Leita í fréttum mbl.is

Af hverju er Sjálfstæðisflokknum illa við aukið lýðræði?

488155AÞað er afar jákvætt að fram sé komið á Alþingi frumvarp um persónukjör. Þetta var ein af kröfunum í búsáhalda-byltingunni. Það er einnig mjög ánægjulegt að allir flokkar (nema einn) á þingi skuli standa að þessu skrefi til virkara lýðræðis. Það er hinsvegar sorglegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli leggjast gegn þessu mikilvæga máli. En það þarf ef til vill ekki að koma á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn leggst einnig gegn hugmyndum um stjórnlagaþing. Sjálfstæðisflokkurinn er á móti öllum framförum!) 

Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn sé að misskilja hlutverk sitt í stjórnarandstöðu. Best að hafa flokkinn þar í 18 ár til að hann fari að fatta að það er hægt að veita aðhald og koma með uppbyggilega gagnrýni í stað þess að vera í fýlu og með leiðindi og standa á bremsunni í öllum hlutum. Sérstaklega þagar það kemur umbótum á lýðræðinu við.


mbl.is Leggja fram frumvarp um persónukjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mistök, gagnrýni og umbætur er ekki til í orðabókum sjálfstæðismanna.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 08:55

2 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Sjöllunum er illa við aukið lýðræði því vinargreiðar, klúbbastarf, fjölskyldur tengdar viðskiptum í vinaböndum eru lífið sem þeir smíðuðu og eru góðir í. Þetta er greinilega einmana fólk sem getur ekki eignast vini nema í gegnum það að skiptast á gjöfum. Ég gef þér og þá skuldar þú mér. Ég geri þér greiða og þú átt að vera þakkátur og sýna mér hollustu. Félagslega vanþroska. Tilfinningalega vanþroska.

Margrét Sigurðardóttir, 3.3.2009 kl. 09:07

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég legg til að Sjálfstæðisflokkurinn dragi sig í hlé og bjóði ekki fram í næstu kosningum.

Þórbergur Torfason, 3.3.2009 kl. 10:18

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Samkvæmt þeirra eigin orðum þá er engum öðrum en þeim treystandi. Afleiðingarnar eru öllum ljósar minn kæri.

Arinbjörn Kúld, 3.3.2009 kl. 16:22

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég legg til að íhaldið leggi sig niður, í bili amk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.3.2009 kl. 17:27

6 identicon

Mér finnst að allir þeir sem voru flokksbundnir Sjálfstæðismenn Bankahrunsdagana ættu að ganga með hauspoka og þá sérstaklega frjálshyggjuliðið

Guðmundur Ingólfsson (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 19:23

7 Smámynd: Þórbergur Torfason

Gaman að sjá Kristinn Pétursson birtast hér á síðu sem öllum er opin svo lengi sem orðum er stillt í hóf.

Þetta þurfa menn að gera þegar þeir þola ekki að skoðanir öndverðar þeirra koma fram á þeirra eigin síðum. Þá nennir enginn lengur að opna þær og lesa.

Kristinn minn ef þú lest þetta. Sýndu þann manndóm að viðurkenna þegar þú ferð fram úr raunveruleikanum á blogginu þínu.

Þórbergur Torfason, 5.3.2009 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband