Leita í fréttum mbl.is

Mannréttindi fótum troðin í Kína

Og Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar mæta til að taka þátt í veislunni í boði böðlanna. Það er svartur blettur á utanríkisstefnu Íslands. Birgitta Jónsdóttir hefur staðið vaktina til að benda á óréttlætið sem á sér stað í Kína. Skoðanakúgun, pyntingar, aftökur eftir sýndarréttarhöld. Allt þetta er hluti af ástandinu í Kína þar sem eru stjórnvöld sem kenna sig við kommúnisma en eru í raun svartasta myndin á kapítalisma. Við eigum að mótmæla þessu og það er tækifæri í kvöld fyrir hvert og eitt okkar að gera það úr því að stjórnvöld hafa ekki dug í sér til að gera neitt og taka jafnvel þátt í veislunum. Setjum kerti út í glugga eins og milljónir manna um allan heim, til stuðnings frjálsu Tíbet. Og hér á Akureyri mun fara fram kertafleyting á tjörninni við Minjasafnið til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprengja bandaríkjastjórnar. Mætum þar einnig.


mbl.is Tíbetar mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já, það er skömm að yfirmenn þjóðanna mæti í þessa veislu. það hafa verið miklar umræður um þetta í dk. og það er að sjálfsögðu mjög gott og sumir hafa valið að fara ekki sem er að sjálfsögðu ennþá betra. 

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 10:37

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Skoðanakúgun, pyntingar, aftökur eftir sýndarréttarhöld. Allt þetta er hluti af ástandinu í Bandaríkjunum þar sem eru stjórnvöld sem kenna sig við kapítalisma en eru í raun á hraðri leið í svörtustu myndina á einhvers konar póstmódernískum nýkommúnisma.

Allur þessi óþverri í austri og vestri er sem sagt að renna saman í nokkurn veginn sama alræðisóþverrann. Það er því til lítils að fyrir ráðamennina hérna að skríða fyrir vestrænum alræðis- og gervilýðræðissinnum og stríðsglæpamönnum og monta sig beinlínis af vinskap við þá en neita austrænum kollegum þessarra vina sinna um sömu þjónustu.

Baldur Fjölnisson, 7.8.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband