Leita í fréttum mbl.is

Systurflokkur Vinstri grænna vinnur stórsigur á Grænlandi

kuupik_kleist.jpgInuit Ataqatigliit (IA) vann stórsigur í þingkosningum, sem fóru fram á Grænlandi í gær. Þetta voru aðrar kosningarnar í röð sem IA vinnur afgerandi sigur og fékk nú 43,7% atkvæða og 14 þingmenn af 31 á grænlenska landsþinginu. Þeim tókst þannig að toppa sigur VG frá því í vor glæsilega.

Spilling hefur einkennt grænlensk stjórnmál líkt og hér á landi og það er ánægjulegt að Inuit Ataqatigliit sé treyst til að taka við og endurvinna traust fólks á stjórnmálum. Þann 21. júní taka gildi lög sem færa Grænlendingum aukna sjálfsstjórn og vonandi hefur Kuupik Kleist, formaður IA þá þegar myndað nýja stjórn á Grænlandi. Það eru að renna upp nýir og spennandi tímar á Grænlandi og ánægjulegt að systurflokkur Vinstri grænna leiði uppbygginguna.

Til hamingju með sigurinn Grænlendingar!


mbl.is Inúítaflokkurinn vann stórsigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samgleðst. Mér sýnist SF í Danmörku vinni ESB kosningarnar. Fulltrúar SF er mjög sannfærandi í mikilvægi sambandsins og sérlega Villy Sovndal.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 09:57

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já svo sannarlega til hamingju, stórglæsilegt hjá þeim

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.6.2009 kl. 11:29

3 identicon

Helsta spillingin er að embættismenn fengu að kaupa íbúðir sem voru í eigu heimastjórnarinnar á verði sem er helmingur af gangverði, Það er ekki mikið í samanburði við það sem gerist hér. Ég les alltaf : www.sermitsiak.gl Sem er vefsíða helsta fréttablaðsins á Grænlandi. Já það vantar ekki að Jonatan Motsfelt er umdeildur og stundum ásakaður um að hneyksla fólk með fylliríum og fleiru. Hann er giftur íslenskri konu. Í vetur var hann kærður, Það mál er enn í meðferð (segi ekki meira). Orðið "Siumut" þýðir "áfram". Ég dreg af því þá ályktun að þar sé nokkurskonar Framsóknarflokkur á ferðinni. Inuit Atagatigit er þjóðernissinnaður vinstri flokkur. Alltaf svolítið ósáttur við hvernig íslenskir fréttamenn bera fram nafnið á flokknum en það skiptir kannski ekki máli.

Þetta voru góð úrslit kosnninganna hjá nágrönnum okkar.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband