7.5.2008 | 15:38
Íshokkípeysan mun koma upp um hann
Drengurinn er í einhverju íshokkíliði sýnist mér. Best er samt að nota þyrluna til að finna hann, einkennilegt að það hafi ekki tekist! Lögreglan er ekki að skora mörg stig þessar vikurnar. Það er greinilega þörf á aukavaraliði, óeirðalöggu og víkingasveitum.
![]() |
Myndir birtar af bankaræningja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
7.5.2008 | 11:48
"Lágmarksgæsla í öðrum borgarhlutum núna..."
Bíddu... eru þetta skilaboð til annarra bankaræningja og glæpona í borginni? Nú er tækifærið til að ræna og rupla, allir af stað! Er það ekki frekar ábyrgðarlaust af varðstjóra lögreglunnar að lýsa þessu yfir?
"Það er allt tiltækt lið að leita að ræningjanum, það er bara lágmarksgæsla í öðrum borgarhlutum núna," sagði varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins fyrir skömmu."
Vonandi næst bankaræninginn fljótt og vel svo aðrir borgarbúar í "öðrum borgarhlutum" geti verið óhultir.
![]() |
Enn er leitað að bankaræningja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2008 | 09:45
Einkaskólinn óhagstæður fyrir foreldra og Akureyrarbæ
Hér á eftir er bókunin eins og ég lagði hann fram á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar. Haft er eftir Gunnari Gíslasyni fræðslustjóra í þessari frétt á mbl.is að: "Ef foreldrar eru að greiða meira þá er það eitthvað sem samið hefur verið sérstaklega um." Ég get upplýst hér að foreldrar barna í Hólmasól þurfa að greiða 1.900 krónur aukalega á mánuði auk venjulegra gjalda og það er ekki "samið sérstaklega" um það við foreldrana heldur bara rukkað og flestir borga bara með boðgreiðslum og pæla ekkert í þessu. Gjöldin skiptast svona:
Netgjald 500 kr.
Foreldragjald 500 kr. og svo
Annað 900 kr.
Aðalmálið er hinsvegar að samningurinn við Hjallastefnuna ehf er vísitölubundinn og ríkur því upp í 12% verðbólgu meðan aðrir leikskólar sitja eftir og þurfa að herða sultarólina þegar matarkarfan hækkar. Það sitja ekki allir við sama borð og það er ekki í lagi.
Hér er bókunin:
"Nú stefnir í að leikskólinn Hólmasól verði Akureyrarbæ enn kostnaðarsamari en fyrirséð var. Samningur bæjaryfirvalda við "Hjallastefnuna ehf" er vísitölubundinn meðan aðrir leikskólar á Akureyri fá fasta upphæð árið 2008, þrátt fyrir um 12% verðbólgu. Hvert pláss á Hólmasól er nú þegar dýrara fyrir Akureyrarbæ og foreldra en pláss á öðrum leikskólum og ef fram heldur sem horfir mun Akureyrarbær greiða hlutfallslega mun hærri upphæð fyrir Hólmasól en aðra leikskóla í bænum.
Það er því ljóst að einkarekstrarstefna Sjálfstæðisflokks hefur enn og aftur beðið skipsbrot og nú bitnar það á foreldrum barna á Akureyri og Akureyrarbæ. Þessa mismunun þarf að leiðrétta.
Fjölbreytt skólastarf er mikilvægt og Vinstrihreyfingin grænt framboð styður heilshugar frumkvæði foreldra og fjölbreytni í skólastarfi á öllum stigum. Nú þegar er kynskipting eða svokölluð Hjallastefna rekin með góðum árangri í leikskólum hjá Reykjavíkurborg og víðar á mun hagkvæmari hátt en Hjallastefnan ehf treystir sér til að gera. Akureyrabær mætti gjarnan beita sér fyrir enn fjölbreyttari stefnu í starfi leikskóla t.d. í samvinnu við foreldra með stefnur eins og Waldorfstefnuna, Rudolf Steiner eða Reggio Emilio svo nokkur dæmi séu nefnd. Leikskólar á Akureyri eru afar fjölbreyttir og leggja áherslu á mismunandi þætti eins og heimsspeki, fjölmenningu og hreyfingu svo dæmi séu tekin. Leikskólar Akureyrar eru afar vel reknir og mannaðir hæfu og menntuðu starfsfólki og til fyrirmyndar. Metnaðarfull símenntunaráætlun þeirra liggur fyrir en því miður hefur skólanefnd Akureyrarbæjar ekki yfirliti yfir símenntunaráætlun fyrir Hólmasól og Hlíðarból sem rekin er af Hvítasunnukirkjunni með samningi við Akureyrarbæ.
Þessi bókun er ekki lögð fram sem gagnrýni á Hjallastefnuna eða leikskólann Hólmasól heldur til að benda á þann aukna kostnað sem einkavæðing hefur í för með sér og að nú stefnir í að sá mismunur muni stóraukast á næstunni sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana.
Hlynur Hallsson
fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skólanefnd Akureyrarbæjar"
Tengill á frétt á rúv um málið
![]() |
Dýrara að reka leikskólann Hólmasól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2008 kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.5.2008 | 08:55
Plat Tal
Þessi "frétt" um "aukna samkeppni" á símamarkaðinum sýnist mér vera fullkomið plat. Það er í raun verið að draga úr samkeppni og fækka fyrirtækjum á markaði. Þetta nýja Tal verður í meirihlutaeign Vodafone og er varla í mikilli "samkeppni" við móðurfyrirtækið? Það er í raun verið að fjarlægja Hive af markaði, það er málið. Mér finnst framsetning mbl.is ekki nægilega gagnrýnin og þetta er í raun og verum bara birting á "fréttatilkynningu" sem er í rauninni dulbúin auglýsing frá Tali (Vodafone). Ef þetta er rangt hjá mér bið ég ykkur að gera athugasemdir (auðvitað undir fullu nafni!)
![]() |
Boða 20-30% lækkun fjarskipta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
3.5.2008 | 23:56
Flott bænakall raskar ró sofandi fólks
Þórarinn Jónsson er greinilega hress náungi og þetta verk hans er ansi gott. Samt pínu grunsamlegt að tölvubilun hafi valdið því að bænakallið fór í gang klukkan fimm að morgni! Ef myndlist truflar fólk er áhugavert að skoða í hvaða samhengi það er og af hverju fólk truflast auðveldlega.
Þórarinn komst heldur betur í fréttirnar í vetur með verkið sitt "This is not a bomb" sem hann kom fyrir á listasafni í Toronto, við lítinn fögnuð starfsfólks og lögreglu. Hann var handtekinn, rekinn úr skólanum og svaka læti en ég veit ekki hvort hann var kærður og þá fyrir hvað. Þetta nýja verk hans "Bænakall" er betra finnst mér en auðvitað leitt að það hafi farið í gang svona snemma dags og raskað ró nágranna. Það var fín umfjöllun um málið í kvöldfréttum ruv.
![]() |
Kvartað til lögreglu yfir bænakalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.5.2008 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.5.2008 | 16:55
Kjartan Sigtryggsson opnar sýninguna "Í framan - In the face" á Café Karólínu laugardaginn 3. maí 2008
Laugardaginn 3. maí 2008, opnar Kjartan Sigtryggsson sýninguna "Í framan - In the face", á Café Karólínu á Akureyri.
Kjartan Sigtryggsson stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri og Listaháskóla íslands og útskrifaðist þaðan 2006. Hann segir um verkin sem hann sýnir á Café Karólínu:
"Þetta er afrakstur vinnu minnar upp á síðkastið, ég blanda saman málverkum og teikningum þar sem andlitið er aðalviðfangsefnið, þá aðallega á huglægum grundvelli fremur en formlegum og bókstaflegum
Kjartan Sigtryggsson
Í framan - In the face
03.05.2008 - 13.06.2008
Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
Nánari upplýsingar veitir Kjartan í kjartansigtryggss(hjá)gmail.com
Sýningin á Café Karólínu stendur til 13. júní, 2008.
Meðfylgjandi er mynd ef einu verkanna sem Kjartan sýnir á Café Karólínu.
Sýning Jóns Laxdal Úr formsmiðju á Karólínu Restaurant stendur yfir til 5. september 2008.
Næstu sýningar á Café Karólínu:
14.06.08-04.07.08 Arnar Ómarsson
05.07.08-01.08.08 Vilhelm Jónsson
02.08.08-05.09.08 Margeir Sigurðsson
06.09.08-03.10.08 Sigurlín M. Grétarsdóttir
04.10.08-31.10.08 Ingunn St. Svavarsdóttir Yst
01.11.08-05.12.08 Þorsteinn Gíslason
Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson
2.5.2008 | 12:37
Réttur maður í starfið
Ég sé að starf forstjóra nýrrar Varnarmálastofu er eins og sniðið fyrir Stefán Pálsson. Hann er náttúrulega snillingur og þvert á báknflokkana Samfó og íhald þá ætlar Stefán að stefna að "...því að halda umsvifum hennar (Varnarmálastofu) í algjöru lágmarki og minnka allan rekstrarkostnað eins og mögulegt er."
Þetta nýja bákn sem Ingibjörg Sólrún ætlar að setja á stofn mun blása út eins og embætti Ríkislögreglustjóra hefur gert á kostnað almennrar löggæslu í landinu. Það er hægt að nota einn og hálfan milljarð í margt betra. Stefán er því réttur maður í starfið og mun koma góðu til leiðar með aðhaldssemi og hagsýni. Áfram Stefán!
![]() |
Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.5.2008 | 08:43
Ráðherrar á Íslandi og í Englandi eru rúnir trausti
Krataflokkurinn í Bretlandi fékk rassskell í kosningunum í gær og greinilegt að ríkisstjórnin er rúin trausti. Það hefur áhrif á sveitarstjórnarkosningarnar þar í landi. Gordon Brown tekur líka við ömurlegu búi frá heræsingamanninum og lýðskrumaranum Tony Blair. (Myndin er tekin af Guardian)
En ráðherrarnir hér á landi eru einnig rúnir trausti. Geir H. Haarde hefur fallið í áliti hjá þjóðinni samkvæmt Gallup könnun. Og Þorgerður "vinsæla" Gunnarsdóttir sagði í útvarpinu áðan að búast mætti við óvinsældum meðað tekið er á efnahagsvandanum. Hér er ef til vill komin skýringin á því af hverju stjórnin tekur ekki á vandanum, hún er hrædd við að verða enn óvinsælli. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Árna Matt því það eru ekki margir eftir sem treysta honum, eða aðeins 8%! og samt segjast 37% ætla að kjósa flokkinn hans. 92% kjósneda treysta ekki manninum.
Góðu fréttirnar eru þær að Vinstri græn eru með byr í seglin enda með einu raunhæfu tillögurnar og lausnir á efnahagsvandanum og kynntu þær fyrir 2 mánuðum. Er ekki kominn tími til að Samfó hætti að vera næst sætasta stelpan á ballinu og segi upp þessum hrokagikk, Sjálfstæðisflokknum?
![]() |
Verkamannaflokkurinn tapaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.5.2008 | 15:06
1. maí 2008. Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks
Ögmundur Jónasson er einhver öflugasti talsmaður launþega í þessu landi og BSRB fer fremst í flokki verkalýðsfélaga. Það er enn líf í SFR en mörg hinna eru ansi slöpp og því miður er ASí frekar aulalegt félag. En vonandi tekst þeim að reka af sér slyðruorðið og fara að gera eitthvað. Það er hægt að taka sér Ögmund til fyrirmyndar sem vinnur að mestu leyti í sjálfboðavinnu fyrir félagið sitt og launafólk í landinu.
Enn vinnast sigrar og það er sérstök ástæða til að fagna og óska hjúkrunarfræðingum til hamingju með sigurinn í vinnudeilu við yfirstjórn Landsspítalans og heilbrigðisráðherra. Samstaðan skiptir máli.
Til hamingju með daginn allir. Ég var á frábærum fundi Stefnu, félagi vinstrimanna hér á Akureyri í morgun. Það var fullt hús og fín stemning, Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur Þ. Jónsson, Valgerður Dögg Jónsdóttir, Jón Laxdal, Ingólfur Á Jóhannesson, Þórey Ómarsdóttir, Kristján Hjartarson og Þráinn Karlsson komu öll fram og aðalræðumaður dagsins var Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Hann hélt frábæra og kraftmikla ræðu. Fín stemning á þessum árvissa fundi.
Í kvöld eru Ung vinstri græn á Akureyri með tónleika á Græna hattinum og þar er frítt inn og Svavar Knútur úr Hrauni heldur uppi stuðinu. Þessir tónleikar eru einnig orðinn reglulegur viðburður á 1. maí.
Í Þýskalandi var alltaf mesta fjörið í kröfugöngum Kúrdanna enda eru kröfugöngur og mótmæli bönnuð í Tyrklandi (myndin er þaðan af spiegel.de). Nýnasistar og hægri öfgamenn reyna að skemma baráttudaginn í Þýskalandi en tekst það sem betur fer ekki. 10.000 manns mótmæltu nýnasistum í Hamborg í dag. Það er mikilvægt að stöðva frjálshyggjuna, hervæðinguna, einkavæðinguna og skerðingu lífskjara sem nú viðgengst og Samfylkingin virðist ætla að taka þátt í með íhaldinu. Það er sorglegt en er alltaf að koma betur í ljós.
Hér er mynd frá 1. maí í Pakistan úr Sueddeutsche Zeitung.
![]() |
Ögmundur: Samfélagið þarf að ná sáttum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.4.2008 | 09:59
Heilbrigðisráðherra í djúpum skít
Guðlaugur Þór er í alvarlegum vandræðum. Hann þóttist rétta út "sáttahönd" sem var frekar blá og ansi seint á ferðinni. Og nú er hann að smiða einhverja neyðaráætlun í ráðuneytinu sínu sem verður auðvitað ekki neitt svar við ástandinu. Neyðaráætlanir eru meira hugsaðar fyrir faraldur, kóleru, berkla og þessháttar en ekki vegna þess að ráðherra vill ekki hækka lág laun fólks. En það er auðvitað neyð að hafa Sjálfstæðisflokkinn í heilbrigðisráðuneytinu með einkavæðingu efst á dagskránni.
140 skurðhjúkrunarfræðingar og geislafræðingar eru að fara heim í kvöld og koma ekki aftur. Það var aðeins of seint að ætla að fresta málunum fyrir Gulla. Hann var frekar lúpulegur í viðtali í fréttum útvarpsins í gær og gat ekki svarað neinu þó að fréttmaðurinn Arnar Páll hafi spurt hann ítrekað.
En hvernig væri bara að borga fólkinu mannsæmandi laun. Nei, það kemur auðvitað ekki til greina því þetta eru aðallega konur sem vinna þessi störf. Frekar bara að fresta málunum þar til alger upplausn blasir við og ástandið orðið grafalvarlegt. Þetta er fullkomin vanvirðing við starfsfólkið og á ekki að líðast.
Þráinn Bertelsson er með sennilegustu skýringuna á þessu tómlæti heilbrigðisráðherra, hægt að lesa það hér.
Hjúkrunarfræðingarnir og geislafræðingarnir á Landsspítalanum á hinsvegar heiður skilinn fyrir að láta ekki kúga sig.
![]() |
Geislafræðingar hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 12:05
Stríð gegn krotinu gerir illt verra

![]() |
Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
28.4.2008 | 09:26
Tempelhofflugvöllurinn í Berlín lagður niður
Íhaldsöflin töpuðu í flugvallarkosningunni í Berlín í gær og tókst ekki að fá nógu marga á kjörstað. Það var samt mikil kosningabarátta í gangi og allt hafði verið lagt undir hjá CDU og Angela Merkel kanslari jafnvel skipt um skoðun og vildi allt í einu halda uppá þennan þriðja flugvöll Berlínar. Það er áhugaverð yfirferð yfir málið í Berliner Zeitung sem hægt er að lesa hér. Og umfjöllunin í 24Stundum um helgina var einnig ágæt.
Íbúar Berlínar skiptast í þessu flugvallarmáli í tvo hópa, austur og vestur. Í okkar hverfi Prenzlauer Berg sem er hluti af Pankow var mikill meirihluti fyrir því að leggja flugvöllinn niður en í gamla vesturhlutanum vildu flestir að hann yrði starfræktur áfram. Vinstriflokkurinn, Græningjar og Kratar höfðu öll lagt til að Tempelhof verði lagður niður en Kristilegir demókratar og Frjálslyndir vildu halda honum. Það vantaði meira en 70.000 atkvæði fylgenda flugvallarins til að ná upp í tilskilinn 25% fjölda kosningabærra íbúa, en af þeim sem kusu vildu samt 60% halda í völlinn. Niðurstaðan er sú að hann verður lagður niður og Schönefeld völlurinn verður stækkaður. Nú lenda bæði IcelandExpress og Icelandair þar svo þetta breytir ekki miklu fyrir okkur.
Sjálf flugvallarbyggingin getur gjarnan orðið safn og eitthvað fleira enda ein stærsta bygging í Evrópu. Gamli Tempelhof völlurinn verður því vonandi hreinsaður og breytt í íbúðarbyggingar og ásamt nýjum atvinnutækifærum með grænum áherslum. Við höfum nærtækt dæmi um flugvallarmál hér á landi sem rétt væri að horfa til í þessu sambandi.
Hér eru nokkrir tenglar á fréttir um úrslitin og sögu vallarins:
Vom Exerzierplatz zur Mutter aller Airports
"Ein deutliches Signal, das Sicherheit gibt"
Ein Sieg gegen CDU und Springer
Volksentscheid zu Flughafen Tempelhof gescheitert
![]() |
Tempelhofflugvöllur verður lagður af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2008 | 15:57
Ungt fólk tekur afstöðu
Ég held samt að það væri sterkari leikur að mótmæla við stjórnarráðið, loka ráðherrabílana inni.
Ung vinstri græn eru með nýtt myndband á YouTube þar sem þau fjalla um hervæðingu landsins. Mæli með að fólk skoði það.
![]() |
Ungmenni tefja umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
24.4.2008 | 09:52
Sumardagurinn fyrsti
Gleðilegt sumar öll. Heiðskýrt og steikjandi hiti hérna fyrir norðan en veturinn kemur víst aftur um helgina. Við Una Móa ætlum að skella okkur í sund meðan sólin skín. Frænkur okkar, systurnar Bjarnheiður og Líney Halla eiga afmæli í dag eins og gjarnan á þessum fyrsta sumardegi. Til hamingju með það!
![]() |
Vor í lofti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.4.2008 | 13:01
Friðsamleg mótmæli
Það gefur aldrei góða raun að kasta steinum. Ég mæli með friðsamlegum mótmælum. Það eru sem betur fer mörg dæmi um það að friðsöm mótmæli skili árangri. En því miður eru einnig mörg dæmi um að friðsamleg mótmæli eru barin niður af lögreglu og her. En þeir sem mótmæla með friðsömum hætti standa uppi sem sigurvegarar. Ofbeldi leysir aldrei vandmálin. Borgaraleg óhlýðni er sjálfsögð og gott er að fólk er að vakna af dvala og lætur ekki stjórnvöld vaða alltaf yfir sig. En friðsamleg mótmæli eru líklegri til að ná árangri.
![]() |
Lögreglumaður á slysadeild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 380011
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?