Leita í fréttum mbl.is

Eitt ár á Moggablogginu, tvær nýjar kannanir og Al Gore

421298AÞað er mikill hátíðisdagur hjá mér hér í Berlín. Ekki vegna þess að þvottavélin okkar var rétt í þessu úrskurðuð svo gott sem ónýt heldur vegna þess að í dag er eitt ár frá því að ég flutti mig yfir á Moggabloggkommúnuna eftir stutta byrjun á öðru bloggi. Svo er maður enn í hátíðarskapi yfir nýja meirihlutanum í Borginni og því að vera laus við frjálshyggjuíhaldið. Það á auðvitað ekki að hlakka í manni yfir óförum annarra en hvað er annað hægt þegar maður horfir uppá gamla gengið og félaga þeirra eins og Sigurð Kára, Björn Bjarna, Villa fyrrverandi og Gísla M. og hin fara hamförum í bræði og láta út úr sér hluti sem erum svo vandræðalegir að annað eins hefur ekki heyrst lengi, ekki einu sinni hér á blogginu!

Ég er búinn að setja inn tvær nýjar kannanir á síðuna og í annarri er spurt hvernig fólki lítist á nýju borgarstjórnina? Og í hinni hvort Bjarni Ármannsson eigi að skila hlutabréfunum í REI? Ég hvet alla til að taka þátt og segja sína skoðun. Í síðustu könnun spurði ég hvort Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson eigi að segja af sér sem borgarstjóri? Hátt í 300 manns svöruðu á nokkrum dögum og "já" sögðu 86%, 11% sögðu "nei", 1% sagði "kannski", 1% "veit ekki" og 1% var "alveg sama". Afgerandi meirihluti fékk ósk sína uppfyllta þó að Villi hafi sjálfur ekki séð sóma sinn í að segja af sér þá virkaði allavega lýðræðið. Það getur maður svo þakkað Svandísi Svavarsdóttur sem hefur staðið sig eins og hetja og mun gera það áfram. Gömlu könnuninni þar sem spurt er um nafn á Ríkisstjórnina ætla ég að leyfa að vera aðeins lengur því þar eru spennandi hlutir að gerast. Til að byrja með var "Baugsstjórnin" vinsælast með 35% en hefur nú lækkað í 27,2% og "Þingvallastjórn" hefur einnig dalað úr 30% í tæplega 26,7%. Nafngiftin "Viðhaldið" hefur hinsvegar aukist mikið eða úr 10% í 20% og einnig hefur þeim fjölgað sem segja að hún heiti "Ekkert" úr 5% í 13%. "Framfarastjórn" og "Sáttastjórn" hefur aldrei átt miklu fylgi að fagna í þessari könnun.

Maður hefur varla við að óska fólki til hamingju með hitt og þetta hér á síðunni. Þjóðverjar eru afa stoltir af sínum vísindamönnum sem fengu Nóbelsverðlaun sinn hvorn daginn fyrir eðlisfræði og efnafræði. Doris Lessing hlaut bókmenntaverðlaunin verðskuldað og svo núna sjálfur "fyrrverandi næsti forseti Bandaríkjanna" eins og Al Gore kynnti sjálfan sig gjarnan. Til hamingju með það. Þessi úthlutun verður sennilega ekki til að kæta frjálshyggjuliðið sem er á fullu í afneitun á því að við mannfólkið og allur iðnaðurinn höfum eitthvað með hlýnun jarðar að gera. Hannes Hólmsteinn er sennilega miður sín í dag og mun seint jafna sig. En verðlaunin til Al Gore og lofslagsnefndar SÞ eru góðar fréttir fyrir umhverfisverndarsinna. Til hamingju öll!

Það eru komnar næstum 90.000 heimsóknir á bloggsíðuna mína og stóra talan kemur sennilega í dag og sá sem kvittar hérna og bætir við tölunni sem verður næst 90.000 fær afmælisgjöf frá mér senda í pósti (alvörupósti).


mbl.is Al Gore og loftslagsnefnd SÞ hljóta friðarverðlaun Nóbels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Það virðist sem alla vega samkvæmt fréttum að nýja stjórnin sé sprottin upp af hefndum Ólafur í Frjálslynda og Alfreð úr Framsókn eiga víst að vera að hefna sín en ég skal ekki segja um hvað rétt er en fínt nafn á nýju Borgarstjórnina væri hugsanlega hefndarstjórnin eða REI stjórnin og já það er satt að maður verður bara vandræðalegur að heyra hvernig Sjálfstæðisflokkurinn er að bregðast við

Katrín Ósk Adamsdóttir, 12.10.2007 kl. 12:48

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Hægri menn verða fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Dvergarnir sjö reknir á dyr og Al Gore fær Nóbelinn. Gaman að þessu!

Auðun Gíslason, 12.10.2007 kl. 14:15

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ha afmælisgjöf? Látum okkur sjá.... mig langar í....., ( nei djók ) Til hamingju annars með bloggið, og það  eru gleðitíðindi að það skuli vera komin ný borgarstjórn í RVÍK. 

Al Gore átti þessi verðlaun fyllilega skilið, ég sá myndbandið með honum þar sem hann fjallar um loftlagsbreytingar, umhverfismál og  hvaða áhrif hlýnun jarðar geti þýtt fyrir mannkynið, fyrirlesturinn hans var  líka vel fluttur. Umhverfismál eru mínar ær og kýr. Er svo lánsöm að vera gift umhverfisfræðingi sem er vel meðvitaður um þessi mál, það á að halda þessari umræðu enn meira á lofti svo fólk losni úr þessari  afneitun,  að mannfólkið hafi lítil sem enginn áhrif á umhverfið. mér finnst þetta stundum jaðra við heimsku.

Ætlaði samt ekki alveg að missa mig í að skrifa ritgerð á síðuna þína, vonandi geturðu fjárfest í nýrri þvottavél, annars á ég þetta fína þvottabretti heima sem ég get lánað þér

bestu kveðjur til Berlínar.  

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 12.10.2007 kl. 16:22

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Halló Krumma. Þú færð afmælisgjöfina (90.013 gestir). Ég vona að þú eigir ekki þessa bók nú þegar en ef svo er þá er alltaf hægt að skipta. Passar líka vel því þú áttir jú afmæli um daginn. Bestu kveðjur til Finnlands,

Hlynur Hallsson, 12.10.2007 kl. 16:31

5 Smámynd: Hlynur Hallsson

Já og takk fyrir að bjóðast til að lána mér þvottabretti en ég fer bara á næsta sjálfsafgreiðslu þvottahús sem er hérna við hliðina. Hver þarf þvottavél (eða þvottabretti) þegar hægt er að þvo þvott fyrir slikk á næsta horni. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 12.10.2007 kl. 16:34

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju kæri hlynur, og al gore er líka bara frábær, sá myndin með honum, og....... já ekki orð um það meir

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 21:14

7 Smámynd: Morten Lange

Húrra fyrir IPCC, lofstlagsnefnd  SÞ, segi nú ég.

Morten Lange, 12.10.2007 kl. 22:26

8 Smámynd: Jens Guð

  Ég veit bara ekkert um Al Gore.  Játa fáfræði út og suður.  En vitaskuld getur hann ekki verið annað en eitthvað gott í samanburði við böðulinn frá Texas,  Brúsk.  Kominn á sextugsaldur hélt ég að óreyndu að ég að ég þekkti ekki þessa tilfinningu að hata einhvern af virkilegri andúð.  En ég upplifi það á gamals aldri að láta böðulinn frá Texas angra mig. 

  Ég keypti meira að segja tvær pönkplötur sem heita Rock Against Bush fyrir síðustu kosningar í Bandaríkjunum.   

Jens Guð, 12.10.2007 kl. 23:26

9 Smámynd: arnar valgeirsson

númer 90154 en óska þér til hamingju með: níutíuþúsundamúrinn, borgarstjórnina og með að vera í góðu skapi, þrátt fyrir kvilla á heimilistækjum... sem geta sko gert mann graman. og ef hannes hólmsteinn er í fýlu vegna pólítíkur þá er tilefni til að vera bjartsýnn.

arnar valgeirsson, 13.10.2007 kl. 00:04

10 Smámynd: Fríða Eyland

Al Gore er ekki heilagur nema síður sé og ræman hans að einhverju tagi ósannur áróður, líttu á þetta

Nóbelsverðlaun ! hugtak sem breytist, virðingin fer þverrandi (þú veist vonandi hvaða gúrú íslendingar tilnefndu í ár til friðarverðlaunanna).

Fríða Eyland, 13.10.2007 kl. 03:43

11 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sæl öll og takk fyrir línurnar. Ég veð að biðjast afsökunar á því kæri frændi Jón Hnefill að hafa ekki haft samband við þig þegar ég stoppaði um daginn í tæpan sólarhring í henni Köben. Þetta var frekar þétt dagskrá en ég hefði átt að koma einum kaffibolla með þér fyrir. En það líður vonandi ekki á löngu þar til ég á næst leið hjá og þá skal ég muna eftir því að láta þig vita svo við getum fundið tíma og stað fyrir kaffi og spjall. Þú ert líka velkominn hvenær sem er til Akureyrar og ef þú átt leið hjá í Berlín á næstunni þá líka þangað.

Ég veit svo auðvitað að Al Gore er ekki fullkominn frekar en aðrir menn en hann rokkar um þessar mundir og á þennan Nóbel fyllilega skilinn ásamt IPCC. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 13.10.2007 kl. 08:30

12 Smámynd: Fríða Eyland

Hlinur, ertu þá einnig sáttur við tilnefningu íslendinga til friðarverðlaunanna í ár ?

Fríða Eyland, 13.10.2007 kl. 12:05

13 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Til hamingju með þetta allt saman

Laufey Ólafsdóttir, 14.10.2007 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.