Leita í fréttum mbl.is

BLATT BLAÐ númer 62 er komið út

blatt62_1.jpg

BLATT BLAÐ númer 62 er komið út. Eftirtaldir höfundar eiga verk í tímaritinu að þessu sinni: Bastien Anselme, Libia Castro & Ólafur Ólafsson, Knut Eckstein, Hlynur Hallsson, Peter Pentergrass, Alexander Steig og Anja Teske. Forsíðuna fyrir BLATT BLAÐ #62 prýðir verk eftir Libiu Castro & Ólaf Ólafsson: LANDIÐ ÞITT ER EKKI TIL sem var utan á Listasafni Íslands á sýningu þeirra árið 2012.


BLATT BLAÐ er tímarit þar sem höfundar geta sent inn efni til birtingar og er byggt á hugmynd Dieter Roth um “Tímarit fyrir allt” sem hann gaf út um árabil.


BLATT BLAÐ kemur út í 100 tölusettum eintökum og er 20 x14 cm að stærð og tölublað #62 er 16 síður. Alþjóðlegt tímaritanúmer er ISSN 1431-3537.


Hlynur Hallsson hefur gefið tímaritið BLATT BLAÐ út frá árinu 1994 og forlag höfundanna kemur einnig að útgáfunni. Tímaritið kostar 400 krónur og fæst í Flóru á Akureyri og í Safnbúð Listasafns Íslands. Hægt er að panta áskrift og kaupa eldri tölublöð fyrir utan þau sem eru uppseld með því að senda póst á hlynurhallsson(hjá)gmail.com.


Nánari upplýsingar ásamt forsíðum og höfundum í eldri eintökum er að finna á: hallsson.de/blattblad.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband