Leita í fréttum mbl.is

Styðjum ákærða mótmælendur

rvk9.jpg

Næstkomandi miðvikudag, þann 8. desember, verða liðin tvö ár frá því að hópur fólks heimsótti Alþingi, með það fyrir augum að halda upp á þingpalla og lesa yfirlýsingu fyrir þingheim. Eins og kunnugt er eru afleiðingarnar m.a. þær að níu manneskjur úr þessum u.þ.b. þrjátíu manna hópi hafa verið ákærðar á grundvelli 100. greinar hegningarlaganna, sem lýtur að árásum á sjálfræði Alþingis, og eiga nú yfir höfði sér þunga fangelsisdóma. Það er ekki ofmælt að kalla ákærurnar pólitískar ofsóknir og við þeim hefur verið brugðist á ýmsan hátt. Meðal annars fór af stað undirskriftalisti þar sem þú, við og rúmlega sjöhundruð aðrir, skrifuðum undir „samsekt“ okkar og kröfðumst þess að vera ákærð ásamt nímenningunum. Listinn var svo afhentur Ástu Ragnheiði forseta Alþingis í sumar, og hefur ekki spurst til hans síðan.
 
Við sem undir þetta bréf ritum myndum, ásamt fleirum, n.k. óformlegan stuðningsmannahóp við nímenningana, og höfum á prjónunum að boða til samstöðuaðgerða með þeim, nú þegar tvö ár eru liðin frá inngöngunni, og styttist í að aðalmálsmeðferðin hefjist loks.
 
Tvennskonar aðgerðir eru fyrirhugaðar:
 
Nú um helgina verður hrint af stað ljósmyndaverkefni þar sem fólki gefst kostur á að lýsa yfir stuðningi við nímenningana með því að sitja fyrir á myndum með skilti sem á er ritað eigin stuðningsyfirlýsing. Myndirnar verða settar á stuðningsvefsíðuna www.rvk9.org og fólk er jafnframt hvatt til að dreifa sinni mynd sem víðast, til að mynda með því að nota hana sem prófílmynd á Facebook. Dæmi um stuðningsyfirlýsingar sem fólk hefur þegar notað í þessu verkefni eru: „Ég styð níumenningana“, „Kærðu mig líka Ásta Ragnheiður“ og „Við réðumst öll á Alþingi“.
 
Þau sem vilja taka þátt og sýna samstöðu með þessu móti geta sent inn sína eigin mynd á netfangið samstada.rvk9 (hjá)gmail.com, eða mætt í myndatöku á Kjarvalsstöðum milli kl. 14 og 17 næstkomandi sunnudag 5. desember, eða á Hressó mánudagskvöldið 6. desember frá 19-21.  Á staðnum verður pappír og efni til að rita eigin skilaboð, ásamt plakötum sem aðrir hafa þegar gert.
 
 
Þann 8. desember næstkomandi verður svo blásið til samstöðuaðgerðar í Alþingi við Austurvöll. Þennan dag, kl. 14:30, fyllum við þingpallana og nýtum stjórnarskrárbundinn rétt til viðveru á Alþingi, sýnum að við sættum okkur ekki við ávirðingarnar sem nímenningarnir eru bornir. Mætum öll og gefum skýr skilaboð, níu manneskjur geta ekki tekið skellin fyrir heila hreyfingu. Styðjum nímenningana, þau eru níu af okkur.
 
Vinsamlegast látið orðið berast sem víðast.
 
Anna Þórsdóttir, Eyrún Sigurðardóttir, Guðjón Idir, Jórunn Edda Helgadóttir, Saga Ásgeirsdóttir.


mbl.is Stuðningsmenn níumenninganna boða aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Nei nei ekkert að vera styðja 9 menninganna,bara hafa almennilega byltingu á eftir . Bara það!!!

Eyjólfur Jónsson, 5.12.2010 kl. 03:48

2 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Það geta enganvegin verið pólitískar ofsóknir þó liðsmenn VG þurfi að fara eftir landslögum eins og aðrir

Hreinn Sigurðsson, 5.12.2010 kl. 15:20

3 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Hlynur, mundir þú slá skjaldborg um nýnasista eða mótorhjólagengið Engla helvítis ef þeir hefðu gert það sama og níumenningarnir?

Þetta er samviskuspurning sem þú verður að svara

Sigurður Grétar Guðmundsson, 5.12.2010 kl. 22:35

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

9 menningarnir brutu engin lög og beittu ekki ofbeldi, þetta sýna meðal annars eftirlitsmyndavélar alþingis.

sigurður grétar, ég myndi ekki slá skjaldborg um nýnasista eða hells angels. auðvelt að svara því.

bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 5.12.2010 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband