Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Flott myndband hjá Sigur Rós

Hér er myndbandið við lagið Gobbledigook með Sigur Rós og fólk getur dæmt um það hvort að það sé einhver ástæða til að sýna það ekki í sjónvarpi. Mér finnst það bæði fallegt og skemmtilegtSiggi Kjartans og Stefán Árna (Árni&Kinski) gerðu myndbandið með hliðsjón af ljósmyndum Ryans McGinleys.


mbl.is Myndband Sigur Rósar bannað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ennþá verið að hlera?

halldór 

Hleranir á símum alþingismanna, verkalýðsleiðtoga og annars fólks er svartur blettur á stjórnmálasögu Íslands. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru þarna í fararbroddi og faðir núverandi dómsmálaráðherra var hvað duglegastur að láta hlera síma fólks. Enda dettur Birni Bjarnasyni ekki í hug að biðjast afsökunar á þessu siðleysi. Honum finnst sjálfsagt að hlera og njósna um fólk. Sigurður Þór Guðjónsson skrifar beittan pistil um málið og einnig Auðun Gíslason. Ætli símar fólks séu enn í dag hleraðir án tilefnis? Og af hverju voru dómsúrskurðir veittir án nokkurra spurninga? Þetta er óhugnanlegt mál. Sjálfstæðisflokkurinn er brennimerktur sem eftirlitsflokkurinn og finnst það sjálfsagt mál.

Halldór Baldursson teiknaði skopmyndina. 


mbl.is 32 heimili voru hleruð á árunum 1949-1968
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er komið nóg, útaf með ríkisstjórnina

geir_haarde

Geir H. Haarde sagði fyrir mánuði að það væri gott að verðbólgutoppurinn kæmi allur í einu því nú myndi verðbólgan fara að lækka... en hún heldur áfram að aukast! Allt tal um stöðugleika og hagsæld er bull og Geir ætti að axla ábyrgð og segja af sér. Honum hefur mistekist hrapalega að stýra þjóðarskútunni. Aldrei meiri viðskiptahalli og mesta verðbólga í 18 ár. Hversu lengi á þetta að ganga? Er ekki komið nóg? Útaf með ríkisstjórnina, hún hefur gott af því að fara á varamannabekkinn. Þeim er ekki treystandi og gera bara illt verra. Eitt ár af rugli er nóg. Hvað þá þrettán!

"Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,3% og hefur ekki verið jafn mikil í tæp 18 ár. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% sem jafngildir 28% verðbólgu á ári." 


mbl.is Mesta verðbólga í tæp 18 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann getur örugglega sungið lagið á íslensku líka

20080525T094757Z-P-TNS-RCON-C701-NVO-EUROVISION_lg Þetta var nú afar skemmtileg keppni í gær. Ég skrapp á næsta bar hér í Berlín og fagnaði með frekar alþjóðlegum gestum sigri Rússa. Mér finnst að skautagaurinn hefði átt að fá aðeins stærra svell (eða plast) til að dansa á. Hann Bilan er greinilega mikill tungumálasnillingur og ég er viss um að hann getur sungið þetta lag á íslensku og þýsku líka. Annars var mér samt næstum sama hver myndi vinna. Allir urðu voða glaðir þegar Búlgaría (eða var það Rúmenía?) gaf þjóðverjum 12 stig! Það voru einu stigin sem Þýskaland fékk held ég. Allt tal um einhverja balkanskagamafíu verður að engu þegar litið er á hvernig norðurlöndin gefa hvort öðru stig. Friðrik Ómar og Regína stóðu sig ágætlega. Já, já gaman að þessu.
mbl.is Bilan söng á spænsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saman í eitt ár

sollaoggeiri

Hún á ammæli í dag, ríkisstjórnin. Eins árs. Vel til fundið hjá þeim að bjóða börnum á leikskólanum Tjarnarborg í ráðherrabústaðinn í dag af þessu tilefni. Best væri að afhenda börnunum einnig ráðherraembættin. Þau myndu standa sig mun betur en þessir ráðherrar. Lofum börnunum að taka við. Ég spurði á síðunni minn hvað stjórnin héti og til að byrja með var Þingvallanafnið með meirihluta en vinsældir þess haf nú eitthvað minkað en fleiri og fleiri segja að hún heiti ekki neitt. 22,5% segja að stjórnin heiti viðhaldið. Afar fáir halda því fram að hún heiti sáttastjórn eða framfarastjórn. Hér eru niðurstöðurnar og líkur þar með þessari könnun. Því miður lítur hinsvegar ekki út fyrir að ruglinu á stjórnarheimilinu ljúki í bráð. 

Hvað heitir ríkisstjórnin?
Baugsstjórn 20,6%
Þingvallastjórn 24,3%
Framfarastjórn 8,6%
Viðhaldið 22,5%
Sáttastjórn 5,0%
Ekkert 19,0%

1120 hafa svarað 


mbl.is Ríkisstjórnin ársgömul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persepolis í Amnesty-bíói

Kvikmyndin Persepolis eftir Vincent Parronaud og Marjane Satrapi verður sýnd í Amnesty-bíó þriðjudaginn 20. maí kl. 20.00 í Hinu húsinu (Gamla pósthúsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis).

Myndin er byggð á samnefndri myndasögu eftir Marjane Satrapi þar sem höfundur bregður upp eftirminnilegri mynd af uppvaxtarárum ungrar stúlku á tímum íslömsku byltingarinnar í Íran.

Eftir myndina verða umræður um stöðu kvenna í Íran og ný skýrsla Amnesty International um grýtingar kvenna kynnt. Einnig verður fólki gefinn kostur á að skrifa undir aðgerðabeiðni til stjórnvalda í Íran vegna grýtinga á konum.

Myndin er á ensku með íslenskum texta.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


Veit um skemmtilegri tónleika

sleik 

Gott að það er tekið vel á móti okkar fólki í Belgrad. Ég veit hinsvegar um frábæra tónleika sem Ómar og Regína Ósk missa því miður af. 

Ung vinstri græn standa nefnilega fyrir tónleikunum „Kodd'í sleik - ekki stríðsleik“ næstkomandi föstudag, 23. maí. "Tilgangur þeirra er að rokka fyrir friði, frelsi og kærleika enda ekki vanþörf á - það verður aldrei of mikil ást heiminum.

Með friðar- og ástarkveðju,
Ung vinstri græn"
 
Þar sem ég verð í Berlín og kemst ekki heldur þá hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að drífa sig á Organ á föstudagskvöldið. 

mbl.is Konunglegar móttökur í Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marina Abramovic í stuði


460395AÞað er gaman að sjá að Marina Abramovic er í banastuði þessa dagana í henni Reykjavík. Með smá gjörning og til að auka spennuna er allt í uppnámi og skammur tími til stefnu. En eins og segir í fréttinni á mbl.is: 

„Þetta er í smá uppnámi en það bara kristallar fegurðina við svona tilraunamennsku,“ sagði Marina í gær. „Ég hitti Dr. Ruth fyrst á fimmtudaginn. Ég kynnti mig og hugmyndina mína en hún tengdi sig ekkert við hana. Skildi ekki hvert ég var að fara. Hugmynd mín var að við sætum báðar við borð með stórum rauðum síma sem hringdi á fimm mínútna fresti. Á línunni áttu að vera frægir listamenn, svo sem Frida Kahlo eða Kafka, að spyrja hana ráða um kynlíf sitt. Hún þvertók fyrir þetta og sagðist ekki hafa neinn áhuga. Hún sagði að sitt starf væri að leysa vandamál. Að hún gæti sagt mér hvaða stelling myndi henta mér best, og ekkert annað.“

Það er synd að missa af þessum gjörningi vinkvennanna. Ég mætti í nokkra tíma hjá Marinu í Hamborg og fékk að vera sérstakur gestur hjá henni í skólanum í Braunschweig fyrir nokkrum árum. Það var líka hressandi.


mbl.is Kynlífsgjörningur í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1,8% stuðningur við borgarstjórann

206451_19_preview.jpg

Ólafur F. Magnússon nálgast botninn. Það hlýtur að vera nýtt met að innan við 2% kjósenda ætli að kjósa sitjandi borgarstjóra. Það athyglisverðast við þessa könnun fyrir utan að hún er birt þremur vikum eftir að hún var gerð er að um 30% ætla að kjósa íhaldið þrátt fyrir að þar standi ekki steinn yfir steini. En sennilega gerir fólk þetta bara af gömlum vana. Vinstri græn geta vel við unað með um 19% en ættu auðvitað að fá enn meira ef kosið yrði núna. Samfó er búin að toppa, til lukku með það.


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott sýning og gjörningur

459770AMaður er kannski alveg hlutlaus en sýningin í Myndlistarskólanum er ansi góð. Sjón (og heyrn) eru sögu ríkari í þessu tilfelli svo að ég mæli með því að fólk fari á sýninguna í dag eða á morgun (mánudag). Það var fullt hús í gær og frábær stemning. Ég er pínu stoltur, viðurkenni það alveg en reyni samt að missa mig ekki. Svo er hægt að sjá sýningu Steins í Populus Tremula, Steina í GalleríVíð8ttu og Veggverkið hennar Línu í leiðinni. Þeir sem ekki komast norður geta látið sig dreyma og skoðað þetta allt og meira til á netinu.

Á myndinni eru Inga Björk Harðardóttir, Margrét Ingibjörg Lindquist, Friðlaugur Jónsson, Karl Halldór Reynisson, Margeir Dire Sigurðsson og Hertha Richardt Úlfarsdóttir. Skapti á mbl tók myndina.

Á heimasíðu Myndlistarskólans á Akureyri og bloggsíðu Helga Vilbergs, skólastjóra er hægt að sjá myndband af gjörningi Margeirs Dire sem hann framdi á opnuninni og er afar flott verk og um leið yfirlýsing um "veggjakrots-" eða veggmálverksmálin í höfuðborginni (og víðar). Mæli með því að þið skoðið það.


mbl.is Vorsýning í Myndlistaskólanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband