Leita í fréttum mbl.is

Vestfirðir á teikniborðinu

Sudavik

Hlutirnir varðandi stóra REI málið eru að skýrast og ánægjulegt að Sjálfstæðismenn eru að sjá að sér, það vantar bara Villa í hópinn. Svandís Svavarsdóttir hefur stýrt þessari upplýsingarvinnu af mikilli röggsemi og auðvitað á að halda áfram að nýta þann mannauð og þekkingu sem skapast hefur innan OR til góðra verka erlendis. Það á hinsvegar ekki að afhenda auðmönnum enn einu sinni á silfurfati auðlindirnar okkar og það er ánægjulegt. Um næst helgi verður haldið vetrarþing Framtíðarlandsins á Ísafirði þar sem nýsköpun og annarskonar auðlindir verða á dagskrá. Vestfirðir hafa verið afskiptir hvað varðar hagvöxt og áherslur stjórnvalda í atvinnumálum en fólkið fyrir vestan hefur sýnt að þau ætla ekki að gefast upp enda hafa Vestfirðir upp á svo margt að bjóða. Þetta er spennandi dagskrá og hér er tilkynning frá Framtíðarlandinu:


Vestfirðir á teikniborðinu
Vetrarþing Framtíðarlandsins


Edinborgarhúsinu, Ísafirði
Laugardaginn 10. nóvember

Í þröngum fjörðum Vestfjarðakjálkans hafa Íslendingar í hundruð ára lifað í sambýli við myrkur, einangrun og óútreiknanleg náttúruöfl. Í gegnum þá sögu hafa Vestfirðingar tileinkað sér atgervi, ósérhlífni og þor sem á sér fáa líka. Þessir eiginleikar sjást hvergi skýrar en í öflugu nýsköpunarstarfi í atvinnumálum Vestfjarða.

Í byrjun nóvember efnir Framtíðarlandið til Vetrarþings undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu“ þar sem sest verður á rökstóla um stöðu nýsköpunar á Vestfjörðum. Á þinginu mun Framtíðarlandið leiða saman sérfræðinga á sviði nýsköpunar og fremstu eldhuga vestfirsks atvinnulífs.

Um er að ræða tímamótaviðburð fyrir alla sem láta sig vestfirsk atvinnumál varða. Þingið fer fram í Edinborgarhúsinu laugardaginn 10. nóvember, milli 9 og 17. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, en þátttakendur skulu tilkynna komu sína á netfangið johanna.k.magnusdottir(hjá)gmail.com

Dagskránna má lesa á heimasíðu Framtíðarlandsins: http://framtidarlandid.is/vetrar-ing

Þingstjóri er Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir

9:00 Þingstjóri setur þingið

Morgunþing: Nýsköpun í verki

9:10 Efnahagsleg velferð borga og bæja | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson opnar morgunþingið með erindi

9:35 Sjóstöng í Sókn | Elías Guðmundsson fjallar um sjóstangveiði á Vestfjörðum

9:55 Er eitthvað á fólkinu að græða? | Helga Vala Helgadóttir ræðir um menningar- og atvinnulíf á Vestfjörðum

10:20 Kaffihlé


Morgunþing: Nýsköpun í verki frh.

10:40 Kynngikraftur Náttúrunnar | Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flytur erindi um Villimey ehf.

11:05 Strandagaldur | Sigurður Atlason fer yfir sögu Galdrasýningar á Ströndum og framtíðarsýn.

11:30 Sigmundur Davíð tekur fyrirlestra saman og stjórnar umræðum

12:15 Hádegisverður

13:00 Tónlistaratriði | Tríó Kristjáns Hannessonar, Hrólfur Vagnsson og Haukur Vagnsson

13:30 Viðburðir í Ísafjarðarbæ og ímynd bæjarins í máli og myndum | Rúnar Óli Karlsson

13:45 Framtíðarsýn í heimabyggð | Steinþór Bragason

14:10 Ímynd og ásýnd Vestfjarða | Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu

Kl. 14:35 - Kaffihlé


Eftirmiðdagspallborð: Auðlind sérstöðunnar
15:00 Björg Eva Erlendsdóttir opnar eftirmiðdagsþingið og stýrir pallborði:
    •     Peter Weiss | Háskólasetur Vestfjarða – Ísafirði
    •     Alda Davíðsdóttir | Sjóræningjahúsið – Patreksfirði
    •     Guðmundur Guðjónsson | Kalkþörungaverksmiðjunni – Bíldudal
    •     Harpa Grímsdóttir | Veðurstofu Íslands – Snjóflóðasetur Ísafirði
    •     Arthúr Bogason | Félag smábátaeigenda


 16:00 Lokaorð | Ólafur Sveinn Jóhannesson

 16:30 Þingstjóri tekur þingið saman og slítur því

Kvöldverður hefst klukkan 19:30 á veitingastaðnum Við Pollinn á Hótel Ísafirði. Matseðill er svohljóðandi:
    •     Steiktur saltfiskur á seljurótarmauki með tómatsultu
    •     Léttsteiktar nautalundir með kartöflupressu og madeiragljáa
    •     Jarðarberja- og vanillufrauð með pistasíuís
    •     Te eða kaffi



mbl.is Þurftum að taka afstöðu því tíminn var að renna út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér finns það vægast sagt einkennilegt, að stór hópur fólk að mér sýnist, skuli blása til heljar ráðstefnu um atvinnumál á Vestfjörðum, án þess að nokkuð verði fjallað um lang stærsta óvin vestfirðinga, fiskveiðistjórnunarkerfið. Reyndar sé að formaður smábátaeigenda, Arthúr Bogason verður þátttakandi í pallborðsumræðum, sem dálítið skondið því smábátaútgerð hentar ekki beinlínis vel á Vestfjörðum og ekki líkleg til að halda uppi jafnri og heilbrigðri atvinnustarfsemi þar um slóðir. Það má vel vera, að galdrasnobb á Ströndum og sjóstangveiðistúss sé ágætis stúss fyrir fáa og eina, en skiptir þó engu máli þegar upp er staðið. Það er lýsandi fyrir þann barnaskap, að ég segi ekki kjánaskap, þeirra sem standa að þessari ráðstefnu, að það skuli vera nýaðflutt menningarsnobbgella sem á að ræða um atvinnulíf á Vestfjörðum, sem og auðvitað menningarmál. Hvers lags sýndarmennska er þetta eiginlega og uppskafnigsháttur?

En Kvótkerfið illræmda er ekki á dagskrá menningarelítunnar sem ætlar að heiðra Vestfirði með ráðstefnu um nýsköpun í atvinnulífinu á svæðinu. Nær væri að Framtíðarlandið gæfi sér tíma til að kafa ofan í íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið og reyna að fá tilfinningu fyrir þeim hörmungum sem þetta óþverra fyrirkomulag hefur haft á Vestfirði, á og landsbyggðina í heild. Á Vestfjörðum háttar þannig til, að ekkert getur komið í staðinn fyrir eðlilegan aðgang heimamanna að fiskimiðum sínum. Á Vestfjörðum þýðir ekkert að byggja hús úr pjátri, þar dugar ekkert minna en sterk hús á öflugum grunni. Og gunnurinn fyrir framtíð og uppbyggingu Vestfjarða liggur í fiskimiðunum og aðgangi heimamanna að þeim. Allt annað er meinlaust kjaftæði, sem ekki getur einu sinni flokkast undir hálfkák.

Jóhannes Ragnarsson, 5.11.2007 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband