Leita í fréttum mbl.is

Er ekki tíu ára fangelsi fyrir veggjakrot aðeins of mikið?

bush2881Húlla, vesalings Oliver Jufer að vera dæmdur í hlekkjum í 10 ára fangelsi fyrir það eitt að spreyja yfir nokkrar  myndir af konungi Tælands. Ég sé að ég hef sloppið nokkuð vel hingað til! Löggurnar í Feneyjum voru til dæmis afar sáttar við spreyjið mitt þar um árið. Ef ég hefði skrifað eitthvað um Berlusconi getur verið að annað hljóð hafi komið í strokkinn. Félagar Bush voru ekki alveg eins kátir með nokkrar setningar sem ég skrifaði í Marfa, Texas 2002. Ég bendi hér á afar góða grein Ingólfs Jóhannessonar um "Stóra veggjakrotsvandann". Ég er einmitt að fara að spreyja smá um áliðnaðinn á veggverk.org í dag. Því verður örugglega tekið vel og ég slepp með fjögur ár. Hér eru nokkur verk og meira er á heimasíðunni minni.

artforum2139_001 usa424_001SMALL


mbl.is Tíu ára fangelsi fyrir veggjakrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir það sem Þrymur segir hér er umburðalindið meira, en svo er spurning hvort það sé ekki ofmikið.
Hér viðgengst ýmislegt í umgengni sem er ekki mönnum bjóðandi og þar á ég aðallega við umgengni gagnvart samfélaginu,svo sem veggjakrot, tyggjóklessur og hundaskít

Kjartan Jarlsson (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 08:21

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ótrúlegt, og þú heppinn kæri vinur það hefði getað farið illa í texas

knús

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 08:47

3 Smámynd: Tryggvi H.

Þú hélst einu sinni námskeið fyrir Akureyrísk millistéttarelítu-börn og þið spreyjuð stórann vegg í portinu í Gilinu.

Það er vel við hæfi að segja frá því hér á blogginu þínu að það var ég sem spreyjaði yfir það.  Notaði silfur-sprey eingöngu- og blátt letur, varð einmitt soldið eins og álveggur. 

Löggan kom að mér um miðja nótt (heilmikið verk- þurfti stiga og marga brúsa) og þeir trúðu því þegar ég sagðist vera í vinnu hjá kea við að fjarlægja veggjakrot (sagðist vera "cote'a" vegginn, sem þyrfti að gera á nóttunni svo ekki færi á bílana).- ekkert fangelsismál það Wúha!

Tryggvi H., 29.3.2007 kl. 09:22

4 identicon

Fyndið hvað könnunin þín er lík öðrum könnunum sem birst hafa undanfarið. Þver pólitískur lestur hjá þér

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 01:04

5 Smámynd: halkatla

ótrúlega svalt - ekki fangelsið heldur tjáningin, auðvitað er 10 ára fangelsi 10 árum of langt... greyið maðurinn

halkatla, 30.3.2007 kl. 11:15

6 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir athugasemdirnar öll. Kæra Anna, ég myndi aldrei spreyja yfir eigur einhvers án þess að fá leyfi (með undantekningunni í Feneyjum því þetta var bara bráðabirgða tréveggur við inngang Tvíæringsins og jafnvel löggunni var sama.) Rétt Balli með könnunina, nema Samfó fólkið fær nú vonandi ekki svona slæma útreið! En það hafa nokkrir bent á þetta og þó að þessi könnun sé nú ekki sérlega vísindaleg þá er gaman að þessu! Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 30.3.2007 kl. 14:28

7 identicon

Ég veit ekki en ég hélt alltaf að þeir sem stunduðu veggjakrot væru táningar á villigötum.  Ég veit að þú ert ekki á táningsaldri, spurning um hitt.

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.