Færsluflokkur: Dægurmál
5.3.2009 | 09:15
Vonbrigði
Ég fer ekkert í launkofa með það að ég er dálítið vonsvikinn yfir úrslitum forvalsins hér í Norðaustrinu. Einn félagi minn benti mér á að af átta efstu einstaklingum sé ég sá yngsti og ég er fertugur, fjórum árum yngri en mamma hans!
Það er krafa í þjóðfélaginu um endurnýjun en sú krafa virðist ekki hafa náð eyrum margra félaga í Vg hér í Norðausturkjördæmi. Og ég er ansi hræddur um að staðan sé svipuð í Norðvesturkjördæmi þrátt fyrir að margt afar frambærilegt ungt og ferskt fólk gefi kost á sér.
En það þýðir ekkert að gráta Björn bónda heldur safna liði og bretta upp ermar (eða öllu heldur sleppa því að bretta þær niður aftur). Við sem trúum því að það þurfi að gera gagngerar breytingar á þjóðfélaginu og að meiri umhverfisvernd, jafnrétti, friðarstefna, burt frá klíkuskap og græðgi, verðum að halda baráttunni áfram og greinilega af enn meiri krafti.
Bestu baráttukveðjur,
Hlynur
Mynd frá Akureyri: Hugi Hlynsson
Steingrímur J. efstur í NA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
4.3.2009 | 09:38
Réttlæti taki við af græðgi og spillingu
Loksins, loksins! Eftir 18 ára græðgivæðingu Sjálfstæðisflokksins með tilheyrandi spillingu, einkavinavæðingu og rugli er kominn tími á réttlæti. Vinstri græn ásamt Samfylkingu hafa tekið við og eru að þrífa skítinn eftir frjálshyggjusukkið.
"Flokkurinn brást ekki, það var fólkið" segja forystumenn þessa flokks. Bjarni Ben, Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín voru öll í þessu og það er komið nóg. Vonandi man fólk eftir öllu sukkinu, lygunum og blekkingunum þegar það kemur í kjörklefann. Hver og einn hefur eitt atkvæði og það er vonandi enginn sem horfir yfir öxlina á okkur þegar við fáum að kjósa velferð og uppbyggingu í stað græðgi og spillingar.
Gæti orðið mesta vinstri sveifla sem sést hefur hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.3.2009 | 08:48
Af hverju er Sjálfstæðisflokknum illa við aukið lýðræði?
Það er afar jákvætt að fram sé komið á Alþingi frumvarp um persónukjör. Þetta var ein af kröfunum í búsáhalda-byltingunni. Það er einnig mjög ánægjulegt að allir flokkar (nema einn) á þingi skuli standa að þessu skrefi til virkara lýðræðis. Það er hinsvegar sorglegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli leggjast gegn þessu mikilvæga máli. En það þarf ef til vill ekki að koma á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn leggst einnig gegn hugmyndum um stjórnlagaþing. Sjálfstæðisflokkurinn er á móti öllum framförum!)
Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn sé að misskilja hlutverk sitt í stjórnarandstöðu. Best að hafa flokkinn þar í 18 ár til að hann fari að fatta að það er hægt að veita aðhald og koma með uppbyggilega gagnrýni í stað þess að vera í fýlu og með leiðindi og standa á bremsunni í öllum hlutum. Sérstaklega þagar það kemur umbótum á lýðræðinu við.
Leggja fram frumvarp um persónukjör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.2.2009 | 00:06
Kynningarbæklingur frambjóðenda kominn á netið
Það er gott hversu margt nýtt og ferskt fólk gefur kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Til að gefa yfirlit um allt þetta fólk, hugsjónir þeirra, stefnu og bakgrunn hefur kosningastjórnin gefið út ljómandi bækling um alla frambjóðendur sem sendur verður í pósti til allra félaga í kjördæminu ásamt atkvæðaseðli. Það er einnig hægt að nálgast þennan bækling í PDF formi hér.
Þeir sem gerast félagar í Vg fyrir klukkan 17 mánudaginn 23. febrúar geta kosið í forvalinu. Hér er hægt að skrá sig.
Svo eru kynningarfundir í kosningamiðstöðvunum á Akureyri laugardaginn 21. feb. klukkan 15 og á Egilsstöðum sunnudaginn 22. feb. klukkan 15.
Ingunn tekur þátt í forvali VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.2.2009 | 11:53
Heilindi
Ég er sannfærður um að þörf er á nýju siðferði í íslensk stjórnmál sem og viðskiptalíf og almennt í þjóðfélaginu. Ég vil gera orð Davíðs Stefánssonar frambjóðanda í forvali Vg í Reykjavík að mínum. Hann veitti mér góðfúslegt leyfi til að birta þessa yfirlýsingu hér.
Ég kem hreint og beint fram og hef þá einföldu trú að kærleikur, mannvirðing og heiðarleiki borgi sig á öllum sviðum lífsins líka í stjórnmálum.
Ég mun ávallt kjósa samkvæmt eigin sannfæringu í öllum málum og styðja frumvörp annarra stjórnmálaflokka ef þau samræmast minni sannfæringu.
Ég mun meta aðra stjórnmálamenn eftir orðum þeirra og gjörðum, hvorki eftir flokksskírteini þeirra né stefnu þess flokks sem þeir tilheyra.
Ég mun, hvorki í kosningabaráttu innan flokksins né í kosningabaráttu við aðra flokka, beita óvönduðum meðulum.
Ég mun svara beinum spurningum sem ég get svarað og ekki reyna að tala mig í gegnum spurningar sem ég get ekki svarað.
Ég mun axla ábyrgð á eigin gjörðum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.2.2009 | 00:58
Já, við þorum, viljum og VIÐ GETUM!
Ísland er á tímamótum þar sem frjálshyggjan hefur beðið skipbrot og framundan eru krefjandi og erfið verkefni við að endurmóta íslenskt samfélag. Í þeirri vinnu er þörf á skapandi hugsun og nýjum hugmyndum.
Ég er tilbúinn að leggja mitt fram til að byggja upp kraftmikið og réttlátara þjóðfélag. Þess vegna gef ég kost á mér í 1.-3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Þeir sem vilja styðja mig geta gengið til liðs við Vinstri græn fyrir klukkan 17 mánudaginn 23. febrúar 2009 og fá þá sendar upplýsingar um frambjóðendur og kjörseðil þar sem númera skal í sæti 1.-8. Kosningunni lýkur laugardaginn 28. febrúar.
Þetta vil ég sjá:
+ Aukið beint lýðræði, valdið til almennings, þjóðaratkvæðagreiðslur ef 25% kjósenda krefjast þess. 16 ára fái kosningarétt. Auka fræðslu um lýðræði í grunn- og framhaldsskólum.
+ Afnema launaleynd, konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Hækka laun umönnunarstétta.
+ Auðlindir landsins séu sameign þjóðarinnar og verði ekki framseldar fyrirtækjum eða einstaklingum. Leggjum áherslu á vistvænar veiðar og fullvinnslu hráefnis.
+ Bjarga heimilum frá gjaldþroti, lækka vexti strax.
+ Ísland verði óháð og friðelskandi ríki utan hernaðarbandalaga.
+ Fólk verði ráðið eftir hæfni og á faglegum forsendum en ekki eftir flokksskírteini. Burt með spillingu og einkavinavæðingu.
+ Hlúð verði að ferðaþjónustu og hún byggð upp allt árið um kring. Beint flug milli Norðausturlands og Evrópu.
+ Efla Háskólann á Akureyri og nýta betur þá þekkingu sem er til staðar til atvinnusköpunar.
+ Stutt verði við vistvæna ræktun, skógrækt, umhverfisvernd, skapandi starfsemi, þekkingariðnað og hugvit. Það er atvinnusköpun.
+ Sjálfbær þróun verði ætíð höfð að leiðarljósi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.2.2009 | 00:36
Uppbyggilegur fundur á Akureyri
Samtökin Landsbyggðin lifi efna til fundar á Akureyri á laugardaginn. Ég missi því miður af fundinum, verð í 10 ára afmæli Vinstri grænna í höfuðborginni en bendi öllum sem vettlingi geta valdið á að mæta á þennan áhugaverða og uppbyggilega fund. Hellingur af góðu fólki er í pallborði og með framsögur.
Það var heldur fámennt en góðmennt í 18. mótmælagöngunni á Akureyri um síðustu helgi en nú þarf að veita stjórnmálamönnum aðhald og viðhalda búsáhaldabyltingunni. Við megum ekki gleyma eða detta aftur ofan í sama gamla farið. En hér er dagskrá fundarins:
Farsæld til framtíðar!
Undir þessu kjörorði skipuleggur Landsbyggðin lifi (LBL) fundi á landsbyggðinni í samvinnu við stofnanir og félagasamtök úr ýmsum greinum atvinnulífsins
Fyrsti fundurinn verður á Akureyri Laugardaginn 7. febrúar 2009 - Kl 12:30- 15:00 í Brekkuskóla v/ Hrafnagilsstræti (fyrir ofan Akureyrarkirkju).
Dagskrá:
Setning
Ragnar Stefánsson, prófessor og varaformaður LBL setur fundinn og ýtir fundaherferðinni úr vör.
Framsöguerindi
Framtíð lýðræðis
Páll Skúlason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
Ný tækifæri í sjávarútvegi
Hjörleifur Einarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
Framtíð landbúnaðar lífrænn iðnaður?
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Ný sköpun Ný framtíð
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Ferðaþjónusta til farsældar
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamála við Háskólann á Hólum
Pallborðsumræða Í pallborði verða, auk frummælenda:
George Hollanders, leikfangasmiður
Hreiðar Þór Valtýsson, fiskifræðingur Háskólanum á Akureyri
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, Eyjafirði
Guðbergur Egill Eyjólfsson, bóndi að Hléskógum
Sóley Björk Stefánsdóttir, háskólanemi í fjölmiðlafræði
Sigurbjörg Árnadóttir, verkefnisstjóri í nýsköpun í ferðamálum
Guðrún Þórsdóttir, nemandi við Myndlistaskólann á Akureyri
Stefnt er að því að framsöguerindi verði stutt, þannig að góður tími gefist til almennrar umræðu
Fundarstjóri er Rafn Arnbjörnsson, frjótæknir
Veitingasala 10. bekkjar Brekkuskóla verður opin
Nánari upplýsingar á www.landlif.is
Mótmælt eftir stjórnarskiptin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.2.2009 | 08:36
Til hamingju með nýja ríkisstjórn!
Þessi nýja stjórn er merkileg fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi tekur hún við skelfilegu búi sem 18 ára stjórnaseta Sjálfstæðisflokksins skilar af sér, gjaldþrota þjóðarbú með svimandi milljarða skuldum, atvinnuleysi sem stefnir í 13% og verðbólgu um 18%, himinháum vöxtum og svo mætti lengi telja. Í öðru lagi er þetta fyrsta stjórnin þar sem ráðherrar eru jafn margir konur og karlar og í þriðja lagi er í fyrsta skipti í sögu landsins kona forsætisráðherra. Það var fyrir löngu kominn tími til. Í fjórða lagi eru tveir ráðherrar utanþings og í fimmta lagi er þetta í fyrsta skipti sem Vinstri græn setjast í ríkisstjórn. Það var einnig löngu tímabært.
Verkefnin eru risavaxin er aðgerðaráætlunin lofar góðu. Aumingja íhaldið hrökklaðist frá völdum í búsáhaldabyltingunni. Og nú fáum við að kjósa þann 25. apríl. Til hamingju með það!
Stjórnarskiptin vekja athygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.1.2009 | 13:30
Réttur maður í rétt starf
Það er afar ánægjulegt að Ögmundur Jónasson verði heilbrigðisráðherra. Hann er augljóslega besti kosturinn. Umskiptin í þessu mikilvæga ráðuneyti hefðu sennilega ekki getað orðið meiri, frá Guðlaugi Þór niðurskurðar- og einkavinavæðingarráðherra til ráðherra velferðar og heilbrigðrar skinsemi.
Til hamingju Ögmundur og til hamingju Ísland!
Ögmundur verður ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
9.1.2009 | 13:11
Steingrími tekst það sem ríkisstjórnin getur ekki gert
Það er merkilegt að þegar svokölluð "ríkisstjórn" Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar situr aðgerðarlaus og getur ekki gert neitt ekki, einu sinni þrifið skítinn eftir sig, þá er það forystumaður stjórnarandstöðunnar sem gerir það sem gera þarf. Geir H. Gunga segir "við látum ekki kúga okkur!" en lætur Bretana svo kúga okkur.
Það er stórum áfanga náð að framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins hafi samþykkt í dag beiðni Íslands (Steingríms) um að sú aðgerð breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi 8. október sl. yrði tekin til meðferðar bæði í laga- og mannréttindanefnd og efnahagsnefnd Evrópuráðsþingsins.
Það er svona sem menn þurfa að vinna.
Mynd: VB MYND/BIG
Frysting tekin fyrir hjá Evrópuráðsþinginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 379157
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Aldís Gunnarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Rúnar Ingason
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Lilja
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Anna Þorbjörg Jónasdóttir
- Ari Matthíasson
- Arinbjörn Kúld
- arnar valgeirsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Auðun Gíslason
- Árni Árnason
- Árni "Gamli" Einarsson
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ása Richardsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Ásta Möller
- Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
- Ásta Svavarsdóttir
- Baldur Gautur Baldursson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Barði Bárðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Bergþóra Jónsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- BookIceland
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Davíð
- Dofri Hermannsson
- DÓNAS
- Edda Agnarsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Elfar Logi Hannesson
- Elín Sigurðardóttir
- Ellý Ármannsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- erlahlyns.blogspot.com
- ESB og almannahagur
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Forvitna blaðakonan
- FreedomFries
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Gammur drils
- Gaukur Úlfarsson
- Geiri glaði
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Tryggvason
- Goggi
- gudni.is
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðríður Haraldsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- halkatla
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Kristinn Haraldsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Bjarnason
- Haraldur Davíðsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Haukur Vilhjálmsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hildur Sif Kristborgardóttir
- Hilmar Björgvinsson
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hjalti Már Björnsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlédís
- Hlynur Sigurðsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hreiðar Eiríksson
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Ibba Sig.
- Indriði Haukur Þorláksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Ingimar Björn Davíðsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- íd
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Björnsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jónas Viðar
- Jón Bjarnason
- Jón Hafsteinn Ragnarsson
- Jón Hrói Finnsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Kolbrún Kolbeinsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristján Pétursson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Linda Rós Jóhannsdóttir
- Listasumar á Akureyri
- LKS - hvunndagshetja
- Logi Már Einarsson
- Magnús Bergsson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Paul Nikolov
- Páll Helgi Hannesson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Thayer
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Björgvin
- Pétur Þorleifsson
- Pollurinn
- Ragnar Bjarnason
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Ransu
- Rauður vettvangur
- Róbert Björnsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Dögg
- SeeingRed
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigrún Dóra
- Sigtryggur Magnason
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Hólm Gunnarsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón M. Egilsson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sól á Suðurnesjum
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Steindór Grétar Jónsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Stjórnmál
- Svansson
- Svanur Jóhannesson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- SVB
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sverrir Þorleifsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Már Sævarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sölvi Breiðfjörð
- Thelma Ásdísardóttir
- Theódór Norðkvist
- Tinna Eik Rakelardóttir
- Tíðarandinn.is
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- TómasHa
- Trúnó
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tryggvi H.
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Úrsúla Jünemann
- Valgeir Bjarnason
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- Viðar Eggertsson
- Vika símenntunar
- Vilberg Helgason
- Vinir Tíbets
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórbergur Torfason
- Þórdís tinna
- Þór Gíslason
- Þór Jóhannesson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?