Leita í fréttum mbl.is

Glæsilegt upphaf á Landsfundi

landsfundur xvsmaller

Það var rífandi stemning á setningu Landsfundar Vinstri grænna í dag. Gaman að vera hluti af svona kraftmikilli og bjartsýnni hreyfingu fólks. Það er eitthvað að gerast, það ilmar af vori og maður fann fyrir því í dag. Frábært að hitta allt þetta nýja fólk sem gengið hefur til liðs við Vinstri græn á síðustu mánuðum og maður finnur kraftinn og gleðina. Opnunarathöfnin var flott, Kolbrún Halldórsdóttir stjórnaði af myndarskap og sérstaklega gott þótti mér að heyra ávörp fulltrúa tveggja kynslóða, þeirra Snærósar Sindradóttur og Málfríðar Sigurðardóttur, við setninguna. Ræða Steingríms var einnig kraftmikil og fín eins og maður átti reyndar vona á. Það er hægt að lesa hana alla hér. Og svo auðvitað sem pdf í frétt mbl.is.

Svo kíkti ég á opnun í Reykjavíkurakademíunni, Hoffmannsgalleríi og Hafnarhúsinu í matahléinu til að ná smá í Vetrarhátíð og hitti helling af góðu fólki. Um kvöldið voru svo hörku umræður. Þetta verður frábær helgi og dagskráin byrjar strax í fyrramálið og eftir hádegið klukkan 13 er málþing þar sem yfirskriftin er: Ótæmandi möguleikar: Íslenskt atvinnulíf á tímamótum. Þar eru krafta konur með erindi og í pallborði og hörkukarl líka. Kosning í stjórn fer fram klukkan 15 og ég ætla að gefa kost á mér. Þetta verður frábært.   


mbl.is Steingrímur: Bullandi stemning fyrir því að fella ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Bjartsýni og VG hélt ég að gæti ekki farið saman 

Elvar Atli Konráðsson, 24.2.2007 kl. 12:39

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Kæri Elvar, þú ættir að kíkja hingað á landsfundinn og sannfærast sjálfur því hér geislar bjartsýnin af hverjum manni. Miðað við umræðunu gæti maður haldið að Vinstri græn séu hópur af fúlu fólki sem er alltaf á móti öllu en í eitt skipti fyrir öll ættu þær ranghugmyndir að vera aflagðar. Hellingur af góðum hugmyndum og málefnum sprettur hér upp og einmitt núna er verið að fjalla um ótæmandi möguleika íslensks atvinnulífs og Guðbjörg Glóð Logadóttir hjá Fylgifiskum er að flytja frábært erindi. Framtíðin er björt... bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 24.2.2007 kl. 13:21

3 Smámynd: Hlynur Hallsson

Þarna eru við sannarlega sammála Steingrímur og skal koma þessu til skila. Við verðum að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr ríkisstjórn, eins og ég hef margoft bent á meðal annars hér á blogginu. Ég held að nafni þinn sé okkur líka sammála um það og langflest Vinstri græn einnig. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 24.2.2007 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.