Leita í fréttum mbl.is

Þrjár opnanir á Akureyri í dag

Gunnar-Kr-Svart-webÞað verða þrjár myndlistarsýningar opnaðar hér á Akureyri í dag. Ein opnunin er reyndar hafin svo það er best að fara að drífa sig! Klukkan 14 opnaði Gunnar Kr. Jónasson myndlistarsýninguna "Svart" í Populus tremula. Á sýningunni eru splunkunýir skúlptúrar eftir Gunnar Kr. sem vakið hefur verðskuldaða athygli fyrir þrívíða myndlist, auk málverka og teikninga. Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 11. 11. kl. 14:00 - 17:00.

IMG_2943Klukkan 15 opnar Lína í Jónas Viðar galleríinu, einnig í Gilinu og svo klukkan 17 opnar Karen Dúa Kristjánsdóttir sýninguna ,,Klippimynd" í DaLí Gallery laugardaginn 10. nóvember. Verk Karenar Dúu er eins og titillinn segir, tilraun með klippimynd á vegg.
Karen Dúa er fædd á Akureyri árið 1982. Hún tók stúdentspróf við Menntaskólann á Akureyri árið 2002 og lauk myndlistarnámi frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 2006. Karen Dúa rekur Gallery BOX ásamt fleirum og er vinnustofa hennar staðsett þar á sama stað. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en sýningin klippimynd í DaLí gallery er þriðja einkasýning hennar að námi loknu. Hún er einnig með sýningu á VeggVerk á sama tíma og ættu sýningargestir að rölta þangað og virða fyrir sér verk hennar þar í leiðinni. 

Auk þessa eru ljómandi sýningar í Listasafninu á Akureyri, í Gallerí + og á Kaffi Karólínu. Semsagt hægt að slá margar flugur í einu höggi í myndlistinni á Akureyri í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Alltaf sama spennandi myndlistarlífið á Akureyri! Goða helgi.

Edda Agnarsdóttir, 10.11.2007 kl. 16:15

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ætla bara rétt að vona að það verði jafn fjörugt í listageiranum eftir að ég kem heim. Já meðan ég man, ertu enn með gallerí heima hjá þér?

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 10.11.2007 kl. 19:45

3 Smámynd: Hlynur Hallsson

Það var fjórða opnunin í gær sem hafði farið fram hjá mér. Sjálfur Jón Laxdal er með sýningu í íbúð í nýjasta hverfinu hér fyrir sunnan okkur. eitthvað tún númer fjögur held ég.  Sýningin er einnig opin í dag frá 14-22 held ég. Jú Krumma við erum enn með sýningar í stofunni hjá okkur (Kunstraum Wohnraum) og eftir dálitla pásu er stefnt að því að opna næstu sýningu á nýju ári, þegar þú ert komin aftur í bæinn. Svo bendi ég á að Ransu er byrjaður að myndlistarblogga hér. Velkominn í hópinn og bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 11.11.2007 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.