Leita í fréttum mbl.is

Bjartsýnn á að Ísraelsstjórn fari að lögum

Það ef til vill ofurbjartsýni til en það er alltaf hægt að halda í vonina. Ísraelsstjórn hefur ítrekað þverbrotið alþjóðalög. Óskandi væri að Ísraelar skiluðu landi aftur til Palestínumanna og að friður kæmist á. Það er mikill kraftur í samtökunum Ísland-Palestína og á morgun kemur góður gestur og segir frá ástandinu í landinu. Hér er tilkynning frá samtökunum.

Heimsókn Ali Zbeidat til Íslands
Opinn fundur í Alþjóðahúsinu á morgun - Laugardaginn 5. janúar, kl 14.00



Félagið Ísland-Palestína hefur starfsemi sína á nýju ári með heimsókn blaðamannsins og aktivistans Ali Zbeidat til Íslands og opnum fundi með honum í Alþjóðahúsinu, laugardaginn 5. janúar. Fundurinn hefst klukkan 14:00. Aðgangur er öllum opinn.

Ali Zbeidat er fyrrum pólitískur fangi sem í áraraðir barist fyrir mannréttindum Palestínumanna sem búa innan landamæra Ísraels (stundum kallaðir ísraelskir arabar). Hann hefur ísraelskan ríkisborgararétt og er búsettur í bænum Sakhnin, sem í dag liggur innan landamæra Ísraelsríkis.

Í upphafi fundarins verður sýnd 25 mínútna heimildarmynd um skipulega eyðileggingu á íbúðarhúsum Palestínumanna - en fjölskylda Ali sjálfs hefur átt á hættu að missa heimili sitt eftir að það var úrskurðað ólöglegt af ísraelskum yfirvöldum. Að sýningu lokinni flytur Ali ræðu um Palestínumenn í Ísrael, það er hlutskipti íbúa palestínsku svæðanna sem hertekin voru 1948 og innlimuð í Ísraelsríki. Þá mun hann fjalla um pólitíska fanga í Ísrael, en um ellefu þúsund Palestínumenn; karlar, konur og börn eru nú í ísraelskum fangelsum. Að lokinni ræðu hans verða fyrirspurnir og umræður.

----------------------------------------------------------
Tenglar:

  • Apartheid targets Palestinian home-owners inside Israel
    Jonathan Cook fer yfir sögu Ali Zbeidat í mjög góðri grein um hlutskipti Palestínumanna í Sakhnin og annarstaðar innan landamæra Ísraels.

  • The Legal Center for Arab Minority Rights in Israel
    Samtök sem vinna að mannréttindum palestínskra íbúa innan landamæra Ísraels. Beita sér m.a. fyrir jafnrétti til náms og réttindum fanga, veita lögfræðiaðstoð og reka mál gegn lagasetningum sem mismunar fólki á kostnað uppruna þeirra eða trúarbragða.

  • Adameer
    Samtök sem vinna að því að verja mannréttindi palestínskra fanga í Ísrael. Hér má finna margs konar fróðleik og tölfræði, ekki síst um pólitíska fanga.

mbl.is Bush bjartsýnn á friðarsamkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæri hlynur. mikið er ég sammála þér. ég vona svo innilega að það komist friður á þessum svæðum og að palestína fái mannsæmandi lifiaðstæður. það er ekki hægt að bjóða heilli þjóð með kynslóð eftir kynslóð að búa í fangelsi. dæmið um palestínu er skammblettur hérna á jörðinni sem þarf að leysa.ekki hef ég nú miklar hugmyndir um bush, en ef þetta verður hans síðasta afrek sem hann gerir þó svo að mótífið sé sé sennilega ekki gott, þá er gott ef útkoman er góð. það er fjöldi fólks að reyna að vinna að sáttum á þessum svæðum og ég sendi þeim alla þá orku sem er möguleg til að vinna að þessu mikilvæga verkefni.

góða og fallega helgi til ykkar á ásabyggð !

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 18:01

2 Smámynd: inqo

fyrirgefðu en mig langar að spyrja þig. afhverju eiga þeir að skila landinu? veit ekki betur en að stríð hafi breytt nokkrum landamærum í sögunni. hvað vilt þú fara langt aftur með þetta að skila landi?

inqo, 4.1.2008 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband