hefðbundið kaffihúsaspjall sé á hröðu undanhaldi fyrir spjallrásum og bloggsíðum. Fólk er að eiga í orðaskiptum  á netinu sem það myndi ekki eiga undir fjögur augu.

Sýningin Hugrenningar er tilraun listamannsins til að færa umræðuna aftur inn á kaffihúsið undir formerkjum bloggsins. Hann setur ekki upp sýningu sem á að hanga vikum saman á staðnum. Heldur er það listamaðurinn sjálfur sem hangir á kaffihúsinu og gerir eitthvað nýtt og spennandi á hverjum degi. Í stað þess að blogga um eitthvað hengir hann upp renning, s.k. hugrenning. Á hann skrifar hann sínar hugrenningar um það sem honum liggur á hjarta hverju sinni, límir á hann teikningar, ljósmyndir og úrklippur. Öllum er heimilt að kommenta á renninginn. Í stuttu máli er þetta tilraun um mannleg samskipti. "

Nánari upplýsingar veitir Steinn í steinn52(hjá)visir.is og í síma 8490566

Sýningin á Café Karólínu stendur til 29. febrúar, 2008. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 2. febrúar, klukkan 14.

Sýning Brynhildar Kristinsdóttur á Karólínu Restaurant hefur verið framlengd til 29. febrúar 2008. Þann 1. mars opnar Jón Laxdal nýja sýningu á Karólínu Restaurant.

Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson


Vinstriflokkurinn í Þýskalandi er sigurvegari kosninganna

hessen

Vinstriflokknum, Die Linke, tókst að ná takmarki sínu og komst á þing á báðum sambandslöndunum, Hessen og Neðra-Saxlandi þar sem kosið var í gær. Þetta er þvert á skoðanakannanir sem bentu til þess að flokkurinn fengi ekki tilskilin 5% og það var því við ramman reip að draga. Árangurinn er sérstaklega glæsilegur í Neðra-Saxlandi þar sem þessi nýi flokkur fékk 7,1% og 11 þingmenn. Í Hessen fékk Die Linke 5,1% og mátti vart tæpara standa en það skilar 6 þingmönnum sem dugar til að fella íhaldsstjórnina í sambandslandinu.

Kristilegir demókratar undir stjórn Rolands Koch bíða afhroð í Hessen og tapa 12%. Hann byggði kosningabaráttu sína á útlendingahatri og það er gott að ekki er hægt að vinna kosningar á þeim ömurlega áróðri lengur. Það eru einnig góðar fréttir að Græningjar bæta aðeins við sig í Neðra-Saxlandi. Svo maður einbeiti sér að góðu fréttunum þá eru hægri öfgaflokkarnir langt frá því að komast að. Kratarnir vinna sigur í Hessen en tapa í Neðra-Saxlandi.

Það eru söguleg tíðindi að nýr flokkur komst á þessi tvö sambandsþing og skiptir miklu fyrir Vinstriflokkinn sem hér með er búinn að stimpla sig inn, einnig í vesturhluta Þýskalands. Áfram svona!

ndsBerliner Zeitung: Es geht nach Links

Der Spiegel: Úrslitin 


mbl.is Áfall fyrir Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju mótmæla íslensk stjórnvöld ekki ofbeldi á íbúum Palestínu?

450013

Framganga Ísraelsstjórnar hlýtur að ganga fram af öllum siðmenntuðum mönnum. Undir því yfirskini að verið sé að stöðva hryðjuverkaárásir HAMAS-liða á að svelta heila þjóð. Þetta er ömurlegt og íslensk stjórnvöld sem sækjast eftir sæti í öryggisráði SÞ ættu að koma fram opinberum mótmælum á þessu framferði Ísraelsstjórnar. Í beinu framhaldi bendi ég á fund á laugardaginn hér á Akureyri:

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi standa fyrir fundi UM PALESTÍNUDEILUNA í Gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti (Akureyrarakademíunni) laugardaginn 26. janúar kl 14:00

Ísrael hefur nú skrúfað fyrir rafmagnið á Gasa. Palestína hefur á 60 árum orðið að tilraunagarði í þjóðarrétti og þjóðarórétti, friðarpólitík stórvelda, heimsvaldastefnu, aðskilnaðarstefnu, þjóðfrelsisbaráttu með grjótkasti gegn skriðdrekum (intifada), sveltistefnu, rasisma, ríkis-hryðjuverkum og hryðjuverkum úr grasrótinni, alþjóðlegri hjálparstarfsemi og miklu fleiru.

Ísrael-Palestína: Ætlar Bush að sjá um málið?
Ísland–-Palestína: Hvað hafa Íslendingar gert og hvað geta þeir gert?

Sveinn Rúnar Hauksson
læknir, formaður Félagsins Ísland-Palestína, flytur ræðu, sýnir myndir og svarar fyrirspurnum.

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi


mbl.is Tugþúsundir mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnir Ingibjargar, eldveggir og heimspekin

Gamli herstöðvarandstæðingurinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lagði fram "frumvarp um varnarmál" á þinginu í dag. Hún er núna í liði með Birni nokkrum Bjarnasyni sem aldrei hefur verið hernaðarandstæðingur. Gott að eldveggirnir verði reistir en hvað halda þeir lengi? Verður ekki bara hægt að pissa á þá? "Hernaðarlegir öryggishagsmunir" eru frekar óhugnanlegir sérstaklega úr munni Björns.

Ég get hinsvegar mælt með heimspekispjalli á Bláu könnunni á sunnudaginn:

Heimspekikaffihús

um lýðræði og mannréttindi

með Ólafi Páli Jónssyni

Bláa Kannan, Akureyri

sunnudaginn 20. janúar kl. 11:00 fyrir hádegi


Ólafur Páll Jónsson heimspekingur mun standa fyrir heimspeki kaffihúsi þar sem fjallað verður um lýðræði og mannréttindi á Bláu könnunni í Hafnarstræti, klukkan 11:00 fyrir hádegi. Síðastliðið vor gaf Ólafur Páll út bókina Náttúra, vald og verðmæti (Hið íslenska bókmenntafélag 2007) þar sem hann glímir m.a. við ýmsar grundvallarspurningar um lýðræði, eignarrétt og meðferð valds.

Heimspekikaffihúsið er öllum opið og byggist á samræðu viðstaddra um tiltekið efni sem fólk hefur áhuga á að ræða. Fyrir áramót stóð Félag Áhugafólks um Heimspeki á Akureyri og Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri fyrir 6 slíkum viðburðum sem allir voru mjög fjölsóttir og urðu kveikja að áhugaverðum umræðum. Félögin ætla því á nýju ári að halda áfram með heimspekikaffihús eftir því sem tækifæri gefast.

* * *

Hugmyndin um heimspekikaffihús á rætur að rekja til morgun fundar heimspekings og nokkurra kunningja hans á kaffihúsi í París árið 1992. Róbert Jack, heimspekingur og höfundur bókar­innar Hversdagsheimspeki (Háskólaútgáfan 2006), stóð fyrir fyrsta íslenska heimspekikaffihúsinu haustið 2005. Heimspeki kaffihús er ekki háfleyg rökræða nokkurra útlærðra heimspekinga heldur heimspekileg samræða á venjulegu mannamáli. Hver sem er getur tekið þátt í henni svo framarlega sem hann er tilbúinn að hlusta á aðra og færa rök fyrir máli sínu.

Á Heimspekivef Háskóla Íslands er grein um heimspekikaffihús:
http://www.heimspeki.hi.is/?greinasafn/annad/cafe_philo

Ólafur Páll er lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands


mbl.is Ísland axli ábyrgð á eigin öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýnasistar eru verri náttúruhamfarir

gegen_nazis Uppgangur nýnasista er óhugnanlegur. Samanburðurinn við náttúruhamfarir er ef til vill einkennilegur en í raun eru nýnasistar enn verri en náttúruhamfarir. Fullkomin heimska sem hægt væri að koma í veg fyrir er fólk skoðar söguna. En nýnasistum er það fullkomlega fyrirmunað eða þeir vilja það bara ekki.
mbl.is Brugðist við nýnasistum eins og náttúruhamförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórir karlar að spjalla saman í Vikulokunum

301237AMér finnst Hallgrímur Thorsteinsson ágætur útvarpsmaður. Sumar breytingar á hinum ljómandi þætti "Vikulokin" á Rás eitt sem hann hefur gert eru góðar, þátturinn byrjar til dæmis á yfirliti beint úr fréttum. Hinsvegar finnst mér Hallrígrímur ekki mjög fær í að velja sér viðmælendur. Í þættinum í dag eru fjórir karlar sem sitja saman og hlæja. Tveir fallnir þingmenn, Mörður Árna Samfó og Magnús Þór Frjálslyndi og svo er þarna einn frjálshyggjugaur, Ólafur Teitur sjálfstæðismaður. Geisp.

Það að Sharon Stone sé búin að fá sig fullsadda af karlmönnum kemur mér ekki á óvart, þeir eru margir ansi þreytandi, sjálfumglaðir og halda að þeir séu færastir í að stjórna öllu þó að þeir hafi enga hæfileika.


mbl.is Hefur meiri áhuga á konum en körlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarstjórnarmeirihlutinn treystir stöðu sína

getFileÞað eru ánægjuleg tíðindi að  borgarstjórnarmeirihluti Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknar og F-listans njóti aukins trausts. Það er samt merkilegt hvað margir myndu kjósa Sjálftökuflokkinn sem klúðraði eftirminnilega meirihlutanum fyrir nokkrum mánuðum og hefur ekki borið sitt barr síðan. Sjálfstæðisflokkurinn er sundurtættur í innbyrðis átökum. Vinstri græn mega vel við una í nýjum meirihluta og Svandís Svavarsdóttir hefur sýnt að hún er réttsýn, öflug og á tvímælalaust framtíðina og nútíðina fyrir sér. Áfram svona!
mbl.is 58,5% styðja borgarmeirihlutann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni M. fer úr öskunni í eldinn

AMMogHGR

Aumingja Árni M. Mathiesen. Það er erfitt af rökstyðja dellu og jafnvel fjármálaráðherra (og settur dómsmálaráðherra í einn dag) getur það ekki. Rökstuðningur Baggalúts er betri en Árna: 

"Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hefur sent frá sér rökstuðning fyrir skipan Þorsteins Davíðssonar, aðstoðarmanns í dómaraembætti við Héraðsdóm Norðurlands eystra.

Rökstuðningurinn, var skrifaður með afar vandvirknislegri rithönd á fallegt bréfsefni. Er hann í sex liðum og svohljóðandi:

1. Steini litli hefur alla tíð verið afar hjálpsamur og duglegur drengur - og skal sérstaklega tekið til þess hve þolinmóður og nærgætinn hann hefur verið við dómsmálaráðherra.
2. Hann er mjög þrifalegur.
3. Hann er sérlega vel upp alinn.
4. Hann hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
5. Hann hefur víðtæka reynslu af dómarastörfum, m.a. á samsýningum Kattavinafélagsins auk þess að hafa skrifað vandaðan bókadóm í barnablaðið ABC á sínum tíma.
6. Hann talar íslensku."

Svo mörg voru þau orð. 


mbl.is Segir dómnefnd hafa misskilið hlutverk sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary Clinton forseti BNA 2008 og "Axarmorðingi í móðurfaðmi"

hillary

Ég spái því hér með formlega að Hillary verði forsetaframbjóðandi Demókrata í BNA í nóvember og að hún vinni nauman sigur á frambjóðanda Repúblikana, sem ég hef ekki hugmynd um hver verður, eftir spennandi og rándýra kosningabaráttu. Vonandi verður Barack Hussein Obama varaforseti þó að John Edwards sé ágætur þá er Obama stjarna. Það að Hillary hafi fellt nokkur tár sýnir bara að hún er mannleg eins og við flest (ef ekki öll:)

Það er svo afar athyglisverður fyrirlestur um allt annað mál í AkureyrarAkademíunni á fimmtudag. Hér er tilkynning um það sem verður á boðstólnum í gamla Húsmæðraskólanum:

Við minnum á fyrsta Fimmtudagshlaðborð ársins

Fimmtudaginn 10. janúar kl. 17 flytur Brynhildur Þórarinsdóttir fyrirlesturinn
„Axarmorðingi í móðurfaðmi. Uppeldisfræði Egils sögu Skalla-Grímssonar“.

Fyrirlesturinn fer fram í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99, Akureyri.

Miðaldamenn litu ekki á börn sem sérstakan þjóðfélagshóp heldur „litla fullorðna“, fullyrti franski fræðimaðurinn Philippe Ariés fyrir nokkrum áratugum. Bernskufræðinga greinir nú mjög á um réttmæti fullyrðingar Ariés. Vissulega var íslenska miðaldasamfélagið gjörólíkt því sem við nú þekkjum en engin ástæða er þó til að halda því fram að fólk hafi litið börn öðrum augum en nú er gert. Í erindinu mun Brynhildur ræða um þá „uppeldisfræði“ sem fram kemur í íslenskum miðaldabókmenntum, sérstaklega Egils sögu.

Brynhildur Þórarinsdóttir er íslenskufræðingur og aðjúnkt við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún hefur sent frá sér sex barnabækur og eru þrjár þeirra endursagnir á Njálu, Eglu og Laxdælu, en fyrir þær hlaut hún norrænu barnabókaverðlaunin 2007. Í fyrirlestrinum nýtir hún sér reynslu sína af matreiðslu miðaldaarfsins, barnauppeldi, bernskuvísindum, kennslufræði og karlmennskurannsóknum.

Að erindinu loknu verður boðið upp á léttar veitingar að hætti hússins.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.


mbl.is Gáfu tárin Clinton byr?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.