Leita í fréttum mbl.is

Af hverju kýs fólk Sjálfstæðisflokkinn?

443972AÞað munar um minna fyrir venjulega fjölskyldu að þurfa að borga þriðjungi hærri vexti af húsinu sínu nú en gerði fyrir nokkrum árum. Og enn eru vextirnir að hækka. Það skuggalega við þetta er að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem stjórnar þessu á öllum stöðum, í Seðlabankanum, ríkisstjórninni og bönkunum. Og þingmenn Flokksins vildu helst af öllu leggja Íbúðalánasjóð niður og afhenda bönkunum lánastarfsemina alla á einu bretti. Af hverju kýs fólk þennan sjálftökuflokk?

Hér er fréttin úr 24 stundum: "Mánaðarlegar afborganir af 20 milljóna króna íbúðaláni hjá Kaupþingi banka til tæplega 40 ára sem tekið er í dag eru 33% hærri en ef lánið hefði verið tekið árið 2004 þegar bankinn fór út á íbúðalánamarkaðinn. Tilkynnt var eftir stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í vikunni að vextir af íbúðalánum hjá Kaupþingi yrðu hækkaðir í 6,4%. Þegar Kaupþing hóf að bjóða upp á íbúðalán voru vextir 4,15%.

Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir líklegt að vextir af íbúðalánum sjóðsins hækki um 0,5% á næstunni. „Það er markaðurinn sem ræður þeim vaxtakjörum sem við bjóðum. Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa hefur hækkað mjög að undanförnu, ekki síst eftir ákvörðun Seðlabankans [um að hækka stýrivexti]. Það er alveg ljóst að við næsta útboð má búast við því, við óbreyttar markaðsaðstæður, að vextir Íbúðalánasjóðs hækki."


mbl.is Afborganir lánsins hækka um þriðjung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Skil það alls ekki.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 3.11.2007 kl. 12:43

2 identicon

Heill og sæll, Hlynur og aðrir skrifarar !

Líkast til; er fólkið haldið meðvitaðri, eða ómeðvitaðri sjálfseyðingarhvöt, Hlynur minn.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 13:44

3 Smámynd: Bjarkey Gunnarsdóttir

Verð að taka undir með þeim sem hér hafa tjáð sig. Þetta hlýtur að vera sambland af óminni í áratugi og/eða sjálfseyðingahvöt. En vaninn teymir fólk oft lengi.

Bjarkey Gunnarsdóttir, 3.11.2007 kl. 13:51

4 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Já Hlynur þessu má velta fyrir sér.  Það er hins vegar ekki síður undarlegt að verða vitni að því að formaður VG skuli bakka upp þetta hörmulega dverg-krónuhagkerfi hávaxtanna eins og hann hefur margsinnis ítrekað og heyra mátti á honum þegar síðasta vaxtaákvörðun Seðlabankans lá fyrir.     Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir marga í VG að forystumenn flokksins skuli vilja ríghalda í ISK með þeim okurkjörum sem okkur bjóðast - í vöxtum og bankakostnaði og öðru verðlagi.   

Eigum við ekki bara að sameinast um að setja stefnuna út úr þessum okurkjörum íslenska krónuhagkerfisins - - - og setja Evrópusambandsaðildina í forgang?   Viðræður á dagskrá og aðild að EVRU um leið og skilyrðum er fullnægt? Slíkt mundi létta kjör almennings frá ákvörðunardegi. . . .

Það væri amk. líka leið til að frelsa okkur undan valdi Davíðs og sérhyggju Sjálfstæðisflokksins.. . . .rétt eins og aðilar vinnumarkaðarins eru farnir að kalla eftir.....

Benedikt Sigurðarson, 3.11.2007 kl. 14:58

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Röng hagstjórn er hluti þessa vandamáls. Röng hagstjórn er auðveldari hér vegna dvergkrónu og einangrunar frá alþjóðasamfélaginu. Af hverju kýs fólk Sjálfstæðisflokkinn...góð spurning sem ég get ekki svarað. Það sem Hlynur nefnir hér sem dæmi og kennir Sjálfstæðisflokknum er nákvæmlega það sem héldi áfram ef einangrunar og afturhaldsstefna VG næði fram að ganga í hér. Sem betur fer varð ekki að því að helstu afturhaldsflokkarnir næðu völdum hér eins og afturhaldsöflin í Sjálfstæðisflokknum vildu. Geir Haarde er Evrópusinni og því tel ég líklegt að þessi stefna og áherslur hverfi á næstu misserum fyrir árhrif Samfylkingarinnar. Davíð Oddsson og Steingrímur Sigfússon tvíburabræður í einangrun og afturhaldi verða áhrifalausir í framtíðinni sem betur fer.

Jón Ingi Cæsarsson, 3.11.2007 kl. 19:28

6 Smámynd: Jónas Rafnar Ingason

Allt er þetta hluti af að standa vörð um hagsmuni auðvaldsins (fjármagnseigendur). Markaðurinn er ekkert náttúrulögmál eins og margir virðast halda. Markaðurinn er aðeins eitt af þessum "kerfum" sem aðilar setja sem leikreglur í viðskiptum. Gæti ekki verið að fólk sé nauðugt til að taka lán á þessum kjörum vegna verðlags ofl. Mikil neysla skapar verðbólgu, en það eru ekki þeir sem verst eru settir sem neyta mest heldur þeir sem eiga peninga og oft hafa lægri lán eða alls engin. Hlutirnir eru ekki alltaf einfaldir, en vaxtahækkanir og verðbólga koma oft verst við þá sem minnst mega við því. Fjármagnseigendur eru tryggðir bak og fyrir með vöxtum og verðtryggingu. Jæja best að fara og njóta kvöldsins...........

Jónas Rafnar Ingason, 3.11.2007 kl. 20:27

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sumir kalla kjósendur sauði þegar þeir undrast fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Þetta er heimskuleg samlíking.

Ég er gamall fjárbóndi og fullyrði að rollurnar mínar voru mun greindari en mikll fjöldi kjósenda Sjálfstæðisflokksins.

Mínar rollur forðuðust alla þá sem sýndu sig í að verða þeim til óþæginda.

Forðuðust þá eins og fjandann sjálfan.

Árni Gunnarsson, 3.11.2007 kl. 20:37

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

ég reikna með að undirbúningur að breytingum hefjist fyrri hluta næsta árs. Hvenær evra verður orðinn gjaldmiðill er erfiðara að spá...það ræðst fyrst og fremst af því hvað aðildarviðræður og þjóðaratkvæðagreiðlan  þurfa langan tíma. Ef til vill 2010 Jón Kristófer

Jón Ingi Cæsarsson, 3.11.2007 kl. 20:46

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Kristinn.

 Er það ekki afl atkvæðanna sem stýrir þjóðfélagsástandi?

Sem verndar "besta fiskveiðistjórnkerfi í heimi?"

Sem verndar báknið utan í Arnarhólnum með stýrivaxtaheilkennið?

Sem ber ábyrgð á dýrustu málssókn sögu okkar vegna óvildar "undarlegrar" persónu til ákveðinna manna?

Og svo margt, margt fleira.

Árni Gunnarsson, 3.11.2007 kl. 23:50

10 identicon

Heill og sæll, Hlynur og skrifararnir hinir !

Jón Ingi ! Þar; sem heldur gerist kvöldsett, þá ég hamra þetta ritkorn, á lyklaborð mitt, vil ég spara, um hríð; þá skammadembu, hverja ég hugði þér, að nokkru. En; ....... það, að leggjast undir svikamyllu bandaríska leppríkja bandalagsins; hið Stór- Þýzka Evrópska samband, eru, og verða að skoðast; sem drottinssvik, líka sem smánun og lítilsvirðing, við landvætti Íslands.

Það á að vera MENNSKA okkar Íslendinga, að lagfæra okkar efnahagsmál, sem og önnur, SJÁLFIR; þótt svo einhverjir jakkafatadrengir, suður í Reykjavík þurfi að axla sín skinn ! Ekki, að hrópa eftir utanaðkomandi ''hjálp'', og það allra sízt, með Stór- Þýzkaland (Evrópusambandið) í fararbroddi, hvað þú skoðir, og afskaffir ei, mína meiningu; þar um, Jón Ingi og slekti þitt allt, hvað í Samfylkingu, sem öðrum skúmaskotum síngjarnra finnst, eða kann að finnast.  

Mbk., sem fyrr / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:53

11 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Óskar...það er alltaf eitthvað fallegt við barnslega trú á einfaldleikan.

Jón Ingi Cæsarsson, 4.11.2007 kl. 01:23

12 Smámynd: haraldurhar

Það hlýtur að vera krafa okkar að ríkistjórn gangi geri gangskör af því að breyta lögum um seðlabankann, og í framhaldi af því að skipta út stjórnendum, og skipa EINN Seðlabankastjóra,  sem hefur menntunn og reynslu til að gegna því starfi, eins og gert er í öllum þeim ríkjum, sem við viljum bera okkur saman við.

  Ofurvaxta stefna seðalbankans er á góðri leið að koma okkur á vonarvöl, öll útflutningstafsemi og samkeppinsiðnaður er á brauðfótum, vegna rangskráningar gengis.  

Eg tel ekki að innganga í Esb, eða upptaka evru séu endilega lausnin, sé ekkert því til fyristöðu að hafa áfram kr, en tengja skráningu hennar við gengiskörfu, eða þa bara við Evruna.

Það ætti öllum vera ljóst í frjálsu flæði fjarmagns, þá gagnar nánast ekkert að ætla sér að stjórna með vöxtum einum og ´sér.  Krónan er í dag einungis gjaldmiðill þeirra efnaminni

Það hefði verið okkur mikið hagstæðara, ef Davíð hefði skipað sig í stöðu Yfirdýralæknis, eða þá Landlæknis.

haraldurhar, 4.11.2007 kl. 01:27

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Alveg leiftursnjöll ábending hjá þér haraldurhar,-þetta með yfirdýralækninn.

Árni Gunnarsson, 4.11.2007 kl. 10:46

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

P.s. En enda þótt Davíð sé óskoraður leiðtogi hvar sem hann fer og enda þótt hann sé afburðamaður að gáfum og leiftrandi glöggskyggni á aðstæður.

Og enda þótt hann sé jafnframt frekjuhundur og láti oft stjórnast af slæmum lyndisgöllum og taki þá afburða heimskulegar ákvarðanir, þá trúi ég því nú naumast að hann standi einn að þessum ákvörðunum um stýrivextina. 

Árni Gunnarsson, 4.11.2007 kl. 11:00

15 Smámynd: Fannar frá Rifi

Röng mynt. röng hagstýring. vondi sjálfstæðisflokkurinn.

Við erum eitt ríkasta land í heimi. hagvöxtur er gríðarlegur. velmegun svo mikil að við erum löngu hætt að gera okkur grein fyrir því. 

lán eru mjög há í dag. samt er verið að taka hærri og hærri lán. hvernig er hægt að skýra það með öðrum hætti en að við getum borgað af þeim?

hvað myndi gerast ef íbúðalánsjóður myndi bjóða út húsnæðislán á segjum 2% vöxtum? íbúðarverð myndi tvöfaldast á við það er núna.

bankarnir í landi keppast núna hver í kapp við annan að bjóða út sem allra bestu innláns vexti og kjör. afhverju? því þeir eru gjaldeyrislausir. það er skortur á fjármagni til þess að endurlána sem útlán. það er skortur á peningum.

þannig að þeir vextir sem eru í dag, eru ekki of háir. meðan fólk tekur lán á þeim vöxtum þá eru þeir ekki of háir. um leið og vextirnir verða of háir, þannig að útlánastarfsemi hættir, þá stoppar þennslan og vextir byrja að lækka aftur.

þetta er mjög eðlilegur hlutur og skiljanlegur fyrir alla þá sem einhvern áhuga hafa á því að kynna sér þessa hluti án fyrirframgefina fordóma. 

Fannar frá Rifi, 4.11.2007 kl. 12:27

16 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ein ástæðan fyrir miklu fylgi Sjálfstæðisflokksins er að taka helst ekki afstöðu til eins né neins, sérstaklega ef mál geti valdið einhverjum deilum. Innan Sjálfstæðisflokksins er mjög illa séð ef einhver byrjar að rugga bátnum, því þá verða menn sjóveikir! Munum við eftir því þegar Ólafur F. Magnússon kom með tilligu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og hann hafði ekki fengið blessun Davíðs á tillögunni? Davíð fékk einhvern sporgöngumann sinn til að tala gegn tillögu Ólfas og það leiddi til að leiðir skildu og Ólafur fór í Frjálslynda flokkinn.

Sjálfstæðisflæokkurinn er einnig mjög fundvís á þingmál sem eru til þess fallin að vera vinsæl. Sjáum t.d. brennivínsfrumvarpið heilbrigðisráðherrans og fleiri. Tilgangurinn með því er auðvitað sá að hygla verslunareigendum og að fá í leiðinni nokkur atkvæði einkum ungs fólks sem ekki eru sérstaklega gagnrýnin á svona frumvörp.

Frá eldri tíð má skoða frumvarp Ólafs Thors um að selja Mosfellshreppi Mosfellsheiðina sem tekin var frá kirkjunni!  Þetta gerðist um 1930 og síðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn notið mikils fylgi í þessu sveitarfélagi. Ómeðvitað fylgir traustið gegnum kynslóðirnar og enginn kjósandi Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu veit öllu lengur af hverju afinn og amman velja Sjálfstæðisflokkinn en ekki einhvern annan. Sjálfstæðisflokkinn er nokkurs konar trygging fyrir kjósanda sem gerir litlar kröfur að þurfa ekkiað taka neina afstöðu. Bara kjósa eins og afi og amma!!

Bestu kveðjur norður heiðar! 

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 4.11.2007 kl. 12:39

17 identicon

Heill og sæll, sem fyrr Hlynur sem skrifarar aðrir !

Jón Ingi ! Orðhengilsháttur; sem útúrsnúningar, eru ein sterkustu einkenni ykkar Samfylkingarmanna. Liggur við; að hvað eina, sem ykkur væri bent á, til þess að snúa út af braut fylgispektarinnar; við hið nýja Stór- Þýzkaland (Evrópusambandið), hvað svarið hefir sig, í fóstbræðralag við bandarísku heimsvalda sinnana, myndi litlu breyta, sökum óútskýranlegrar Brussel/Berlínar glýju ykkar.

Vill svo til; Jón Ingi, að ég, ásamt fjölda annarra kjósum, að auka tengsl okkar við Rússland - Kína - Indland - Japan og ríki Mið- og Suður- Ameríku, sem og Kanada, á komandi tímum, og ekki væri hyggilegt, að við værum lokuð inni, í Evrópskri kró, hvaðan útgönguleiðir kynnu að verða torveldar.

Það er mín meining; Jón Ingi ! Eflaust; er tilgangur ykkar Samfylkingarmanna hinn vænsti, en,..... má til, að benda ykkur á, að skoða málin, í heildarsamhengi, Jón minn.

Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 14:14

18 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Ja ég er ekki alveg að skilja þetta en sjálf hef ég aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn en það virðist þó að miða við kostninguna sem flokkurinn fær að það sé nógu mikið af fólki sem það gerir.

Katrín Ósk Adamsdóttir, 4.11.2007 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband