Leita í fréttum mbl.is

Stofnum félag myndlistarfólks

37953Það hefur lengi staðið til að stofna félag myndlistarfólks hér á norðursvæðinu, nokkurskonar stéttarfélag myndlistarmanna sem berst fyrir okkar hagsmunum og beitir sér í viðkomandi málum. Við höfum nokkur verið að hittast frá því í sumar og rætt um þetta og nú er komið að því að halda formlegan fund. hér er auglýsingin og ég hvet allt myndlistarfólk til að mæta í Deigluna á morgun. Svo er opnun í BOXi í beinu framhaldi hinumegin við götuna.

Kynningarfundur að stofnun fagfélags myndlistarmanna á Norðurlandi verður haldinn laugardaginn 24. nóvember í Deiglunni, Listagili, Akureyri, kl 17:00. Kynntar verðar hugmyndir að félaginu og á fundinum verður valin undirbúningsnefnd til stofnunar félagsins.
Allt myndlistarfólk velkomið.
- Hvernig eflum við myndlist og menningu á Norðurlandi?
- Hvað á myndlistarfólk á Norðurlandi sameiginlegt?
- Hver eru hagsmunamál myndlistarmanna?
- Getum við haft meiri áhrif saman en í sitt hverju lagi?
- Hvað viljum við og hvað getum við gert?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ransu

Frábært.  Mun hugsa til ykkar, senda jákvæða strauma.

Ransu, 23.11.2007 kl. 09:47

2 identicon

Flott hjá ykkur! Gangi ykkur vel.

Ragga (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 14:20

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Flott framtak kæri Hlynur ... vonandi verður vakning meðal myndlistarmanna vegna þessa félags ykkar á norðurlandi, ég á við að þið verðið einskonar fyrirmynd og stofnuð verði fleiri slík sambærileg félög víðar um landið. En ég sendi mínar árnaðaróskir með þetta félag ykkar ! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.11.2007 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband