28.2.2007 | 08:36
Sjálfstæðisflokkurinn er stóriðjuflokkurinn
Það er athyglivert að samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru kjósendur sem hafna stækkun álvers Alcan í Straumsvík í meirihluta innan allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins. Meira að segja meirihluti kjósenda Framsóknarflokksins vill ekki þessa stækkun. Það er hinn fölgræni fálki Sjálfstæðisflokksins sem einn allra flokka vill þessa vanhugsuðu stækkun. Það eru ný tíðindi. Umhverfismálin eiga ekki upp á pallborðið hjá 70% kjósenda d-listans. Hér er öll fréttin:
"Meirihluti andvígur stækkun í Straumsvík
Rúm 63 prósent segjast andvíg stækkun álversins í Straumsvík. Konur eru líklegri til að vera andvígar stækkun en karlar. Einungis meirihluti stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins er fylgjandi stækkun.
Meirihluti landsmanna er andvígur stækkun álversins í Straumsvík, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 63,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar segist andvígt, en 35,9 prósent eru stækkun fylgjandi.
Ef litið er til þess hver afstaða fólks er til álversins eftir því hvaða flokk það myndi kjósa, væri gengið til kosninga nú, kemur fram nokkur munur.
Stuðningsfólk Vinstri grænna er flest mótfallið stækkun álversins og segjast 93,3 prósent þeirra vera andvíg stækkun. Þá eru þrír fjórðu, eða 75,6 prósent stuðningsfólks Samfylkingarinnar, andvíg stækkun álversins í Straumsvík.
Meirihluti stuðningsfólks Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins er einnig andvígur stækkun, en meðal þeirra er meirihlutinn naumari; 55,0 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Frjálslynda flokkinn og 53,8 prósent þeirra sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn.
Það er einungis meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins sem finnst meirihlutastuðningur við stækkun álversins í Straumsvík. 70,5 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn segjast styðja stækkunina.
Ef litið er til þeirra sem ekki gefa upp hvaða flokk þeir myndu kjósa segist 64,1 prósent vera á móti stækkun, en 35,9 prósent fylgjandi. Af þeim segjast 80,6 prósent þeirra sem ekki myndu kjósa eða skila auðu vera á móti stækkun, 79,3 prósent þeirra sem neita að gefa upp hvað þeir myndu kjósa eru andvíg stækkun og 59,0 prósent þeirra sem eru óákveðnir eru mótfallin stækkun álversins.
Lítill munur er á afstöðu fólks eftir búsetu til stækkunar. Þannig segjast 63,9 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu vera á móti stækkun, en 62,0 prósent íbúa á landsbyggðinni.
Meiri munur er á afstöðu til stækkunar eftir kyni. 68,0 prósent kvenna eru andvíg stækkun, en 58,3 prósent karla.
Hringt var í 800 kjósendur laugardaginn 24. febrúar og skiptust svarendur hlutfallslega eftir kjördæmum og jafnt eftir kyni. Spurt var; Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) stækkun álversins í Straumsvík? 70,9 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar."
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:54 | Facebook
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Aldís Gunnarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Rúnar Ingason
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Lilja
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Anna Þorbjörg Jónasdóttir
- Ari Matthíasson
- Arinbjörn Kúld
- arnar valgeirsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Auðun Gíslason
- Árni Árnason
- Árni "Gamli" Einarsson
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ása Richardsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Ásta Möller
- Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
- Ásta Svavarsdóttir
- Baldur Gautur Baldursson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Barði Bárðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Bergþóra Jónsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- BookIceland
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Davíð
- Dofri Hermannsson
- DÓNAS
- Edda Agnarsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Elfar Logi Hannesson
- Elín Sigurðardóttir
- Ellý Ármannsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- erlahlyns.blogspot.com
- ESB og almannahagur
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Forvitna blaðakonan
- FreedomFries
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Gammur drils
- Gaukur Úlfarsson
- Geiri glaði
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Tryggvason
- Goggi
- gudni.is
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- halkatla
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Kristinn Haraldsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Bjarnason
- Haraldur Davíðsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Haukur Vilhjálmsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hildur Sif Kristborgardóttir
- Hilmar Björgvinsson
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hjalti Már Björnsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlédís
- Hlynur Sigurðsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hreiðar Eiríksson
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Ibba Sig.
- Indriði Haukur Þorláksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Ingimar Björn Davíðsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- íd
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Björnsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jónas Viðar
- Jón Bjarnason
- Jón Hafsteinn Ragnarsson
- Jón Hrói Finnsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Kolbrún Kolbeinsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristján Pétursson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Linda Rós Jóhannsdóttir
- Listasumar á Akureyri
- LKS - hvunndagshetja
- Logi Már Einarsson
- Magnús Bergsson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Paul Nikolov
- Páll Helgi Hannesson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Thayer
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Björgvin
- Pétur Þorleifsson
- Pollurinn
- Ragnar Bjarnason
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Ransu
- Rauður vettvangur
- Róbert Björnsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Dögg
- SeeingRed
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigrún Dóra
- Sigtryggur Magnason
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Hólm Gunnarsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón M. Egilsson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sól á Suðurnesjum
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Steindór Grétar Jónsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Stjórnmál
- Svansson
- Svanur Jóhannesson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- SVB
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sverrir Þorleifsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Már Sævarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sölvi Breiðfjörð
- Thelma Ásdísardóttir
- Theódór Norðkvist
- Tinna Eik Rakelardóttir
- Tíðarandinn.is
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- TómasHa
- Trúnó
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tryggvi H.
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Úrsúla Jünemann
- Valgeir Bjarnason
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- Viðar Eggertsson
- Vika símenntunar
- Vilberg Helgason
- Vinir Tíbets
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórbergur Torfason
- Þórdís tinna
- Þór Gíslason
- Þór Jóhannesson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
Athugasemdir
Hún er orðin gatslitin og útþvæld þessi græna skikkja sem VG hefur sveipað sig. Þeirra umhverfisstefna gengur út á að vera móti erlendum auðhringjum og virkjunum, en ekkert heyrist frá bóndasyninum Steingrími og hans hjörð um ofbeit sauðfjár og uppblásturs lands af þeim sökum. Ekki orð um skógrækt, en VG vill efla almenningssamgöngur og svo mæta allir besservissarnir á einkabílnum á landsþing, einn í hverjum bíl. Trúverðugleiki VG í þessum efnum er neðan frostmarks.
Sannleikurinn er sá að VG samanstendur af þremur þáttum:
-Öfgasósíalistum sem eru á móti einkaframtakinu og erlendum auðhringum og vilja endurvekja "dásemdir" ríkisrekstrar.
-Öfgafeministum sem sjá ímyndað karlaveldi í hverju skúmaskoti, allstaðar eru karlar að kvelja konur. Fóirnarlambavæðingin í þessum hluta þekkir engin landamæri, konur eru fórnarlömb fyrir það eitt að vera kona og undantekningalaust er sökudólgurinn einhver kallpungur sem hið almáttuga ríkisvald þarf að temja og gera heimilisvænt svo aumingja bjargarlausa litla konan geti fengið að njóta sín.
-Öfgaframsóknarmönnum sem vilja ríkisstyrktan landbúnað á kostnað neytenda og landverndar.
Fyrstu tveir þættirnir einkennast fyrst og frems af þeim þráláta sjúkdómi vinstri-öfgamanna að menntaðir félagsfræðingar og sjálfskipaðir besservisserar séu miklu gáfaðri en hinn ómenntaði og aumi alþýðumaður og þurfi því að hafa vit fyrir skrílnum. Framsóknarhlutinn gengur einfaldlega út á það að beita neytendur ofbeldi í krafti stjórnvalds. Þetta er VG í hnotskurn, aumara gerist það ekki.
Þrándur (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 09:58
Vinstri Grænir hafa sýnt það í verki að þeir vilja vernda útsýni á kostnað vistvænna orkugjafa eins og raforkuverin okkar eru.
Þetta verður allt virkjað á næstu árum .... það stefnir í orkukreppuúm miðja öldina og C02 útblástur eru 0,0 kg per vatnsaflsvirkjun. Sagnfræðingar framtíðarinnar munu klóra sér í hausnum vegna þessarar stefnu VG.
kveðja
Sveinn
Sveinn V. Ólafsson (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 21:22
Að gefnu tilefni þá er þessi Moggalygi um að allir hafi komið á bílum á landsfund VG (og núna einn í hverjum) orðinn frekar þreytt. Það er ekki hægt að taka fólk alvarlega sem hefur mál sitt á svona uppspuna.
Ég óttast ekki dóm framtíðarinnar um stefnu VG í stórvirkjanamálum, en ég held að þeir sem þykjast geta afgreitt 10 ára umræðu um þau stóru mál með einni fullyrðingu muni seint skora mikið fyrir þeim dómstól.
Annars sendi ég bestu kveðjur og þakka fyrir góðan fund um helgina og fagna þeim mörgu góðu stefnumálum sem þar voru sett á dagskrá.
Sverrir
Sverrir (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 09:09
Mér er nokk sama hvort umræðan er 10, 20 eða 30 ára hún er ekki að skila neinu til framtíðar. Hvernir í ósköpunum ætla VG að taka á CO2 vandanum ? Hvað gera aðrar þjóðir - leita af möguleikum á að byggja hrein orkuver. Þetta málefni er grafalvarlegt og þarf að leysa. VG munu ekki leysa nein loftlagsmál eða réttar gera neitt til þess. Minni á að sú umræða er meira en 10 ára. VG gengur svo hart fram í stefnumálum sínum að þeir átta sig ekki á hvert þeir eru raunverulega að fara. Umhverfismál verða aðeins leyst með framsýni, með því að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og sáttargjörð þar sem almenningur, stjórnvöld og atvinnulífið sammælist um lausnir sem duga umhverfinu og hagkerfinu.
Kennisetningur, forræðishyggja og íhaldsstefna VG er þar vita gangnslaus. Því miður - annars myndi fleirri skrifa upp á hana og taka henni mjög fagnandi. VG virðist trúa því að þá aðeins ef stór hluti þjóðarinnar er ósammála þeim þá séu þeir á einhverri "réttri" leið. Hum.... fólk kaupir skynsemi, rök og lausnir sem duga.
Lausnir þær sem VG eru að bjóða fólki í umhverfismálum eru gjörónýtar!
Kveðja
Sveinn
Sveinn V. Ólafsson (IP-tala skráð) 3.3.2007 kl. 01:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.