Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Friðsamleg mótmæli á Akureyri

Reiði fólks er að aukast og það er ekki einkennilegt þegar ráðamenn ljúga að okkur á hverjum degi og alltaf er að koma betur og betur í ljós á þeir vissu mun meira og fyrr en þeir sögðu. Það er skandall að Geir H. Haarde, einn aðal brennuvargurinn, skuli enn sitja sem forsætisráðherra og gera illt verra á hverjum degi. Hann og Davíð Oddsson sitja í skjóli Samfylkingarinnar sem getur átt það við sína samvisku sem ég vona að enn sé til staðar hjá sumum þar innanbúðar.

Ég mæli ekki með skemmdarverkum eða ofbeldi en hvet fólk til að mæta og mótmæla friðsamlega. Hér er tilkynning um mótmæli sem fara fram hér á Akureyri laugardag, á sama tíma og mótmæli í höfuðborginni:

 

Göngum til lýðræðis á Akureyri

Laugardaginn 15. nóvember kl. 15.00 verður farin samstöðuganga á Akureyri vegna efnahagsástandsins í landinu frá Samkomuhúsinu inn á Ráðhústorg. Tilgangurinn með göngunni er að bæjarbúar sýni samstöðu og samhug, láti í ljós skoðun sína á ástandinu og láti rödd sína heyrast. Talsmenn göngunnar leggja áherslu á að hér sé um óflokkspólitíska uppákomu að ræða, aðeins andsvar við því hvernig komið er fyrir íslensku samfélagi og áskorun um að hafist verði handa við að byggja upp nýtt samfélag þar sem mannauður verði í fyrirrúmi. Einnig er verið að sýna samstöðu með friðsælum mótmælum sem haldin verða á sama tíma í Reykjavík.
 
Látið boðin berast!

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórs í síma 663 2949


mbl.is Máluðu Valhöll rauða í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný vefmiðill væntanlegur

Það eru góðar fréttir að Björg Eva Erlendsdóttir sé orðinn ritstýra á nýjum vefmiðli. Hún hefur staðið sig afar vel hjá útvarpinu og 24 stundum og er ein okkar besta fréttakona, gagnrýnin og með fagmennsku í fyrirrúmi. Það veitir heldur ekki af að fá nýjan miðil sem bendir á lausnir og tillögur um breytingar á þessum tímum og veitir aðhald. Ég vænti mikils af þessum nýja vefmiðli sem vonandi fer á netið sem fyrst.

Svo eru allir velkomnir á opnunina mína í Hafnarhúsinu í dag, fimmtudag klukkan 17 eða þá bara að koma seinna ef það hentar betur. Það er alltaf ókeypis í Listasafn Reykjavíkur. Hér er hægt að lesa meira um sýninguna og hér er síða Listasafnsins.


mbl.is Smuga á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorsteinn Gíslason opnar sýninguna "Virði - Worth" á Café Karólínu

img_0525.jpg

Þorsteinn Gíslason

Virði - Wort

01.11.08 - 05.12.08   
 

Café Karólína // Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755

 

Þorsteinn Gíslason opnar sýninguna "Virði - Worth" á Café Karólínu laugardaginn 1. nóvember 2008 klukkan 14.

Um verkið: Verkið ”Virði” er klisjuverk. Leiðinlegt og óspennandi en í leiðinlegheitum sínum spyr það okkur um mikilvægi hlutanna. Hvað má glatast? Hvað ekki?

Um listamanninn: Þorsteinn Gíslason, Steini, útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 2006. Hann hefur tekið þátt í samsýningum og haldið nokkrar einkasýningar. Hann er annar eigandi gallerís Víð8ttu601.

Sýningin stendur til 5. desember 2008.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn í steini66@nett.is og í síma 846 1314

Næstu sýningar á Café Karólínu:
06.12.08 - 02.01.09    Jóna Bergdal Jakobsdóttir
03.01.09 - 06.02.09    Herdís Björk Þórðardóttir
07.03.09 - 03.04.09    Inga Björk Harðardóttir
04.04.09 - 01.05.09    Helga Sigríður Valdemarsdóttir
02.05.09 - 05.06.09    Hertha Richardt
06.06.09 - 03.07.09    Georg Óskar Manúelsson
04.07.09 - 31.07.09    Lind Völundardóttir

Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson


Þjóðin hefur ekki efni á Sjálfstæðisflokknum

480705.jpg

Það er fullkomin hræsni að fulltrúar flokksins sem er búinn að draga þjóðina með sér ofan í skuldafen og gjaldþrot skuli koma með einhverjar "ráðleggingar" um hvað beri að gera til að "koma þessu í lag". Forystumenn Sjálfstæðisflokksins eru búnir að kasta okkur aftur um 40 ár of "lausnirnar" sem þeir bjóða svo uppá eru: að sleppa umverfismati, stækka álverin og byggja fleiri, virkja meira án þess að fram fari umhverfismat!

Og þeir eru ekki að djóka þessir karlar frá þarsíðustu öld. Þeir koma upp um fávisku sína og þröngsýni á ræðupöllum Alþingis og tala um að þjóðin hafi ekki efni á því að þingið "sé að flækjast fyrir" því að mengað verði meira og ekkert hugsað um náttúruna og framtíðina. Málið er að þessir karlar ættu að hafa vit á því að þegja og skammast sín fyrir sína gjaldþrota frjálshyggjustefnu. En það gera þeir auðvitað ekki.

Það er furðulegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli enn vera við völd eftir allt og það með stuðningi Samfylkingarinnar þegar staðreyndin er sú að þjóðin hefur ekki efni á þeirra gjaldþrota frjálshyggjustefnu. Það er komið nóg!


mbl.is Allt í fína á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar bjarga Íslandi!

glitnir.png

Einkennilegt ástand í þessu landi okkar. Þegar útrásardrengirnir eru að verða búnir að setja bankana (sem þeir fengu gefins fyrir nokkrum árum) á hausinn og hafa dregið þjóðina með þá eru það Rússar sem eru þeir einu sem vilja lána okkur pening og redda okkur þar með (í bili).


mbl.is Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju ljósmæður!

478796A Ljósmæður sýndu baráttuþrek og létu ekki buga sig í þessu fyrsta verkfalli í sögu ljósmæðra á Íslandi. Fjármálaráðherra og ríkisstjórnin varð sér til ævarandi skammar og merkilegt að ríkissáttasemjari varð að bjarga málunum. Verðandi mæður og feður geta nú andað léttar og ljósmæður horft fram á veg með bætt kjör. Ríkisstjórnin ætti hinsvegar að skammast sín.
mbl.is Miðlunartillagan samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott

Já, ljómandi gott að þessum vatnalögum hafi verið frestað aftur, enda eru þau meingölluð. Það er sérstaklega ánægjulegt að Sigurður Kári Kristjánsson skuli einnig vera kominn á þessa skoðun. Það sannar vonandi enn og aftur að batnandi mönnum sé best að lifa.


mbl.is Einhugur um að fresta gildistöku vatnalaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn er lasinn...

burtxd.jpg...og ekki bara með eitthvert smá kvef heldur eitthvað miklu verra. Vonandi batnar honum nú samt og lagast af þessar frjálshyggju-einkavinavæðingu. Sem er alvarlegur sjúkdómur og bitnar verst á þeim sem síst skyldi, nefnilega saklausu fólki í þessu landi. Á meðan ætti flokkurinn að fara í veikindaleyfi til að að jafna sig.
mbl.is Uppgjör Óla Björns við Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég myndi ekki kjósa hana aftur

Það er að segja ef ég hefði kosið Sjálfstæðisflokkinn (Sjálftökuflokkinn), sem ég hef sem betur fer ekki gert hingað til og mun vonandi aldrei slysast til að gera. En Þorgerður Katrín léti skattgreiðendur sennilega einnig borga fyrir maka sinn aftur og aftur svo lengi sem hún gæti. Enn ein ástæðan til að gefa íhaldinu langt og verðskuldað frí (launalaust!)
mbl.is Myndi taka þessa ákvörðun aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velkomin til landsins

Rauði krossinn og stuðningsfjölskyldur flóttafólksins eiga heiður skilinn. Við eigum að taka vel á móti nýjum Íslendingum. Konurnar og börnin eru fórnarlömb aðstæðna sem þau völdu sér ekki og það er okkar mannúðlega skylda að rétta fram hjálparhönd til aðstoðar.

Anna Lára Steindal hjá Rauða krossinum segir: „Enginn gerir það að gamni sínu að rífa sig upp frá heimkynnum sínum og fara á jafnframandi stað“. Höfum það í huga. Ég er viss um að Akurnesingar munu taka vel á móti fólkinu sem vonandi sér fram á betra líf og framtíð.


mbl.is Flóttafólkið brosti við heimkomuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.