Færsluflokkur: Vefurinn
22.2.2007 | 16:06
Klámþingið blásið af, til hamingju!
Það eru góð tíðindi að hætt skuli hafa verið við þessa fyrirhuguðu klámráðstefnu. Hótel Saga á heiður skilinn og bændasamtökin einnig. Ferðamannaiðnaðurinn mun einnig uppskera fleiri ferðamenn sem ekki eru komnir hingað til að upplifa klám og rusl í Reykjavík. Þvert á það sem einhverjir hafa haldið fram. Það eru nefninlega margir hafa ekki áhuga á því að ferðast til landa sem hafa á sér vafasamt orðspor í þessum efnum. Niðurstaðan verður hinsvegar til þess að fólk sem ekki hefur áhuga á klámi flykkist til landsins. Samtakamátturinn skiptir máli og andfemínistar geta froðufellt að vild. Það er einnig athyglisvert að bloggið hefur skipt miklu máli við að koma skoðunum fólks á framfæri eins og umræður um þetta fyrrverandi klámþing sýna. Til hamingju aftur.
![]() |
Hætt við klámráðstefnu hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
20.2.2007 | 22:29
Hvað kostar Baugsmálið okkur?
Það verður fróðlegt að fá svör frá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins við þessum spurningum um heildarkostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. Þetta mál verður Davíð Oddssyni og félögum til skammar svo lengi sem menn nenna að rifja upp þessi réttarhöld og lögreglurannsókn. Þetta mál er eitt dæmið um það af hverju Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert að gera í ríkisstjórn. Ég tek ofan af fyrir Hjálmari Árnasyni að vera vera með fulltrúum stjórnarandstöðunnar þegar dómsmálaráðherra er krafinn svara. Og svo er bara að vona að Björn Bjarnason svari einhverju en snúi ekki út úr eins og hann er vanur að gera.
Hér er fréttin af mbl.is
"Þingmenn úr fjórum þingflokkum á Alþingi hafa lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra þar sem spurt er um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. Þá er m.a. einnig spurt hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra hafi farið í málið frá júlí 2002 til dagsins í dag.
Fyrirspurnin er frá Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanni Samfylkingar, Hjálmari Árnasyni, þingmanni Framsóknarflokks, Kolbrúnu Halldórsdóttur þingmanni VG og Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslynda flokksins.
Spurt er hver sé heildarkostnaður ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins frá því í ágúst árið 2002 og fram til dagsins í dag eða til þess tíma á árinu 2007 sem upplýsingar liggi fyrir um og hvernig hann skiptist á eftirfarandi þætti:
a. rekstur efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
b. aðkeypta sérfræðiaðstoð og annan útlagðan kostnað efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra (þ.m.t. ferða- og uppihaldskostnað) við rannsókn og rekstur málsins,
c. störf sérstaks saksóknara í Baugsmálinu, þ.m.t. kostnaður við aðstoðarmenn og aðkeypta sérfræðiþjónustu,
d. kostnað sem íslenska ríkið hefur verið dæmt til þess að greiða vegna málsvarnarkostnaðar ákærðu í Baugsmálinu,
e. annað, áður ótalið, sem eðlilegt er að telja hafa lent á ríkissjóði vegna málsins?
Þá er spurt hve stór hluti af starfsemi efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á framangreindu tímabili hafi farið í Baugsmálið og hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra."
![]() |
Spurt um kostnað við rekstur Baugsmálsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.2.2007 | 16:39
Loksins brot á samkeppnislögum viðurkennt
Það var mikið að eitthvað virkar með þessum samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið er að standa sig hérna og gott að Síminn og Landsvirkjun viðurkenna augljóst brot á samkeppnislögum. Í fréttinni á mbl.is segir: "Samkvæmt upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu er forsaga málsins sú, að í febrúar 2005 keypti Síminn fjórðungshlut í Fjarska sem starfar m.a. á fjarskiptamarkaði ásamt því að kaupa af Fjarska sex ljósleiðarastrengi af 12 á milli Hrauneyjafossstöðvar og Akureyrar. Eftir að greint var frá þessu samstarfi í fréttum hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn, sem leiddi til þess að aðilum var sent andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins. Þar kom fram það frummat eftirlitsins að markmiðið með samningum félaganna hafi verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta og með því hafi aðilar farið gegn 10. gr. samkeppnislaga.
Í kjölfar þess að andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins var birt leituðu aðilar hvor fyrir sig eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið sem leiddi til þessarar niðurstöðu. Í sáttinni felst að aðilar málsins viðurkenna að hafa farið gegn 10. gr. samkeppnislaga og fallast á að ógilda þá samninga sem voru grundvöllur brota. Þá fellst Síminn á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir."
Það er mjög mikilvægt að á svona litlum markaði sé samkeppniseftirlitið enn virkara. Ég skrifaði um fákeppnina um daginn og það er hægt að lesa hér.
![]() |
Síminn og Landsvirkjun viðurkenna brot á samkeppnislögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2007 | 09:17
Lyf sem læknar allt
Verk Justin Cooper sem sýnt er í Daneyal Mahmood galleríinu í New York hefur vakið mikla athygli. Svo mikla að mbl.is hefur skrifað um verkið (en gleymdi að vísu að minnast á hver væri listamaðurinn). Þetta er auglýsingaherferð fyrir nýtt lyf sem á lækna alla dæmigerða "sjúkdóma" sem við þjáumst af, stress, öldrun, örvænting og svo framvegis. Sem sagt lyf sem mun slá í gegn í neysluþjóðfélaginu okkar. Hér er vesíða lyfsins góða og hér er umfjöllun um sýninguna. Skemmtilegt að í vörumerki lyfsins HAVIDOL kemur tákn sem er ansi líkt merki Skjás eins fyrir.
![]() |
Þegar mikið er ekki nóg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2007 | 15:55
Samgönguáætlun frestað vegna þenslu
Loksins er búið að tosa þessa samgönguáætlun út úr stjórnarflokkunum. Það verður spennandi að fylgjast með umræðum um þetta plagg næstu vikurnar. Allt það sem vantar í áætlunina og svo framvegis. Milljarðar og milljarðar, maður dettur eiginlega úr sambandi við raunveruleikann við að lesa þetta yfirlit. Allt lítur út eins og smotterí í samanburði við þessar upphæðir, nema náttúrulega framlög BNA til hermála sem toppa auðvitað allt! En svo er aldrei að vita hvað þessi samgönguáætlun heldur. Þessi ríkisstjórn fór auðvitað létt með það strax eftir síðustu kosningar að fresta framkvæmdum og skera niður um nokkra milljarða, aðallega í vegagerð á Vestfjörðum og á Norðurlandi, vegna þenslu sem allt í einu datt inn um bréfalúguna hjá ráðherrunum. En sem betur fer verða þessir ráðherrar komnir í frí eða allavega stjórnarandstöðu eftir nokkra mánuði.
![]() |
Rúmir 380 milljarðar til vegagerðar á næstu 11 árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2007 | 16:19
Lögreglumaður stakk af frá ákeyrslu
Maður les nú Austurgluggann reglulega og enn oftar kíki ég á netútgáfuna af honum. Þessi frétt úr Austurglugganum er ansi merkileg og hlýtur að hafa einhverja eftirmála. Lögreglan ætti auðvitað að vera fyrirmynd annarra og svona gera menn bara ekki. Hér er fréttin: "Íbúi á Seyðisfirði varð fyrir því að keyrt var á snjósleða sem hann átti sem stóð við íbúðarhús hans. Eigandinn sá þegar bíl var bakkað á sleðann, sem skemmdist töluvert, ökumaður bílsins kom út úr bílnum skoðaði sleðann fyrst lítillega og síðan bílinn sem skemmdist lítið. Ökumaðurinn horfði svo flóttalega kringum sig til að gaumgæfa hvort einhver sæi til hans,hélt að svo væri ekki og læddist burtu af vetttvangi án þess að láta vita. Eigandinn náði hinsvegar númerinu af bílnum sem óhappinu olli, brúnum amerískum jeppa og kærði til lögreglu. Við rannsókn málsins kom í ljós að ökumaðurinn sem óhappinu olli er starfandi lögreglumaður."
![]() |
Allir helstu vegir landsins færir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.2.2007 | 08:50
Til hamingju Röskva
Röskva, samtök félagshyggjufólks, sigraði í kosningum til stúdentráðs Háskóla Íslands og er því komin með meirihluta. Til hamingju með þetta röskvufólk! Myndina fínu fékk ég lánaða af bloggsíðu Önnu Pálu bloggvinar. Það munaði ekki miklu og því skipti hvert atkvæði máli. Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins er greinilega ekki að virka og er það vel. Ég vona að þetta verði undanfari þess að félagshyggjuflokkarnir vinni meirihluta á þingi í vor!
![]() |
Röskva hlaut flest atkvæði í kosningum til Stúdentaráðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2007 | 13:41
Hægri-grænt er ekki sannfærandi
Ég er afar ánægður með að meirihluti hafi verið fyrir því að Framtíðarlandið bjóði ekki fram til Alþingis. Þetta eru grasrótarsamtök og eiga að vera þverpólitísk. Náttúruverndarsinnar sem finnst þau mál skipta mestu hljóta auðvitað að kjósa Vinstri græn í vor. Sumir sem ég hef talað við og eru eldheitir umhverfisverndarsinnar segast ekki geta kosið VG vegna afstöðu til evrunnar eða eitthvað þessháttar, eða af því að þau eru hægrisinnuð. Þegar nánar er farið út í þær skilgreiningar kemur svo oft í ljós að þau eru alls ekki svo hægrisinnuð og stundum tekst mér að sannfæra fólk um að Vinstri græn séu lang skásti kosturinn. Auðvitað ekki fullkominn fyrir alla en einfaldlega það besta í stöðunni. Hægri-grænt er bara þversögn að mínu mati. Allir umhverfsverndarflokkar í Evrópu sem fá eitthvað fylgi eru vinstrisinnaðir og hægristefna fer í eðli sínu ekki saman við umhvefisverndarstefnu. Það að ætla að búa til ný framboð um þessi mál eða um málefni aldraðra og þessháttar er ekki gáfulegt. Þannig er fólk bara að dreyfa kröftunum og það kemur stjórnarflokkunum best. Þessvegna hvet ég fólk til að sameinast um Vinstri græn, ganga í flokkinn ef þau vilja hafa áhrif og breyta einhverju og þá munum við geta fellt þessa ríkisstjórn og tekið upp betri stefnu í öllum málum. Í efnahagsstjórn, félagsmálum, atvinnumálum, evrópumálum og auðvitað umhverfismálum. Við fáum sennilega ekki hreinan meirihluta í vor þó að maður geti verið bjartsýnn en þá semjum við bara við Samfó og einhverja sem standa okkar málstað nærri. Mikilvægast er að umhverfisverndarfólk kjósi þann flokk sem hefur staðið í lappirnar í umhverfismálum, nefninlega Vinstri græn.
![]() |
Ómar Ragnarsson telur auknar líkur á framboði umhverfisverndarsinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.2.2007 | 12:32
Fólki er misboðið
Það er ekki að undra sterk viðbrögð fólks við dómi hæstaréttar þar sem dómur yfir kynferðisafbrotamönnum er mildaður. Mikil umræða hefur verið um dómin og viðbrögð Morgunblaðsins við honum. Björn Bjarna dómsmálaráðherra bregst hinsvegar ókvæða við og það sam gerði Hannes Hólmsteinn í Kastljósinu og finnst þeim Mogginn hafa brugðist. Mun fleiri hafa hinsvegar fagnað viðbrögðum Moggans. Hrafn Jökulsson skrifaði pistil um málið á bloggsíðunni sinni og og það sama hafa margir gert. Við eigum að sýna dómsvöldum aðhald.
![]() |
Yfir 200 mótmælabréf hafa borist Hæstarétti í tölvupósti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2007 | 22:06
Áhugaverð umfjöllun í New York Times
Það er áhugaverð umfjöllun í sunnudagsútgáfu New York Times um stóriðjuframkvæmdir á Íslandi undir fyrirsögninni: "Smokestacks in a White Wilderness Divide Iceland". Blaðakonan Sarah Lyall fjallar þar um Kárahnjúkavirkjun og álbræðslu Alcoa (aluminum smelter) á Reyðarfirði. Máltækið "Glöggt er gests augað" á vel við hér en Sarah Lyall ræðir við marga sem koma að málinu eins og Kervin Lowery frá Alcoa, Jón Sigurðsson og Sigurð Arnalds en einnig marga sem eru andvígir álvæðingu Íslands eins og Ólafur Páll Sigurðsson, Hjörleifur Guttormsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Andri Snær Magnason og Guðmundur Beck.
Það hefur einnig verið fjallað mikið um Kárahnjúkavirkjun í fjölmiðlum í Evrópu og afar gagnrýnin grein birtist til dæmis í Spiegel í Þýskalandi. Hér er hægt að lesa alla greinina í New York Times.
![]() |
New York Times fjallar um stóriðjuframkvæmdir á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?