Leita í fréttum mbl.is

Brjálæðislegar skuldir og viðskiptahalli


peningar

Skuldir fólks (ekki fyrirtækja) við bankana, námu í lok janúar 2007 hvorki meira né minna en 716 milljörðum króna samkvæmt gögnum sem Seðlabankinn sendi frá sér í gær. Þetta er skelfilega há upphæð og yfirdráttarlán eru 72 milljarðar og hækkuðu um tæplega 5 milljarða á einum mánuði! Yfirdráttarlánin hafa ekki verið hærri frá því í lok febrúar í fyrra. En þetta er ekki allt því heildarskuldir heimilanna við lánakerfið allt námu í lok september á síðasta ári 1.270 milljörðum króna.
Eignastaðan hefur að vísu batnað að mati Glitnis, sennilaga aðallega í steypu og bílum!
Við þetta bætist að ríkisstjórnin hefur sett nýtt met í viðskiptahalla sem er orðinn sá mesti frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Og svo tala þessir ráðherrar og fylgifiskar um "ábyrga fjármálastjórn" þegar allir sjá að þetta er met í klúðri. Auk þess eykst misskipting á Íslandi meira en í nokkru öðru landi Evrópu. Hverjir þurfa að taka sér frí frá ríkisstjórn?


mbl.is Skuldir heimilanna 716 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

svo ofan á allt saman eru Sparisjóðirnir að skila 9 milljarða króna hagnaði sem er methagnaður og það eru stofnanir sem áttu að standa fyrir allt annað en að hámarka hagnað sinn.

Jóhanna Fríða Dalkvist, 22.2.2007 kl. 13:51

2 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Ágætu bloggarar - Hugum að þessu HÉR í kvöld

Júlíus Garðar Júlíusson, 22.2.2007 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.