Leita í fréttum mbl.is

Er þetta "innlend" frétt?

446260AStundum eru fyrirsagnirnar á mbl.is dálítið fyndnar og skrítnar. Það á ef til vill við um fyrirsögnina á þessari frétt: "Í kvenmannsföt til að skilja þarfir kvenna". En af hverju er þessi frétt flokkuð sem "innlend" frétt? Það er ekkert innlent við hana. Svona frekar erlent eða það hefði verið tilvalið að setja hana í samsuðudálkinn sem heitir "fólk". Annars er þessi frétt af GM dálítið klisjuleg og eftirfarandi setningar segja okkur ýmislegt:

"Því næst voru mennirnir klæddir í ruslapoka til að líkja eftir pilsum og fengu gúmmíhanska með álímdum gervinöglum. Dagurinn gekk svo út á að fara í gegnum venjulegan dag húsmóður og nota bíla fyrirtækisins án þess að brjóta nögl, rífa pils og þar fram eftir götunum."

Er hér ekki enn og aftur verið að ýta undir staðalímyndirnar. Ég efast um að amerískar húsmæður séu allar í pilsi, í háhæluðum skóm og með langar neglur. En þessir bílar frá General Motors fá allavega verðlaun fyrir að vera hlunkalegustu og ljótustu bensín/díselsvelgir sem fyrirfinnast. Konan á myndinni er ekki dæmigerð amerísk húsmóðir leyfi ég mér að fullyrða (og reyndar ekki heldur "innlend" (íslensk)!)


mbl.is Í kvenmannsföt til að skilja þarfir kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð Símonarson

Það er greinilega mikill forgangur að fá svona fréttir byrtar, allaveganna að fréttin innihaldi ekki alvarlegt málefni. Ekki hef ég séð frétt um t.d. CIA kókaín málið í Mena Arkansas þegar WClinton var fylkisstjóri eða átak samtakanna LEAP (http://www.leap.cc/cms/index.php) sem koma upp um gerspillta dóppólísíu stjórnvalda. Svona má lengi telja en fréttastofnunum þykir þessi mál ekki nógu verðug byrtingar.

Alfreð Símonarson, 7.12.2007 kl. 16:40

2 Smámynd: Ransu

Þessi dís á myndinni heitir Frank N´Further og er tvíkynja geimvera frá Transexual. Lenti hér á jörðinni árið 1975 og flekaði hjón, Brad og Janet. Var síðan myrtur af þjóni sínum, Riff Raff.

Átta mig ekki alveg hvaða erindi hann/hún gegnir sem myndskreyting við þessa frétt.

Ransu, 7.12.2007 kl. 16:53

3 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Þetta er undarleg frétt og ýtir vissulega undir staðalímyndir. Reyndar segir aftast í fréttinni eitthvað á þá leið að kannski hefði bara verið sniðugra og einfaldara að fá konur til að hanna bílinn. Ég er sammála því.

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 7.12.2007 kl. 20:51

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Ég brosi nú reyndar mjög oft og finnst athugasemdirnar hjá Andrési og Ransu mun skemmtilegri en þessi frá Þorgeiri yfirhúmorista.) Tek undir með Þuríði að niðurlagið í prentuðu útgáfunni af þessari "innlendu" frétt er skynsamlegra. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 8.12.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband