Leita í fréttum mbl.is

Kraftur í Saving Iceland

670&thumb=1

Saving Iceland heldur úti flottri heimasíðu og þau eru afar virk í baráttunni fyrir verndun náttúru Íslands, sannir íslandsvinir. Hótanir útlendingastofnunar um að reka Miriam Rose úr landi eru fáránlegar og allt tal um brot á grunngildum út í hött. Þessi herferð íslenskra stjórnvalda gegn þeim sem berjast á friðsaman hátt fyrir náttúrunni er furðuleg. Sem betur fer blöskrar flestu hugsandi fólki þessi aðför að mannréttindum. Saving Iceland standa fyrir tónleikum á Organ miðvikudagskvöldið 10. október. Þar sem fram koma nokkrar frábærar hljómsveitir eins og Authentic, Tveir Leikmenn, Hraun, Dys og Jan Mayen. Nánari upplýsingar um tónleikana eru hér. Ég verð í München og kemst ekki en hvet alla til að skella sér á frábæra tónleika.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

ég kíkti á síðuna þína og verð að segja þér að ég er einlægur aðdáandi þinn, aðdáun mín er vegna þess að þú ert frábær listamaður og frábært eintak af manni. Þú opnar fyrir mér nýjan skilning og víkkar út mína fátæklegu hugmyndir um list.

Hlakka til að verða nemandi þinn aftur.

ps. og svo ertu svo helv... öflugur í pólitíkinni.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 3.10.2007 kl. 13:58

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir fögur orð í minn garð :) Hér er tengill á heimsíðuna mína þar sem hægt er að sjá myndir af sýningunni í DaLí galleríinu, fyrir alla þá sem komast ekki. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 3.10.2007 kl. 17:58

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Stjórnleysi?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.10.2007 kl. 19:51

4 Smámynd: Jens Guð

  Mér þykir meiriháttar kjánalegt að mótmæli Miriam Rose séu skilgreind sem eitthvað sem að stangast á við grunngildi íslenskrar þjóðar.  Síðan hvenær eru mótmæli eitthvað sem að gengur gegn grunngildum íslensku þjóðarinnar?  Ég hef frá unglingsárum þrammað Keflavíkurgöngur,  staðið mótmælastöður við rússneska sendiráðið og bandóðuríkja sendiráðið.  Það hefur aldrei hvarflað að mér að ég væri að ganga gegn einhverjum grunngildum íslensku þjóðarinnar.  Ég er fæddur og uppalinn í Sjálfstæðisflokknum.  Gerðist þar ungur uppreisnarmaður gegn hernaði og stríðsglæpum Bandóðuríkjanna í Víetnam.  Það er að mínu mati hluti af lýðræðislegu hlutverki fólks að fá að mótmæla óréttlæti.  Jafnvel eitt af grundvallar hornsteinum lýðræðis að hafa frelsi til að mótmæla.     

Jens Guð, 4.10.2007 kl. 03:09

5 Smámynd: Hlynur Hallsson

Nákvæmlega Jens, eins og talað frá mínu hjarta. Mótmæli hafa oft haft jákvæð áhrif en stundum eru mótmæli barin niður harðri hendi af stjórnvöldum samanber Búrma. Jens, þú hlýtur að skella þér á tónleikana. Ég var að póst frá honum Hugleik Dagssyni og hann ætlar að opna sýningu á teikningum á efri hæðinni á Organ á föstudaginn svo það verður hægt að sjá sýninguna hans og tónleikana á miðvikudaginn. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 4.10.2007 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.