Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju með afmælið Trabbi

Skemmtileg frétt af 50 ára afmæli Trabants á mbl. Eiginlega hélt ég að hann væri enn eldri! Þetta er auðvitað orðinn nostalgíu bíll fyrir löngu. Hugi, elsti sonur okkar á einmitt svona lítinn Trabba og búinn að eiga í 15 ár. Lóa Aðalheiður lék sér mikið með bílinn og sennilega á Una Móeiður einnig eftir að gera það. Það er DDR merki á hurðunum á honum og búið að strika yfir D og R þannig að annað D-ið stendur eftir fyrir sameinað Þýskaland. Ég kom nokkrum sinnum til Zwickau til að taka þátt i myndlistarsýningu og þar var nú ástandið frekar dapurt og heilu hverfin hálf yfirgefin. En ef Herpa leikfangaframleiðandinn ætlar að fara að framleiða Trabant í fullri stærð ættu þau auðvitað að gera það í Zwickau og hafa bílinn aðeins umhverfisvænni, ekki kannski upptrekktan eins og þennan sem Hugi á heldur bara rafmagnsbíl eða hjólabíl!

444256AMagga systir átti líka Trabant station sællar minningar. Trabant var auglýstur hér á landi með hinu frábæra slagorði: Skynsemin ræður! Svo er líka frábær íslensk hljómsveit sem tók upp nafnið góða og hér eru nokkrir skemmtilegir tenglar á Trabanta. 

Trabant á Wikipedia 

Saga Trabants

Hljómsveitin Trabant 

Trabantfréttir

Um trabantverksmiðjuna Sachsenring 

Nýr Herpa Trabbi 


mbl.is Trabant á stórafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

...og þessi færsla dulmennisins Dharma sýnir að honum er ekki viðbjargandi í hatri sínu á VG. Og er mesti bullarinn á moggablogginu (ég er bara að reyna að vera á sama plani og Dharma-grátur:) Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 7.11.2007 kl. 14:45

2 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Ég átti trabant í mörg ár og hvað sem má slæmt segja um hann þá var hann betri en flestir aðrir bílar í snjó, hann var svo léttur. Svo entist vélin í mínum endalaust þótt boddýið hafi verið að gefa sig. Ég held að það hafi ekkert með stjórnmálaskoðanir að gera hvort maður hefur átt trabant eða ekki, það hefur meira að gera með fjárhag því hann var ódýr.

Svo er alveg ótrúlegt hvað fólk sem aðhyllist eftirfarandi skoðanir: femínisma, sósíalisma, umhverfisvernd, almenn mannréttindi og fleira sem ég man ekki eftir í augnablikinu, þarf að þola mikið skítkast frá fólki sem er greinilega skítsama um heiminn, fólkið í honum og náttúruna sem sér okkur fyrir lífsviðurværi!

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 7.11.2007 kl. 15:17

3 Smámynd: Hlynur Hallsson

Nákvæmlega Þuríður. En best að láta svona nafnlausar fýlubombur ekki hafa áhrif á sig og halda áfram að vera bjartsýn og glöð og vona að fleiri sláist í hópinn! Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 7.11.2007 kl. 15:43

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Skemmtileg færsla Hlynur.  Trabant..... var draumabíllinn minn langt fram eftir unglingsárum, ..... yfirfærði þessa ást síðar meir yfir á hljómsveitina Trabant..... er með þá í Ipodnum mínu alla daga.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 7.11.2007 kl. 18:13

5 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Ég er ekki viss um að þessi Dharma hafi verið ýkja gamall þegar Trabant kom fram á sjónarsviðið.Orðið mengun var ekki notað á þeim árum,þótt það sé gamalt í málinu er nýlega farið að nota það svona í daglegu tali.

Ég er sammála Þuríði með stjórnmálaskoðanirnar,einkennilegir menn sem geta endalaust komið pólitík að þótt hún hafi ekkert með uræðuefnið að gera

Ari Guðmar Hallgrímsson, 7.11.2007 kl. 20:57

6 Smámynd: Karl Tómasson

Heill og sæll Hlynur.

Minn fyrsti nýji bíll var Trabant station. Ég keypti hann árið 1984 á krónur 80.000 og seldi hann tveimur árum síðar án þess að hafa lagt í hann krónu á 75.000 kr. á borðið. Semsagt 5.000 króna afföll á tveimur árum. Það verður vart betra. Í dag sé ég ekkert annað en M Benz og hef átt nokkra slíka. Afföllin á þeim sem ég átti síðast og keypti nýjann voru tvær millur, fyrir það hefði eflaust verið hægt að kaupa c.a. 5 - 6 nýja Trabba í dag ef þeir væru en framleiddir.

Bestu kveðjur og þakkir fyrir skemmtilega færslu frá Kalla Tomm úr Mosó.. 

Karl Tómasson, 8.11.2007 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.