Leita í fréttum mbl.is

1. maí 2008. Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks

Ögmundur Jónasson er einhver öflugasti talsmaður launþega í þessu landi og BSRB fer fremst í flokki verkalýðsfélaga. Það er enn líf í SFR en mörg hinna eru ansi slöpp og því miður er ASí frekar aulalegt félag. En vonandi tekst þeim að reka af sér slyðruorðið og fara að gera eitthvað. Það er hægt að taka sér Ögmund til fyrirmyndar sem vinnur að mestu leyti í sjálfboðavinnu fyrir félagið sitt og launafólk í landinu.

Enn vinnast sigrar og það er sérstök ástæða til að fagna og óska hjúkrunarfræðingum til hamingju með sigurinn í vinnudeilu við yfirstjórn Landsspítalans og heilbrigðisráðherra. Samstaðan skiptir máli.

Til hamingju með daginn allir. Ég var á frábærum fundi Stefnu, félagi vinstrimanna hér á Akureyri í morgun. Það var fullt hús og fín stemning, Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur Þ. Jónsson, Valgerður Dögg Jónsdóttir, Jón Laxdal, Ingólfur Á Jóhannesson, Þórey Ómarsdóttir, Kristján Hjartarson og Þráinn Karlsson komu öll fram og aðalræðumaður dagsins var Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Hann hélt frábæra og kraftmikla ræðu. Fín stemning á þessum árvissa fundi.

Í kvöld eru Ung vinstri græn á Akureyri með tónleika á Græna hattinum og þar er frítt inn og Svavar Knútur úr Hrauni heldur uppi stuðinu. Þessir tónleikar eru einnig orðinn reglulegur viðburður á 1. maí.

Í Þýskalandi var alltaf mesta fjörið í kröfugöngum Kúrdanna enda eru kröfugöngur og mótmæli bönnuð í Tyrklandi (myndin er þaðan af spiegel.de). Nýnasistar og hægri öfgamenn reyna að skemma baráttudaginn í Þýskalandi en tekst það sem betur fer ekki. 10.000 manns mótmæltu nýnasistum í Hamborg í dag. Það er mikilvægt að stöðva frjálshyggjuna, hervæðinguna, einkavæðinguna og skerðingu lífskjara sem nú viðgengst og Samfylkingin virðist ætla að taka þátt í með íhaldinu. Það er sorglegt en er alltaf að koma betur í ljós.

Hér er mynd frá 1. maí í Pakistan úr Sueddeutsche Zeitung.

image_fmbg_0_3


mbl.is Ögmundur: Samfélagið þarf að ná sáttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Frikkinn

ég var í Hamborg á 1.maí fyrir mörgum árum og sá þá kröfugöngu sem endaði í götuóeirðum og var það mögnuð sjón, og áttum við bókstaflega fótum fjör að launa.

Frikkinn, 1.5.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Mér sýnist ástandið þar vera svipað núna. Götuslagsmál og læti. En það þarf að stoppa þessa hægri öfgamenn en best er að gera það án þess að beita ofbeldi. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 1.5.2008 kl. 15:17

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með daginn. Ó klukkan er orðin 12 en samt sem áður sendi ég þetta.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.5.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.