Leita í fréttum mbl.is

Karen Dúa opnar á Karólínu

100307

Það eru sjö opnanir í Gilinu í dag og ég er að verða of seinn á fyrstu opnanirnar sem eru klukkan 14:00. Ætla hér að birta fréttatilkynningu um sýninguna hennar Karenar Dúu og þjóta svo.

Karen Dúa Kristjánsdóttir

Draugurinn - ég

10.03. - 06.04.2007  
 

Velkomin á opnun laugardaginn 10. mars 2007, klukkan 14

Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Laugardaginn 10. mars klukkan 14 opnar Karen Dúa Kristjánsdóttir sýninguna "Draugurinn - ég" á Café Karólínu.
Karen er fædd á Akureyri 1982 og útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri 2006. Vinnustofa henner er í Gilinu og rekur hún þar ásamt félögum sínum gallerí BOX.
Karen segir um sýninguna á Café Karólínu:
"Maðurinn er jafnan forvitinn um líf á öðrum tilverustigum, hvort sem við afneitum því eða trúum heitt á það, - þá erum við forvitin. Verkin sem nú eru sýnd á Café Karólínu eru málverk unnin með olíu á striga. Þau eru óræð, minna okkur á drauga og skilja eftir spurningar.
Stundum birtast okkur óljósar myndir af verum sem við vitum ekki hvort að eru raunverulegar. Eru þetta draugar eða spegilmyndir af okkur sjálfum? Eru þetta kannski bara óljósar minningar að láta vita af tilvist sinni? Eða draugurinn af sjálfri mér í mismunandi myndum, hin mörgu andlit sjálfrar mín. Fylgir mér eins og vofa, tilfinningin að vera aldrei ein er góð. Draugurinn ég sem vill stundum bara hverfa, gufa upp út í loftið, vera ósýnileg og týnd í tímanum.  

Eru draugar dáið fólk, eða eru draugar jafnvel ekki til? Ímyndun ein sem lifnar við."

Nánari upplýsingar um verk Karenar eru á síðunni:
http://www.umm.is/UMMIS/Listamenn/Listamadur/625

Karen verður viðstödd opnunina.
Sýningin á Café Karólínu stendur til 6. apríl 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 10. mars 2007, klukkan 14.

Á sama tíma stendur yfir sýning Jónasar Viðars á Karólínu Restaurant. Sú sýning stendur til 4. maí 2007.

Næstu sýningar á Café Karólínu:

07.04.07-04.05.07        Aðalsteinn Þórsson
05.05.07-08.06.07        Edda Þórey Kristfinnsdóttir
09.06.07-06.07.07        Björg Eiríksdóttir
07.07.07-03.08.07        Elísabet Jónsdóttir
04.08.07-31.08.07        Dagrún Matthíasdóttir
01.09.07-05.10.07        Stefán Jónsson
06.10.07-02.11.07        Marsibil G. Kristjánsdóttir
03.11.07-30.11.07        Birgir Sigurðsson
01.12.07-04.01.08        Steinunn Helga Sigurðardóttir
05.01.08-02.02.08        Guðrún Vaka  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

kvitt. Er föst hér í Reykjavík

Jórunn Sigurbergsdóttir , 10.3.2007 kl. 22:11

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæri vinur, til hamingju með sýninguna. bið að heilsa kittý og börnum.

 steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.3.2007 kl. 13:44

3 identicon

Cactus spyr;

Mætir hlynur með bindi?

Cactus Buffsack (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 11:15

4 identicon

ef leið mín liggur norður .... kvitt vinur og til lukku

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 19:16

5 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

Cactus alltaf jafn brilljant í kommentum sínum

Hlynur, getur þú sent mér emailið þitt?  Ég þyrfti aðeins að spjalla við þig um kosningaslaginn framundann 

Brosveitan - Pétur Reynisson, 13.3.2007 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband