Leita í fréttum mbl.is

Áfram með smjörlíkið! Innantóm slagorð

 asi1.jpg


Verið velkomin á sýningaropnun Hlyns Hallssonar og Jónu Hlífar Halldórsdóttur í Listasafni ASÍ laugardaginn 12. júní kl.16:00
 

Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf vinna saman að  Áfram með smjörlíkið! sem fer fram í Reykjavík, á Djúpavík, og í Berlín sumarið og haustið 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem þau samvinna sýningaröð en þau eiga að baki víðtæka reynslu af sýningarhaldi með öðrum og ein og sér.


Yfirskriftin Áfram með smjörlíkið! slær taktinn og gefur fyrirheit um viðfangsefni listamannanna. Fyrsta sýningin í röðinni opnar í Listasafni ASÍ 12. júní 2010 og er undirtitill hennar Innantóm slagorð. Unnið er með margvíslegan efnivið, þar með talið söguna og smjörlíki, en til grundvallar liggur athugun á listinni og tengslum hennar við hagkerfið. Sýningunni, sem stendur til 4. júlí 2010, fylgir bókverk sem Hlynur og Jóna skapa í sameiningu.


Önnur sýning raðarinnar er haldin í Verksmiðjunni á Djúpavík. “... Og tilbiður guð sinn sem deyr” er undirtitill sýningarinnar en þar verða rýmisbundnar innsetningar í fyrirrúmi. Sýningin opnar 17. júlí 2010 og stendur til 28. ágúst 2010. Þriðja sýningin opnar 3. september 2010 í 111 – a space for contemporary art í Berlín. Undirtitill hennar er Byltingin er rétt að byrja en á þeim nótum endar síðasti hluti raðarinnar.

afram.jpg

Verk Hlyns og Jónu eru allt í senn einföld, fjölbreytt og hugmyndaauðug. Þau vinna með marga ólíka miðla – Hlynur hefur fengist við ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar, Jóna hefur unnið með ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar. Verkin draga dám af því hvaða miðill verður fyrir valinu í hvert sinn en þátttaka áhorfandans er oft mikilvæg.


Í verkum beggja er að finna margbrotna en einfalda tjáningu. Verkin virðast á einhvern hátt hrein og bein og eiga greiða leið inn að hjarta- og heilarótum. Sum verkanna eru lævís, önnur kröftug, og mörg bera slagyrðingalegan brag á sér. Einfaldleikinn talar beint til manns og virðist fela í sér einhverja nánd, kannski falska (hver veit?)



Hlynur Hallsson (f. 1968) er menntaður við Myndlista – og handíðaskóla Íslands sem og við listaháskóla í Hannover, Hamborg og Düsseldorf í Þýskalandi. Hann hefur verið gestakennari við Myndlistarskólann á Akureyri. Hann hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir verk sín.


Jóna Hlíf (f. 1978) er menntuð við Myndlistarskólann á Akureyri, var við nám í Finnlandi og lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi. Hún hefur verið safnstjóri hjá VeggVerk og Gallerí Ráðhús og hefur líkt og Hlynur hlotið ýmsar viðurkenningar og styrki fyrir verk sín.


Sjá nánar á www.hallsson.de og www.jonahlif.com


Listamannaspjall sunnudaginn 13. júní kl.15:00


Sýningin stendur til 4. júlí
 

LISTASAFN ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá kl.13:00-17:00. Aðgangur er ókeypis.



LISTASAFN ASÍ
Freyjugötu 41, 101 Reykjavík
s. 511-5353
www.listasafnasi.is
asiinfo@centrum.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.