Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Áfram með smjörlíkið / Innantóm slagorð

listasafnasi.jpg

Davíð Oddsson er flúinn á einhverja eyju. Hannes Hólmsteinn fer huldu höfði. Ekkert hefur spurst til Geirs H. Haarde í nokkrar vikur. Árni Matt er sennilega að gefa hestum lyf. Ingibjörg Sólrún segist vera saklaus og flestir reikna með að Björgvin G. Sigurðsson neyðist til að segja af sér aftur.
Eiginlega er ég farinn að sjá eftir því að hafa ekki stungið uppá nafninu "Rannsóknarskýrslan!" á sýningarröð okkar Jónu Hlífar Halldórsdóttur sem hefst í Listasafni ASÍ þann 12. júní og heldur áfram í Verksmiðjunni í Djúpavík 17. júlí og svo í 111 – a space for contemporary art í Berlín þann 3. september 2010.


En titillin "Áfram með smjörlíkið" er reyndar einnig góður. Hér er texti sem Hjálmar Brynjólfsson setti saman.


- Áfram með smjörlíkið! Það bakar, það mallar, það snýst. Nýtt Ísland, gamalt Ísland, eldgamalt, glænýtt. Enn smjúga kökur í ofninn. Við bökum í sífellu nýtt, glænýtt brauð, þótt uppskriftin sé eldgömul. Alltaf sama uppskriftin. Alltaf það sama: áfram nýtt. Enn meira nýtt! Áfram með smjörlíkið! Eða til hvers að burðast með lík í lestinni, hver ætlar aftur til gamla Íslands? Hver vill borga með smjöri? Hver vill borga með smjörfjöllum? Veistu hvað ljóminn er? Við viljum líkið, dásamlega dauða eftirlíkingu! Það lifir!


   - Áfram með smjörið? Fjandanum fjarri. Áfram með smjörlíkið. Þannig hljóðar hið slagvædda orð: áfram. Áfram. Áfram með smjörlíkið!

Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf vinna saman að sýningaröðinni Áfram með smjörlíkið sem sýnd verður á Djúpuvík, í Reykjavík og í Berlín árið 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem þau setja upp sýningar í samvinnu. Verk þeirra bera samt með sér skyldleika svo vænta má að samstarfið heppnast ágætlega. Úr eldri verkum Hlyns og Jónu má rýna í fjölmörg einkenni þeirra sem listamenn sem í senn sameinar þau og felur jafnframt í sér nokkur af sérkennum þeirra sem listamenn.

            Í verkum beggja er að finna margbrotna en einfalda tjáningu. Verkin virðast á einhvern hátt „hrein og bein“ og eiga greiða leið inn að rótum manns. Einfaldleikinn talar beint til manns, og verkin virðast fela í sér einhverja nánd, kannski falska nánd (hver veit.) Sum verkanna eru lævís, önnur kröftug, og mörg þeirra hafa slagyrðingalegan brag á sér.

            Myndir – Bilder – Photos er yfirskrift myndaseríu Hlyns sem hann hefur nýlega lokið við og kemur bráðlega út í bókarformi. Í seríunni fara saman textir og ljósmyndir. Textinn felur í sér sögu sem hann eða fjölskyldumeðlimir hans hafa upplifað. Ferðalög eru tíð viðfangsefni eða einhverjar uppákomur úr hversdagslega lífinu sem virka ægidjúp undir naífum, þrítyngdum textum. Með hverri mynd í seríunni aukast áhrifin, þar til myndirnar hætta að virka sem einfaldar lýsingar á saklausum viðburðum. Serían verður fyrir vikið hvorki saklaus né einföld og skilur eftir sig epískar ímyndir í hugum áhorfenda.

            Fjölskyldan kemur jafnframt fyrir í sumum ljósmyndaverka Jónu, þótt hún vinni úr þeim á annan hátt. Verkin eru gjarnan tengd æskuárum hennar og umbreytingu fullorðinsáranna. Ljósmyndir úr gömlum fjölskyldualbúmum hefur hún stækkað upp ásamt textum sem lýsa uppvexti og varpa ljósi á list hennar eða stöðu í dag. Út úr verkunum má lesa að umbreytingin í lífsferli mannsins sé jafnvel minni en vænta mætti.

            Endurtekningar koma fram með sterkum og margvíslegum hætti í verkum Jónu. Í einu hljóðverka hennar endurtók hún setninguna Mér leiðist í sífellu. Í samnefndum vídeóverkum endurtóku málaðir drengir í sífellu orðin „Mök“ og „Big“. Vídeóverki eru gjarna stutt og keyra á lúppum, t.d. Að standa á eigin höndum, Acclimatization og nýlegt verk á sýningunni Ég er bara skítur. Í einu af vídeóverkum Hlyns, „Stars and stripes“, dripplar dóttir hans Lóa í sífellu körfubolta. Körfuboltinn er í líki jarðarinnar, og dripplið minnir á leik mannkynsins að jörðinni, sem hýsir hann og gerir honum kleyft að lifa.

            Pólitík er ekki langt undan í verkum Hlyns eða Jónu. Hlynur hefur getið sér orðstír fyrir að vinna með pólitík í verkum sínum, fyrst og fremst í spreyverkum þar sem áræðinn texti minnir á graffítí. Á meðal setninga sem hafa farið á vegg með hinni auðþekkjanlegu spreyhönd Hlyns eru:

Bush + Blair – Terror + Fear

og

War is terrorism with a bugger budget – fight terrorism with all power.

Verk Hlyns eru yfirleitt unnin á ensku, en stöku spreyverk er sett upp á þremur tungumálum: ensku, þýsku og íslensku sem fyrrnefnd ljósmyndasería Hlyns byggir á. Eitt af verkum Jónu Hlífar var útimálverkið Heima er bezt, en það samanstóð af hreindýri, dagsetningunni sem vatninu var hleypt á Kárahnjúkavirkjun og fyrirsögninni „Heima er bezt“, með þeirri leturgerð sem var að finna á samnefndu tímariti. Það er óþarft að fjölyrða um pólitíska skírskotun verksins.
          
            Verk Hlyns og Jónu eru bæði fjölbreytt og opin. Þau vinna með ólíka og fjölbreytta miðla, hvort fyrir sig. Hlynur hefur fengist við ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar, Jóna hefur fengist ljósmyndir, vídeó, texta, gjörninga og innsetningar. Verk þeirra eru opin fyrir túlkun og þátttaka áhorfandans er þeim mikilvæg. Í verkum Hlyns býr reyndar einhver regla, eitthvert skipulag í framsetningunni sem er formfastara en í verkum Jónu Hlífar. Nálgun Hlyns í textaverkum og Myndir – Bilder – Photos seríunni minnir jafnvel á þýska konkretljóðlist. Óræðið í verkum Jónu getur orðið svo mikið að túlkun áhorfandans er hreinlega nauðsynleg til að ljúka við þau. Aesþetísk tilfinning virðist í mörgum innsetninganna liggja ein til grundvallar fyrir verkinu, svo sem í hellaverkum hennar eða í nýlegu verki í Verksmiðjunni á Hjalteyri.

            Þegar dregin eru fram þessi sameiginlegu sérkenni Hlyns og Jónu – svo sem fjölbreytni miðlanna, einföld en hugmyndaauðug verk, endurtekningar, pólitísk ádeila, er hægt að gera sér í hugarlund hver efnistökin verða á sýningum þeirra sumarið 2010. Það, í takt við yfirskriftina Áfram með smjörlíkið, gefur fyrirheit um hvert efni sýninganna þriggja verður.

            Hver sýninganna mun bera eigin titil. Fyrsta sýningin verður í Listasafni ASÍ, en sýningin stendur yfir frá 05.06.2010 til 27.06.2010. Titill sýningarinnar er Innantóm slagorð. Á meðal þeirra efna sem drepið er á eru eðli og grundvöllur listar og tengsl listarinnar við hagkerfið. Unnið er útfrá listsögunni og með margvíslegan efnivið, þar á meðal smjörlíki. Á sýningunni munu Hlynur og Jóna gefa út bókverk sem þau skapa í samvinnu. Verkin sem verða sýnd byggja á samspili miðla í tengslum við titil sýningarinnar.      


mbl.is Ör vöxtur bankanna orsökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrsla stjórnar SÍM fyrir árið 2009

greenlogo.gif Hér er skýrsla Sambands íslenskra myndlistarmanna sem gerð var fyrir aðalfund Bandalags íslenskra listamanna sem haldinn var í Iðnó þann 9. janúar síðastliðinn. Hún var birt á vef BÍL og ég birti hana einnig hér til upplýsingar.

 

SÍM er hagsmuna- og stéttarfélag myndlistarmanna. Aðild að sambandinu eiga Félag íslenskra myndlistarmanna, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, Félagið íslensk grafík, Leirlistafélagið, Textílfélagið, Félag íslenskra samtímaljósmyndara, Myndlistarfélagið og félagar með einstaklingsaðild. Félagsmenn sem greiða félagsgjöld eru 685.
Á aðalfundi SÍM sem haldinn var 26. maí 2009 var kosin stjórn SÍM: Áslaug Thorlacius formaður, Katrín Elvarsdóttir varaformaður, Birta Guðjónsdóttir ritari, Finnbogi Pétursson gjaldkeri og Þuríður Sigurðardóttir meðstjórnandi. Varamenn: Hulda Stefánsdóttir og Ingirafn Steinarsson.

Áslaug Thorlacius sagði af sér formennsku og Finnbogi Pétursson baðst einnig lausnar frá stjórnarstörfum haustið 2009. Á aukaaðalfundi sem haldinn var 15. september 2009 var Hlynur Hallsson kosinn formaður og Ingirafn Steinarsson tók sæti Finnboga í stjórn.

Ingibjörg Gunnlaugsdóttir er framkvæmdastjóri félagsins en auk hennar vinnur Kristín Kristjánsdóttir á skrifstofu SÍM í fullu starfi. Kristín er nú í fæðingarorlofi og leysir Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir hana af. Ennfremur hafa aðrir unnið tímabundið á skrifstofunni við afleysingar eða í sérverkefnum.

SÍM er til húsa í SÍM-húsinu, Hafnarstræti 16 sem Reykjavíkurborg hefur lagt félaginu til. Nú stendur hinsvegar til að Reykjavíkurborg fari að innheimta leigu fyrir húsnæðið.

SÍM er m.a. aðili að Myndstefi – Myndhöfundasjóði Íslands og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar . SÍM er í samstarfi við Borgarbókasafnið í Reykjavík um rekstur Artóteks í aðalsafni safnsins við Tryggvagötu. Félagið á aðild að, Íslensku sjónlistaverðlaununum ásamt Hönnunarmiðstöð Íslands og Akureyrarbæ og Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum ásamt Hönnunarmiðstöð Íslands.

Á alþjóðavettvangi starfar SÍM aðallega með BIN, norrænum samtökum myndlistarmanna og IAA, alþjóðlegum samtökum myndlistarmanna og Áslaug Thorlacius gjaldkeri Evrópudeildar IAA.

SÍM veitir Alþingi og opinberum aðilum ýmsa þjónustu. Félagið tilnefnir fulltrúa í ýmsar stjórnir og ráð, annast alþjóðasamskipti fyrir hönd íslenskra myndlistarmanna og veitir umsagnir og er til ráðgjafar í tengslum við lagasetningu og aðrar stjórnsýsluaðgerðir. Félagið veitir einnig sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sérfræðiþjónustu við undirbúning og framkvæmd samkeppna um listskreytingar. Þegar unnið er eftir samkeppnisreglum SÍM tilnefnir SÍM fulltrúa í valnefndir og dómnefndir og leggur keppninni til trúnaðarmann, auk þess sem félagið fer yfir keppnislýsingar.

SÍM rekur Listskreytingasjóð ríkisins og UMM.IS upplýsingavef um myndlist og myndlistarmenn, Mugg – dvalarsjóð og Ferðasjóð Muggs. SÍM hýsir jafnframt skrifstofur Myndstefs og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar í Hafnarstræti 16.  SÍM er aðili að Listahátíð í Reykjavík.

SÍM hefur staðið fyrir degi myndlistarinnar í byrjun maí nokkur undanfarin ár. Hugmyndin er að fá myndlistarmenn um land allt til að opna vinnustofur sínar fyrir almenningi og vekja þannig athygli á vinnu myndlistarmanna og efla samskipti við áhugasaman almenning. Stefnt er að því að dagur myndlistarinnar verði í samvinnu við skóla, gallerí og söfn og mun stærri dagur í framtíðinni og hann verðu fluttur á fyrsta laugardag í október og verður því 2. október 2010.

Félagsmaður mánaðarins er dagskrá sem á sér stað í sal SÍM-hússins, en þar er félagsmaður með litla sýningu eða kynningu á verkum sínum í hverjum mánuði.  Einnig eru haldnar gestastundir þar sem erlendir gestir SÍM kynna sig og sín verk fyrir félagsmönnum og öðrum áhugamönnum um myndlist í formi fyrirlestra, lítilla sýninga eða gjörninga.

SÍM rekur 3 gestaherbergi í Hafnarstræti 16 en þau eru hagkvæmur kostur fyrir listamenn, sýningarstjóra, gagnrýnendur og aðra sem koma til borgarinnar í erindum sem tengjast myndlist. Þjónustan stendur öllum stofnunum og fyrirtækjum sem starfa við og í kringum myndlist til boða.

Skrifstofa félagsins rekur einnig Sjónlistamiðstöðina á Korpúlfsstöðum fyrir hönd Rekstrarfélags Korpúlfsstaða sem Hönnunarmiðstöð Íslands á aðild að. Á Korpúlfsstöðum eru um 40 vinnustofur fyrir myndlistarmenn og hönnuði og útibú frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Þar hafa verið útbúin stór verkstæði fyrir leir og textíl, sem rekin eru af Leirlistarfélaginu og Textílfélaginu.

SÍM rekur jafnframt listamannahúsið Seljaveg 32 en þar eru um 50 innlendir listamenn með vinnuaðstöðu og fyrirhugað er að taka í notkun nýja vinnustofumiðstöð í Garðabæ á næstu mánuðum.

Undanfarin ár hefur mikill kraftur farið í uppbyggingu SIM-RES, Alþjóðlegrar gestavinnustofumiðstöðvar sem félagið rekur á Seljavegi og á Korpúlfsstöðum og nú hefur SIM-RES 15 herbergi til ráðstöfunar. Á síðasta ári dvöldu hátt í 200 erlendir listamenn í gestavinnustofum SÍM í einn mánuð eða lengur. Herbergin eru í fullri nýtingu mestan hluta árs og gott betur því oft er tvímennt í herbergjunum.

SIM-RES er hluti af gestavinnustofuneti KulturKontaktNord árin 2008-2010 en fyrir tilstilli KKNord getur SÍM boðið um 10 norrænum listamönnum og listamönnum frá baltnesku löndunum til 1-2 mánaða dvalar sér að kostnaðarlausu.

Akureyri, 6. janúar 2010
Hlynur Hallsson, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna


Fréttabréf SÍM frá því í desember 2009

2003819114738750.png

 

Af gefnu tilefni birti ég hér fréttabréf SÍM frá því desember.

 

Kæru myndlistarmenn

 

Fyrir hönd stjórnar SÍM vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Reyndar eru aðeins tæpir þrír mánuðir frá því að ég tók við sem formaður SÍM, en þetta virkar eins og enn lengri tími enda hefur margt gerst á þessum stutta tíma. Aukaaðalfundur var haldinn í Norrænahúsinu þann 15. september 2009. Þar var Áslaugu Thorlacius þökkuð vel unnin störf sem formaður SÍM til margar ára.

Stjórn SÍM hefur hittst fjórum sinnum frá aukaaðalfundinum en einnig verið í tölvupóst- og símasambandi eftir því sem þurft hefur. Við ætlum að hafa opinn félagsfund þann 17. desember og stefnum að því að hafa reglulega spjallfundi með félagsmönnum þar sem hægt verður að ræða hagsmunamál myndlistarmanna og hvað við getum gert betur.

 

Mótmæli við Gallerí Fold

Eitt fyrsta verkefni okkar var að efna til mótmæla við Gallerí Fold sem hafði ekki greitt fylgiréttargjöld af sölu á verkum á uppboðum. Lög kveða á um að 10% gjald af sölu höfundarverka í endursölu gangi til listamannsins, eða handhafa höfundaréttar. Mótmælin heppnuðust afar vel og vöktu athygli og galleríið greiddi strax daginn eftir þessi gjöld af síðasta uppboði. Rekstrarfélag Gallerí Foldar var hinsvegar tekið til gjaldþrotameðferðar í ágúst og þar liggja nú skuldir uppá margar milljónir sem reynt verður að fá greiddar. Myndstef er að vinna í þeim málum. Það er því mikilvægt að fylgiréttargjöldin séu greidd strax og reglulega og við munum fylgjast með því að Gallerí Fold og aðrir sem efna til uppboða á listaverkum standi í skilum. Ef ekki þá munum við mótmæla af enn meiri krafti enda er hér um augljós lögbrot að ræða.

 

Vinnustofur

Margir myndlistarmenn eru á biðlista eftir vinnustofum og skoðaðir hafa verið möguleikar á leigu á húsnæði. Ekki er komin niðurstaða í það mál en nokkrir kostir hafa verið skoðaðir. Rekstur Seljavegarins stendur undir sér og það sama er að segja um Korpúlfsstaði. Á Seljavegi eru 48listamenn með vinnustofur og 44 á Korpúlfsstöðum, en þar fyrir utan hafa fleiri afnot af leirlistaverkstæðinu og textílverkstæðinu.

 

Gestavinnustofur SÍM og KulturKontakt Nord

Metþátttaka var í umsóknum um dvöl í gestavinnustofum SÍM meðdvalar- og ferðastyrk frá KulturKontakt Nord, alls bárust 147 umsóknir og stærsti hlutinn frá afar hæfum myndlistarmönnum. 12 listamenn munu dvelja hjá okkur á næsta ári með þessum styrk, en þeir eru:

Janúar: Heidi Hove og Jens Axel Beck frá Danmörku

Febrúar: Vigdis Haugtrö frá Noregi

Mars: Voldemars Johansons frá Lettlandi

Apríl: Laura Feldberga frá Lettlandi

Júní: Torgeir Husevaag og Catrine Thorstensson frá Noregi

Júlí: Monica Höll frá Svíþjóð

Ágúst: Sari Lievonen frá Finnlandi

September: Björn Hegardt frá Noregi

Október: Karlin Tampere frá Svíþjóð

Nóvember: Jan Christensen frá Noregi

 

Alls hafa rúmlega 90 gestalistamenn komið og dvalið í gestvinnustofum á Seljavegi og Korpúlfsstöðum á árinu. Af þessum listamönnum hafa 6 verið með styrk frá KKN, en þeir eru Jukka Korkeila, Maurice Blok og fjórir af meðlimum Ykon hópsins, allir frá Finnlandi. Margir hafa haldið sýningar í lok dvalar sinnar eða fyrirlestra og stefnt er að því að kynna þá enn betur á næsta ári svo að dvölin nýtist þeim meira og einnig að listamenn hér fái að kynnast þeim og verkum þeirra betur.

 

Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar

Þuríður Sigurðardóttir er fulltrúi BÍL og okkar í Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Eyrúni Sigurðardóttur var valin í fagnefnd Menningar- og ferðamálaráðs fyrir hönd BÍL. Á síðasta ári áttum við ekki fulltrúa í fagnefndinni og því sérstaklega ánægjulegt að Eyrún hafi verið valin.

 

Listamenn mánaðarins frá janúar - júní 2010

Búið að draga út þá sem verða með kynningu á verkum sínum í SÍM húsinu á fyrrihluta næsta árs. Þau eru: Hafdís Ólafsdóttir, Sigríður Rut Hreinsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Inga Sólveig Friðjónsdóttir, Erna G. Sigurðardóttir og Magnús Helgason.

 

Listamannalaun

Launasjóður myndlistarmanna stækkar um næstum 10 árslaun eða úr 26 árslaunum og 8 mánaðarlaunum á ári í 36 árslaun og 3 mánaðarlaun. Þetta mun gerast á 3 árum. 40 mánuðir bætast við á næsta ári, aðrir 40 árið 2011 og síðustu 35 árið 2012. Þetta er skref í rétta átt og afar ánægjulegt að stjórnvöld skuli á þrengingartímum sjá að myndlist sé afar atvinnuskapandi og að listamannalaun fara beint út í samfélagið og skapa mun fleiri störf en sem nemur þeim mánuðum sem úthlutað er.

 

Stefnumótun

Stefnumótunarhópur myndlistarmanna og arkitekta hefur tekið nokkrum breytingum og fulltrúar okkar þar eru Ásmundur Ásmundsson, Haraldur Jónsson og Ragna Sigurðardóttir. Þau munu skila niðurstöðum í byrjun næsta árs.

 

Muggur

Úthlutanir úr ferðasjóði SÍM og Reykjavíkurborgar fór fram í október og eftirtaldir myndlistarmenn hlutu styrk: Anna Gunnarsdóttir, Bjargey Ólafsdóttir, Einar Garibaldi, Eirún Sigurðardóttir, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Guðjón Bjarnason, Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Haraldur Jónsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Hulda Rós Guðnadóttir, Jóhanna Bogadóttir, Jóní Jónsdóttir, Kristín S. Garðarsdóttir , Laufey Arna Johansen, Margrét Sossa Björnsdóttir, Pétur Thomsen, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Steinunn Þórarinsdóttir, Unnar Örn J. Auðarson og Valgerður Hauksdóttir.

 

Fundur með menntamálnefnd Alþingis

Ingibjörg og Þuríður áttu fund með menntamálanefnd Alþingis og lögðu þar áherslu á mikilvægi starfs Sambands íslenskra myndlistarmanna og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Góður rómur var gerður að máli þeirra og við vonum að niðurskurður á framlögum til SÍM verði ekki meiri en nauðsyn ber til.

 

Fundur með mennta- og menningarmálaráðherra

Hlynur, Ingibjörg, Birta og Ingirafn fóru á fund með Katrínu Jakobsdóttur ráðherra og ræddu málefni SÍM, KÍM og Listskreytingarsjóðs og einnig heiðurslaun Alþingis, skattamál og myndlistarkennslu í skólum. Ráðherra tók afar vel í hugmyndir okkar og við munum fylgja okkar baráttumálum eftir á næstu mánuðum.

 

Fundur með stjórn Félags listfræðinga

Stjórn SÍM fundaði með stjórn Félags listfræðinga, þeim Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur, Gunnari J. Árnasyni og Shauna Laurel Jones. Við fögnum stofnun félagsins og rætt var um samvinnu félaganna og mögulega samstarfsfleti. Með stofnun félagsins mun fagleg umræða um myndlist vonandi aukast og batna.

 

SÍM og UMM á netinu

Kannaðir hafa verið möguleikar á að gera sim.is síðuna aðgengilegri og betri og bæta útlit og skipulag hennar. Vonandi gerist þetta á næstu mánuðum. Það sama má segja um umm.is síðuna. Hún er mikið notuð og er oft ein fyrsta síðan sem kemur upp í leitarvélum. Útlit hennar er hinsvegar komið til ára sinna og stefnt er að því að gera hana betri án mikils tilkostnaðar. Það byggist svo á myndlistarmönnum hvað þeir vilja uppfæra upplýsingar um sig reglulega.

 

Aðalfundur í byrjun mars og málþing um myndlist

Stefnt er að því að halda aðalfund SÍM laugardaginn 6. mars og halda málþing um myndlist sama dag. Nýta tækifærið til að fá jákvæða og uppbyggilega umræðu um það sem betur má fara og það sem brennur á myndlistarmönnum og bjóða til þátttöku fjölbreyttum hópi fólks einnig frá fjölmiðlum og ráðamönnum.

 

Samband íslenskra myndlistarmanna eru hagsmunasamtökin okkar og hugmyndir og ábendingar eru vel þegnar. Best er að hafa samband við skrifstofu SÍM, senda tölvupóst á sim(hjá)sim.is eða á hlynur(hjá)sim.is

 

 

Með bestu kveðjum,

Hlynur Hallsson, formaður SÍM


Temporäre Kunsthalle í Berlín

 karin.jpg

Sýningu Karen Sander í Temporäre Kunsthalle í Berlín sem ber titilinn Zeigen lýkur sunnudaginn 10. janúar 2010. Karen bauð hátt í sexhundruð listmönnum í Berlín að taka þátt í þessu verki, senda inn hljóðupptöku sem verk og það er hægt að hlusta á verkin á staðnum. Nöfn listamannanna eru prentuð í langri röð eftir veggjunum og við hvert nafn er númer sem hægt er að slá inn í þar til gerða spilara og hlusta þannig á framlag hvers listamanns.

Þetta er frábær sýning verð ég að segja þó að ég sé ekki alveg hlutlaus sem einn af þátttakendum:) Ég fór tvisvar á hana og varði dágóðum tíma í að hlusta á verkin og hefði viljað verja enn lengri tíma í það. 

Hér eru tenglar á nokkrar umfjallanir um sýninguna og listinn yfir alla listamennina sem taka þátt.


Saâdane Afif, Carla Åhlander / Gernot Wieland, Nader Ahriman, Nevin Aladag, Stefan Alber, Erik Alblas, Sonja Alhäuser, Bettina Allamoda, Heather Allen, Pablo Alonso, D-L Alvarez, Matthew Antezzo, John Armleder, Ole Aselmann, Martin Assig, Marius Babias, Mona Babl, Elvira Bach, Florian Bach, Frank Badur, Fritz Balthaus, Heike Baranowsky, Gabriele Basch / Maurice de Martin, Rui Calçada Bastos, Florian Baudrexel, Michael Bause, T.R. Becker, Tjorg Douglas Beer, Birgit Bellmann, Benjamin Bergmann, Christine Berndt, Anne Berning, Michael Beutler, Nicole Bianchet, Gerry Bibby, Marc Bijl, Norbert Bisky, Caroline Bittermann, Kristleifur Björnsson, John Bock, Katinka Bock, Armin Boehm, Hartmut Böhm, Heike Bollig, Monica Bonvicini, Shannon Bool, Susanne Bosch, Pauline Boudry / Renate Lorenz, Daniela Brahm, Marc Brandenburg, Monika Brandmeier, Barbara Breitenfellner, Mari Brellochs, Micha Brendel, Birgit Brenner, Agnieszka Brzezanska, Nine Budde, Matthew Burbidge, BURGHARD, Katarina Burin, Stefanie Bürkle, Susanne Bürner, André Butzer, Pash Buzari, Janet Cardiff / George Bures Miller, Eva Castringius, Libia Castro & Ólafur Ólafsson, Antonio Catelani, Jessica Centner, Paolo Chiasera / Alex Trebo, Helen Cho, Clegg & Guttmann, Kerstin Cmelka, Daniela Comani, Martin Conrads, Martin Conrath / Marion Kreißler, Natalie Czech, Camilla Dahl, Björn Dahlem, Martin Dammann, Mariechen Danz, Paul Darius, Ronald de Bloeme, Michel de Broin, Christine de la Garenne, Jana Debrodt, Christiane Dellbrügge & Ralf de Moll, Dieter Detzner, Frank Diersch, Peter Dittmer, Ursula Döbereiner, Peter Dobroschke, Jason Dodge, Paula Doepfner, Christina Doll, Tatjana Doll, A K Dolven, Johanna Domke, Antje Dorn / Lukas Lonski, Hannah Dougherty, Margarete Dreher, Ruprecht Dreher, Jürgen Drescher, Arnold Dreyblatt, Sven Drühl, Peter Duka, Jimmy Durham, Mikala Dwyer, Bogomir Ecker, Knut Eckstein, Maria Eichhorn, Frauke Eigen, Dörte Eißfeldt, Paul Ekaitz, Nezaket Ekici, Robert Elfgen, Thomas Eller, Elmgreen & Dragset, Slawomir Elsner, Annika Eriksson, Ayse Erkmen, Esra Ersen, Ueli Etter, EVA & ADELE, Simon Faithfull, Faller / Mieth / Stüssi / Weck, Anna Fasshauer, Valérie Favre, Friederike Feldmann, Peter Fend, Rainer Fetting, Berta Fischer, Nina Fischer & Maroan el Sani, Wolfgang Flad, Ulrike Flaig, Christian Flamm, Jean Pascal Flavien, Thomas Florschuetz & Carla Guagliardi, Carsten Fock, Gunda Förster, Olivier Foulon, Heiner Franzen, Hanna Frenzel, Marten Frerichs, Pia Fries / Hans Brändli, Barbara Frieß, Bernard Frize, Tom Früchtl, Simon Fujiwara, Tine Furler, Taro Furukata, Dani Gal, Heike Gallmeier, Bernhard Garbert, Kati Gausmann, Axel Geis, Stella Geppert, Patrycja German, Torben Giehler, Milena Gierke, Andrew Gilbert, Annette Gödde, Claus Goedicke, Thorsten Goldberg, Undine Goldberg, Erik Göngrich, Delia Gonzalez, Douglas Gordon, Kerstin Gottschalk, Sabine Groß, Katharina Grosse / Michael E. Smith, Lilly Grote, Asta Gröting, Eva Grubinger, Beate Gütschow, Terry Haggerty, Mathew Hale, Hlynur Hallsson, Atalayman Haluk, Friederike Hamann, Sebastian Hammwöhner, Jens Hanke, Elín Hansdóttir, Erla S. Haraldsdottir, Joe Hardesty, Ellen Harvey, Bertram Hasenauer, Christian Hasucha, Mona Hatoum, Tobias Hauser / Hermann Bohlen, Elisabeth Hautmann, Eberhard Havekost, Claire Healy & Sean Cordeiro, Swetlana Heger / Billy Davis, Isabel Heimerdinger, Valeria Heisenberg, Hans Hemmert, Uwe Henneken, Anton Henning, Knut Henrik Henriksen, Arturo Herrera, Swantje Hielscher, Gregor Hildebrandt, Veronike Hinsberg, Moritz Hirsch, Franz Hoefner & Harry Sachs, Christian Hoischen, Karl Holmqvist, Olaf Holzapfel, Alexandra Hopf, Laura Horelli / Anu Pennanen, Ute Hörner & Mathias Antlfinger, Sabine Hornig, Franka Hörnschemeyer, Satch Hoyt, Felix Stephan Huber, Patrick Huber, Nicolai Huch, Markus Huemer, Elvira Hufschmid, Sofia Hultén, Hideaki Idetski, Leiko Ikemura, John Isaacs, Jeroen Jacobs, Dani Jakob, Christian Jankowski, Monika Jarecka, Mona Jas & Holger Friese, Olaf Christopher Jenssen, Sven-Åke Johansson, Rolf Julius, Stephanie Jünemann, Stephan Jung, Lisa Junghanß, Johannes Kahrs, Ilona Kálnoky, Sejla Kameric, Helmut & Johanna Kandl, Eckhard Karnauke, Katharina Karrenberg, Silke Kästner, Veronika Kellndorfer, Isabel Kerkermeier, Iris Kettner, Waszem Khan, Shila Khatami, Thomas Kiesewetter, Dietmar Kirves, Christiane Klatt, Astrid Klein, Gisela Kleinlein, Heike Klussmann, Paco Knöller, Daniel Knorr, Folke Köbberling & Martin Kaltwasser, Andreas Koch, Peter K. Koch, Takehito Koganezawa, Susanne Kohler, Karsten Konrad, Korpys / Löffler, Katarzyna Kozyra, Pauline Kraneis, Ullrich Kraus, Wolfgang Krause, Clemens Krauss, Susanne Kriemann, Käthe Kruse, Christina Kubisch, Coco Kühn, Raimund Kummer, Michael Kunze, Ulrike Kuschel, Susanne Kutter, Alicja Kwade, Marcellvs L., Nick Laessing, Christin Lahr, David Lamelas, Mark Lammert, Pia Lanzinger, Sami Ben Larbi, Tim Lee, Gerda Leopold, Via Lewandowsky, Alexandra Leykauf, Axel Lieber, Deborah Ligorio, María Linares, Ute Lindner, Nikolaus List, Thomas Locher, Wiebke Loeper, Adrian Lohmüller, Susanne Lorenz, Darri Lorenzen, Antonia Low, Robert Lucander, Dieter Lutsch, Ute Mahling, Inge Mahn / Katrin Albrecht / Valentin Hertweck , Antje Majewski, Katrin von Maltzahn, Simone Mangos, Matthias Mansen, Angelika Margull, Rémy Markowitsch, Bernhard Martin, Yvette Mattern, Hans-Jörg Mayer, Matthias Mayer, Christoph Mayer chm. / Andreas Hagelüken u.a., Josephine Meckseper, Jonathan Meese, Birgit Megerle, Sandra Meisel, Bjørn Melhus, Isa Melsheimer, Florian Merkel / Jasmin Schwarz / BEEP OFF, Arwed Messmer, Yves Mettler, Dörte Meyer, Nanne Meyer, Angelika Middendorf, Ricarda Mieth, Boris Mikhailov, Yana Milev, Gerold Miller, John Miller, Igor Mischiyev, Dane Mitchell, Martin Mlecko, Christiane Möbus, Ulrike Mohr, Martin Mohr, Regina Möller, Jonathan Monk, Stephan Mörsch, Sofie Bird Møller, Jan Muche, Christl Mudrak, Wolfgang Müller, Peter Müller, Michael Müller, Matt Mullican, Anca Munteanu-Rimnic, Piotr Nathan, Hajnal Németh, Ursula Neugebauer, Neulant van Exel, Carsten Nicolai, Karina Nimmerfall, Astrid Nippoldt, Ann Noël, Jens Nordmann, Silke Nowak, Hester Oerlemans, Roman Ondak, Aya Onodera, Michael Otto, Amy Patton, Antonio Gonzales Paucar, Manfred Peckl, João Penalva, Manfred Pernice, Sandra Peters, Kristian Petersen, Mario Pfeifer, Katja Pfeiffer, Pfelder, Daniel Pflumm, Andrea Pichl, Katinka Pilscheur, Hermann Pitz, Nina Pohl, Marco Poloni, David Polzin, Sophia Pompéry, Lynn Pook & Julien Clauss, Bettina Pousttchi, Prinz Gholam, Peter Pumpler, Norbert Radermacher, Fritz Rahmann, Alexandra Ranner, Rebecca Raue, raumtaktik, von Borries / Böttger, Haleh Redjaian, Dodi Reifenberg, Inken Reinert, Berthold Reiß, Andreas Reiter Raabe, Thomas Rentmeister, Cornelia Renz / Laura Bruce, Gunter Reski, Mandla Reuter, Reynold Reynolds, Bernd Ribbeck, Tanja Rochelmeyer, Gerwald Rockenschaub, Kirstine Roepstorff, Ursula Rogg, Stefan Römer, Maya Roos, Peter Rösel, Jenny Rosemeyer, Rosen / Wojnar, Aura Rosenberg, Angela Rosenberg, Fried Rosenstock, Roth Stauffenberg, Miguel Rothschild, Steven Rowell, Annette Ruenzler, Egill Sæbjörnsson, Stefan Saffer, Anri Sala, Dean Sameshima, Maike Sander, Yorgos Sapountzis, Yehudit Sasportas, Matt Saunders, Eran Schaerf, Albrecht Schäfer, Sophia Schama, Gerda Scheepers, Jutta Scheiner, Andreas Schimanski, Hanns Schimansky, Cornelia Schleime, Ariel Schlesinger, Sebastiaan Schlicher, Les Schliesser, Gesine Schmauder, Regina Schmeken, Gunna Schmidt, Tomas Schmit, Ralf Schmitt, Gregor Schneider, Albrecht Schnider, Dennis Scholl, Frances Scholz, Eva Maria Schön, Jo Schöpfer, Henrik Schrat, Michael Schultze, Tilo Schulz, Alexandra Schumacher, Veronika Schumacher, Martina Schumacher, Hanna Schwarz, Daniel Seiple, Andreas Sell, Aurelia Sellin, Marcus Sendlinger, Eva Seufert, Catriona Shaw, Amie Siegel, Judith Siegmund, Wiebke Siem, Katharina Sieverding, Markus Sixay, Jim Skuldt, Andreas Slominski, Florian Slotawa, Raaf van der Sman, Christopher Snee, Juliane Solmsdorf, Astrid Sourkova / Markus Selg, Heidi Specker, Thomas Spielmann, Andrea Splisgar, Rainer Splitt, Martin Städeli, Klaus Staeck, Raimar Stange, Tim Stapel, Simon Starling, Julia Staszak /Olaf Mach, Erik Steinbrecher, Bente Stokke, Fiete Stolte, Roland Stratmann, Josef Strau, Jaro Straub, Marlene Streeruwitz, Katja Strunz, Asli Sungu, Shanghay Surbir, Anita Tarnutzer, Vincent Tavenne, Mathilde ter Heijne, Benedikt Terwiel, Stefan Thiel, Mirjam Thomann, Bernhard Thome, Jan Timme, Rirkrit Tiravanija, Wawrzyniec Tokarski, Christian Tonner, Bernd Trasberger, Petra Trenkel, Luca Trevisani, Mette Tronvoll, Sandra Truté, Nasan Tur, Jochen Twelker, Timm Ulrichs, Malte Urbschat, Ignacio Uriarte, Marcel van Eeden, Maria Vedder, Vlado Velkov, Till Velten, Johannes Vogl, Gabriel Vormstein, Gunnar Voss, Simon Wachsmuth, Alexander Wagner, Rolf Walz, Tian Tian Wang, Fu Wang, Ryszard Wasko, Corinne Wasmuht, Suse Weber, Heike Weber, Ina Weber, Clemens von Wedemeyer, Markus Weggenmann, Susanne Weirich, Albert Weis, Ute Weiss Leder, Peter Welz , Tilmann Wendland, Matthias Wermke / Mischa Leinkauf, Maja Weyermann, Suse Wiegand, Claudia Wieser, Eva-Maria Wilde, Berndt Wilde, Stephen Wilks , Barbara Wille, Klaus Winichner, Markus Wirthmann, Anna Witt, Karsten Wittke, Johannes Wohnseifer, Jens Wolf, Alexander Wolff, Ming Wong, Christine Würmell, Florian Wüst, Paola Yacoup, Ekrem Yalcindag, Haegue Yang, Qin Yufen, Simone Zaugg, Holly Zausner, Francis Zeischegg, Georg Zey, Ralf Ziervogel, David Zink Yi, Annett Zinsmeister, Christina Zück, Christof Zwiener.


Artnet.de

Tagesspiegel

Berliner Zeitung


Ríkið bjargar BYR

83a38618032494ba961fd17889aaf2df_300x225Þetta er skrítinn heimur. Við vorum einhvertíma búin að fá nóg af Glitni og endalausu auglýsingaskrumi þaðan og ákváðum að flytja okkar viðskipti yfir í Sparisjóð Norðlendinga. Það er samt hægara sagt en gert en skipta alveg um banka. Síðan gerist það nokkrum misserum síðar að Sparisjóðurinn okkar rennur inn í eitthvert bákn sem heitir BYR. Það voru einhverjir stofnfjáreigendur sem ætluðu heldur betur að græða á "góðæristímanum" (lesist sukk- og bruðl tíma sjálfstæðisFLokksins).

Svo hrundi allt draslið og þá var Glitni breytti aftur í Íslandsbanka og nú er ríkið líka búið að bjarga BYR. Ég sakna Alþýðubankans, það var almennilegur banki sem eyddi ekki og bruðlaði í óþarfa heldur lánaði bara peninga og ávaxtaði krónurnar manns skynsamlega. Er ekki kominn tími til að stofna nýjan Alþýðubanka?


mbl.is Byr fjórði ríkisbankinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er Svafa að hætta?

Það sem vantar í þessa frétt er svarið við spurningunni af hverju Svafa sé að hætta eftir aðeins þrjú ár í starfi rektors HR? Þessi fréttatilkynning frá HR er eins og tilkynningarnar þegar Baldur forstjóri Eimskips hætti "í mesta bróðerni því hann hafði unnið svo gott starf". Er Svafa búin að fá nóg af þessu starfi? Kom hún sínum áherslum ekki að? ER hún að fara í annað og miklu betra starf? Hvað er málið? Af hverju ber þetta svona brátt að? Svör óskast.


mbl.is Rektorsskipti í HR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

althingi_942028.jpg

Það þarf að skera niður í útgjöldum ríkisins eftir allt sukkið og klúðrið hjá sjálfstæðisFLokknum og þá er eðlilegt að þingflokkarnir dragi einnig saman umsvifin. Hinsvegar er nauðsynlegt fyrir lýðræðið að einhverjir peningar komi frá sameiginlegum sjóðum en ekki bara frá ríkum einstaklingum eða fyrirtækjum og hópum sem vilja beita áhrifum sínum. Það er víða hægt að spara í útgjöldum ríkisins og þessi tillaga meirihluta fjárlaganefndar er skref í rétta átt. Ég tel það eðlilegt að skera einnig niður framlag til stjórnmálaflokkanna ekki bara þingflokka og ráðherra.


mbl.is Framlag til þingflokka og ráðherra skert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hverjum er það "að þakka"?

icesave.jpgJá, við þurfum að búa okkur undir verulega skerðingu lífskjara og kaupmáttar næstu árin og getum þakkað það alfarið sjálfstæðiFLokknum. SjálfstæðisFLokkurinn ber höfuðábyrgð á IceSave klúðrinu frá upphafi til enda en viðurkennir auðvitað ekki ábyrgð sína. Bjarni Ben var búinn að kvitta uppá samning við Breta og Hollendinga sem var miklu óhagstæðari en sá sem Indriði og félagar náðu fram. Samt er þetta auðvitað vondur samningur fyrir okkur, það vita allir, en um leið það skásta sem er í boði. Daniel Gros fulltrúi Framsóknarflokksins í bankaráði Seðlabankans veit það örugglega líka, hitt hljómar bara sennilega betur í eyrum vina hans.

Það sama hversu mikið við erum á móti því að borga skuldir Landsbankans til innistæðueigenda í Bretlandi og Hollandi þá er það lagalega og auðvitað einnig siðferðislega réttlætanlegt að gera það, því miður. Það var okkar regluverk sem brást, regluverk sem sjálfstæðisFLokkurinn kom á ásamt Framsóknarflokknum. Er einhver búinn að gleyma því þegar Ögmundur Jónasson var úthrópaður fyrir að vilja að bankarnir flyttu útibúin sín til meginlandsins og skráðu þau þar? "Viltu flytja bankana úr landi?" spurðu þingmenn þáverandi meirihluta í forundran og hneyksluðust mikið á honum. 

Það hefði verið einfalt mál að setja lög um að bankarnir mættu ekki stofna "útibú" í öðrum löndum heldur ættu að stofna þar sjálfstæða banka, en það var ekki gert og við munum lengi súpa seyðið af því, þökk sé Davíð Oddssyni og vinum hans í FLokknum.


mbl.is Skert lífskjör og kaupmáttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Kunstraum Wohnraum að ljúka

hugi_alla.jpg

 

AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR

RÉTTARDAGUR 50. SÝNINGA RÖÐ

04.10. - 06.12.2009

 

Opið samkvæmt samkomulagi

 

KUNSTRAUM WOHNRAUM                          

Hlynur Hallsson • Kristín Kjartansdóttir           

Ásabyggð 2 • IS-600 Akureyri •  +354 4623744

hlynur(hjá)gmx.net • www.hallsson.de

 

Sunnudaginn 6. desember 2009 lýkur sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur Réttardagur 50 sýninga röð” í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.

 

Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund.

 

Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist "Réttardagur 50 sýninga röð". Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Sýningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um þá menningu sem skapast um og frá sauðkindinni.

 

Myndir af verkum Aðalheiðar og upplýsingar eru á síðunni www.freyjulundur.is

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091 og í adalheidur@freyjulundur.is

 

Kunstraum Wohnraum hefur verið starfrækt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Það er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggð 2. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur er opin eftir samkomulagi og hægt er að hringja í síma 462 3744.

 

Nánari upplýsingar um Kunstraum Wohnraum er að finna á: http://www.hallsson.de/projects/kunstraum_wohnraum/kunstraum_wohnraum.html

 


Tyggjó - Kaugummi - Chewing gum

Tyggjó frá 2007. Lóa lék aðalhlutverkið. Ég notaði verkið fyrir sýningu í DaLí Gallery sama ár og svo fyrir samsýninguna Equivalence í Lazareti - Galerija OTOK í Dubrovnik í Króatíu sumarið 2008 sem Ransu skipulagði.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband