Leita í fréttum mbl.is

Lögreglumaður stakk af frá ákeyrslu

agl Maður les nú Austurgluggann reglulega og enn oftar kíki ég á netútgáfuna af honum. Þessi frétt úr Austurglugganum er ansi merkileg og hlýtur að hafa einhverja eftirmála. Lögreglan ætti auðvitað að vera fyrirmynd annarra og svona gera menn bara ekki. Hér er fréttin:  "Íbúi á Seyðisfirði varð fyrir því að keyrt var á snjósleða sem hann átti sem stóð við íbúðarhús hans. Eigandinn sá þegar bíl var bakkað á sleðann, sem skemmdist töluvert, ökumaður bílsins kom út úr bílnum skoðaði sleðann fyrst lítillega og síðan bílinn sem skemmdist lítið. Ökumaðurinn horfði svo flóttalega kringum sig til að gaumgæfa hvort einhver sæi til hans,hélt að svo væri ekki og læddist burtu af vetttvangi án þess að láta vita. Eigandinn náði hinsvegar númerinu af bílnum sem óhappinu olli, brúnum amerískum jeppa og kærði til lögreglu. Við rannsókn málsins kom í ljós að ökumaðurinn sem óhappinu olli er starfandi lögreglumaður."


mbl.is Allir helstu vegir landsins færir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Oft er heyrandi í holti er sagt eða ættum við bara ekki að segja oft er einn í glugga með myndavél. Ha Ha . Hélt ég væri fyndin en var víst ekki.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 9.2.2007 kl. 16:31

2 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Er bara ekki það sama um lögguna og Óla forseta, stundum ertu lögga stundum ertu bara þú sjálfur ...................... - Eitt yfir alla allt yfir einn  

Rúnar Haukur Ingimarsson, 9.2.2007 kl. 18:26

3 identicon

Var hún einhvern tímann góð fyrirmynd...

ég er náttúrulega ekki einu sinni orðin þrítug, það hlýtur að hafa verið fyrir minn tíma

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 23:50

4 Smámynd: GK

Þetta var falleg saga...

GK, 10.2.2007 kl. 21:29

5 Smámynd: Ólafur fannberg

svona er löggan i dag

Ólafur fannberg, 11.2.2007 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.