Leita í fréttum mbl.is

Rotnar nautakjöt í formaldehýði?

tpwin_divided_large

Það vantar nú eitthvað á þessa frétt af kúariðu og tollskoðunum. Síðast þegar ég vissi rotnaði kjöt ekki í formaldehýði. Það er reyndar einmitt ástæðan fyrir því að líkamspartar eru settir í þennan eitraða vökva, til þess að þeir rotni ekki. Varla hafa japönsku tollverðirnir fiskað kusuna og kálfinn hans Damiens Hirst upp úr formaldehýðbaðinu og eyðilagt þar með verkið? Tja, en annað eins hefur nú gerst.

"Kýr í formaldehýði, úr einu frægasta verki breska listamannsins Damiens Hirst, lenti í ógöngum nýverið á leið sinni á safn í Tókýó. Verkið heitir Mother and Child Divided, og sýnir hálfa kú og hálfan kálf. Fyrir verkið var hann tilnefndur til Turner-verðlaunanna árið 1995.

Japanir lögðu á sínum tíma blátt bann við innflutningi á bresku nautakjöti vegna hættu á útbreiðslu kúrariðu, og því var verk Hirst samviskusamlega stöðvað af japönskum tollvörðum. Það var talsverð þolraun fyrir safnstjóra Mori safnins að sannfæra tollverði um að jafnvel harðsvíruðustu matgæðingar myndu ekki leggja sér listaverkið til munns.

Þegar leyfið var fengið, kom upp annað vandamál, kýrin og kálfurinn voru farin að rotna eftir tollskoðunina, og á endanum þurftu Japanir að útvega „nýja gerð“ verksins."


mbl.is Listkýr í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gaman að lesa þetta.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 11.4.2008 kl. 11:05

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þekkt gróusaga úr Reykjavík 19. aldar er þegar embættisekkja ein hellti reglulega formaldehíði yfir karlinn sinn látinn. Þessi ekkja var dóttir sr. Friðriks Eggerz sem Jón Thoroddsen hafði sem fyrirmynd sr. Sigvalda í Manni og konu. Þessi kona var praktískt hugsandi að ef hún tilkynnti andlátið of snemma yrði hún af pensjóninni sem hún var vön að sækja fyrir karl sinn og kvitta fyrir móttöku hjá Árna Thorsteinssyni síðasta landfógetanum á Íslandi.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 11.4.2008 kl. 12:10

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Kannski hafa þeir laumast til að smakka?

Ásgrímur Hartmannsson, 11.4.2008 kl. 12:32

4 Smámynd: Linda Rós Jóhannsdóttir

mmmm nautakjöt not ekki beint listaukandi lesning.

Linda Rós Jóhannsdóttir, 11.4.2008 kl. 13:26

5 Smámynd: Tryptophan

Linda, ekki listaukandi segiru? Þar er ég þér ósammála.

Hinsvegar er hún ekki lystaukandi. 

Tryptophan, 11.4.2008 kl. 13:53

6 Smámynd: Linda Rós Jóhannsdóttir

og hvað skildirðu ekki Tryptophan ? þetta skildist alveg ágætlega er þaggi ?hvort sem það er listaukandi eða lystaukandi

Linda Rós Jóhannsdóttir, 11.4.2008 kl. 18:00

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Flott verk......dauðlangar að fara rúnt með þér í Listasafninu á sunnudag er reikna með að vera í skólanum....lokaverkefnið þú veist.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.4.2008 kl. 20:48

8 identicon

Bind

i

Cactus Buffsack (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:10

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Svakalega er þetta skemmtilegt!

Edda Agnarsdóttir, 17.4.2008 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30