Leita í fréttum mbl.is

Maðurinn á bakvið velgengni Íslands

thomas.b

Hér er komin rétt mynd af Tómasi B. bílstjóra. Fann þessa mynd í Fréttablaðinu í dag en alnafni hans var víst blaðamaður á héraðsfréttablaði í mið Þýskalandi. En hafa skal það sem sannara reynist og hér er semsagt réttur Tómas mættur og hann sér til þess að við vinnum Danina í dag! (Leiðrétt 30. jan.)

Mér finnst að við ættum að heiðra Thomas Bockelmann sérstaklega. Ég fann mynd af Tómasi á netinu er það gæti auðvitað verið að þetta sé bara alnafni hins rétta Tomma svo ég tek enga ábyrgð á þessari myndbirtingu. (Svo maður lendi nú ekki í sama veseni og DV um árið.) Þetta er allavega skemmtileg frétt af mbl.is

"Alfreð Gíslason þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik óskaði eftir því við forsvarsmenn heimsmeistaramótsins í Þýskalandi að sami bílstjórinn yrði með liðinu í milliriðlinum í Dortmund og Halle. Á fréttasíðu heimsmeistaramótsins vakti þessi ósk Alfreðs athygli enda var hann eini þjálfarinn sem bar upp slíka ósk við mótshaldara.

Thomas Bockelmann sá um að aka hópferðabifreið íslenska liðsins í Magdeburg og óskaði Alfreð eftir því að Bockelmann myndi fylgja íslenska liðinu í millriðlana. Alfreð þekkir Bockelmann ágætlega því hann hefur séð um að koma handknattleiksliðinu Magdeburg á milli keppnisstaða á undanförnum árum en Alfreð var sem kunnugt er þjálfari Magdeburg á sínum tíma."

Það er augljóst að við íslenska liðið vinnur Pólverja í dag með þennan frábæra bílstjóra undi stýri.


mbl.is HM: Alfreð valdi sama bílstjórann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Er ekki bara að skella Fálkaorðu á hann strax - eru nokkrir íslendingar eftir sem hafa ekki fengið hana ? - ó jú ég en það hlýtur að koma að mér næst

Rúnar Haukur Ingimarsson, 25.1.2007 kl. 10:26

2 identicon

Áfram Ísland! Mikið óskaplega langar mig að vera þarna!

Arnar Gunnarssson (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 13:37

3 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Ætli að hann hafi verið fullur undir stýri í dag......eða með hugann á Spáni

Júlíus Garðar Júlíusson, 25.1.2007 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.