13.2.2008 | 15:10
Rugl í álliðinu
Hvaða della er að taka skóflustungu að einhverri álbræðslu sem aldrei á að rísa? Er ekki orðið löngu ljóst að það er hægt að selja orkuna til fyrirtækja sem skapa meiri arð, fleiri störf og menga mun minna? Ætti bæjarstjórinn í Reykjanesbæ ekki að fara frekar að rukka fyrir húsin sem hann "seldi" vinum sínum á Vellinum í staðinn fyrir að grafa holur?
Svör:
1. Íhaldsdella
2. Jú
3. Nákvæmlega
Framkvæmdir við álver í Helguvík að hefjast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:14 | Facebook
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Hvað skoðar þú að meðaltali margar bloggsíður á dag?
Hvar býrð þú?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Bloggvinir
- Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Aldís Gunnarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Rúnar Ingason
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Lilja
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Anna Þorbjörg Jónasdóttir
- Ari Matthíasson
- Arinbjörn Kúld
- arnar valgeirsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Auðun Gíslason
- Árni Árnason
- Árni "Gamli" Einarsson
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ása Richardsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Ásta Möller
- Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
- Ásta Svavarsdóttir
- Baldur Gautur Baldursson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Barði Bárðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Bergþóra Jónsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- BookIceland
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Davíð
- Dofri Hermannsson
- DÓNAS
- Edda Agnarsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Elfar Logi Hannesson
- Elín Sigurðardóttir
- Ellý Ármannsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- erlahlyns.blogspot.com
- ESB og almannahagur
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Forvitna blaðakonan
- FreedomFries
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Gammur drils
- Gaukur Úlfarsson
- Geiri glaði
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Tryggvason
- Goggi
- gudni.is
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- halkatla
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Kristinn Haraldsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Bjarnason
- Haraldur Davíðsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Haukur Vilhjálmsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hildur Sif Kristborgardóttir
- Hilmar Björgvinsson
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hjalti Már Björnsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlédís
- Hlynur Sigurðsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hreiðar Eiríksson
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Ibba Sig.
- Indriði Haukur Þorláksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Ingimar Björn Davíðsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- íd
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Björnsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jónas Viðar
- Jón Bjarnason
- Jón Hafsteinn Ragnarsson
- Jón Hrói Finnsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Kolbrún Kolbeinsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristján Pétursson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Linda Rós Jóhannsdóttir
- Listasumar á Akureyri
- LKS - hvunndagshetja
- Logi Már Einarsson
- Magnús Bergsson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Paul Nikolov
- Páll Helgi Hannesson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Thayer
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Björgvin
- Pétur Þorleifsson
- Pollurinn
- Ragnar Bjarnason
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Ransu
- Rauður vettvangur
- Róbert Björnsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Dögg
- SeeingRed
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigrún Dóra
- Sigtryggur Magnason
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Hólm Gunnarsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón M. Egilsson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sól á Suðurnesjum
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Steindór Grétar Jónsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Stjórnmál
- Svansson
- Svanur Jóhannesson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- SVB
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sverrir Þorleifsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Már Sævarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sölvi Breiðfjörð
- Thelma Ásdísardóttir
- Theódór Norðkvist
- Tinna Eik Rakelardóttir
- Tíðarandinn.is
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- TómasHa
- Trúnó
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tryggvi H.
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Úrsúla Jünemann
- Valgeir Bjarnason
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- Viðar Eggertsson
- Vika símenntunar
- Vilberg Helgason
- Vinir Tíbets
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórbergur Torfason
- Þórdís tinna
- Þór Gíslason
- Þór Jóhannesson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
Athugasemdir
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Suðurnesjamenn. Árni hefur unnið ötullega að þessu ásamt fjölda annara og það er frábært að þetta sé loksins að verða að veruleika.
Störf hjá Álverinu henta ekki síður tæknimenntuðu fólki en ófaglærðu. Álverið mun skapa dýrmætar tekjur fyrir fólkið sjálft og útsvarstekjurnar skila sér svo inn í viðkomandi sveitarfélag á Suðurnesjum. Reynslan af álverinu á Grundartanga er líka í þessum dúr, þar hafa meðaltekjur hjá starfsfólki verið með því hæsta sem gerist á Vesturlandi og viðkomandi sveitarfélög hafa notið góðs af með ýmsum hætti.
Íhaldsdella segir þú? Held að almenn sátt sé um þessar framkvæmdir innan flestra flokka fyrir sunnan, VG hafa reyndar aldrei verið flinkir í að koma með/framfylgja atvinnuskapandi hugmyndum svo þessi sorglega grein þín kemur ekki á óvart. Atvinnuleysi er mest hér á Suðurnesjum – og fer vaxandi. Á suðurnesjum er ekki hægt að tína fjallagrös......þið í VG ættuð að reyna að finna lausnir, væri skemmtileg tilbreyting.
Álbræðsla sem aldrei á eftir að rísa?? Hví segir þú það, lastu ekki fréttina? Nei vinstri afturhaldsseggir koma ekki í veg fyrir þetta
Það er blómleg uppbygging í gangi fyrir sunnan, Álverið verður bara enn ein rósin.
Til hamingju Suðurnesjamenn segi ég.
Örvar Þór Kristjánsson, 13.2.2008 kl. 16:22
En dæmigerð athugasemd hjá Jonna vini mínum ! Bregðumst við þegar allt er komið til andskotans og alls ekki fyrr ! Heyrði um daginn frasann "illa vinstri grænn" og fatta núna við hvað var átt.
Högni Páll Harðarson, 14.2.2008 kl. 00:14
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er innan við 2% sem flokkast ekki undir alvarlegt ástand en ber auðvitaða að laga, en ekki með álbræðslu. Hvar eru netþjónabúin, eldfjallagarðurinn og skapandi störfin? Dettur álliðinu aldrei neitt í hug annað en enn ein álbræðslan? Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 14.2.2008 kl. 00:27
Atvinnuleysi er 2.4%
Flokkast ekki undir alvarlegt ástand, en gerir þú þér grein fyrir því Hlynur hversu margir Suðurnesjamenn sækja vinnu út fyrir Suðurnesin? Það er slatti. Gerir þú þér grein fyrir að blikur eru á lofti um aukið atvinnuleysi, þá sér í lagi á þessu svæði? Álverið er himnasending fyrir fólkið á Suðurnesjum, það er yfirgnæfandi meirihluti íbúa sammála um. Ætla bara rétt að vona að afturhaldsöflin komi ekki í veg fyrir þessa framkvæmd sem er öllum til heilla. Hlakka til þess að sjá ykkur VG-ista og bræður/systur ykkar úr Saving Iceland mótmæla í náttúruperlunni Helguvík.
Netþjónabú eru velkomin, eins og allt annað skapandi. Það er ekki málið.
Málið er einfalt, framkvæmdir við Álver í Helguvík hafa verið í mörg ár í undirbúning. Nú er þetta að verða að veruleika sem er fagnaðarefni fyrir Suðurnesjamenn. Enn ein álbræslan... Veit ekki annað en þessar Álbræðslur hafi skilað gríðarlega miklu í íslenskt samfélag, meira en þig grunar. Það er óumdeilt. Það skiljið þið ekki vinstri menn, illa vinstri grænir sem hafið aldrei neinar lausnir enda fáið þið ekki umboð til þess að stjórna!
Örvar Þór Kristjánsson, 14.2.2008 kl. 18:29
Veist þú Örvar hvað stór hluti af þessum 2,4% eru konur? Mig grunar að það sé meirihlutinn, sem sennilega á þá að vinna í álbræðslunni (aðallega við skúringar og mötuneyti eins og hjá Alcoa/Rio Tinto) eða hvað?
Það er ekki til endalaus orka og nú þegar eru vandræði með að útvega orku fyrir þessa "fyrirhuguðu" álbræðslu. Og þá verður ekkert eftir fyrir netþjónabúin, kísilflöguverksmiðjuna og allt annað, sem er hellingur.
Og mengunarkvótar eru fullir og ekki á þá bætandi.
Álbræðslur skila því miður litlu inn í íslenskt samfélag. Meðan til dæmis um 80% af verðmætum við sjávarútveg verður eftir í landinu er það hlutfall aðeins 35-40% í álinu. Semsagt minna en ferðaþjónustan er að skila.
Við Vinstri græn höfum lausnir og sem betur fer víða umboð til að stjórna en það mætti vera víðar það er vissulega rétt.
Villi Egils er sorglegur, vælandi með blauta tusku í andlitinu, í Árna Matt og ríkisstjórninni um álbræðslur. Hann er sjálfum sér og sínum samtökum til skammar. Hann er að taka við af LÍÚ forystunni í vælinu.
Við eigum endalausa möguleika það þarf bara að nýta á bestu.
Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 15.2.2008 kl. 00:38
Endalausir möguleikar já, einhversstaðar hefur maður heyrt þetta áður. Vinstrimenn voru einhverntíma talsmenn hinna vinnandi stétta en það er langt síðan ég áttaði mig á því að sá tími er löngu liðinn.
Listamaðurinn Hlynur og fyrrverandi alþingismaðurinn fer með fleipur þegar hann segir:
"Mig grunar að það sé meirihlutinn, sem sennilega á þá að vinna í álbræðslunni (aðallega við skúringar og mötuneyti eins og hjá Alcoa/Rio Tinto)"
Í álveri Alcoa á Reyðarfirði er hæsta hlutfall kvenna í heiminum að ég hygg í sambærilegum verksmiðjum, en af um 400 starfsmönnum eru yfir 150 konur. Starfsmannastefna fyrirtækisins er að þarna verði um helmingur konur. Gólfin í kerskálanum eru nú ekki skúruð og þrif skrifstofubyggingar álversins eru í höndum verktaka.
Ég óska ykkur farsældar á Suðurnesjum Örvar, í atvinnuuppbyggingu á svæðinu og látið ekki afturhaldskommatittina draga úr ykkur kjarkinn
Bestu kveðjur frá Reyðarfirði!
Gunnar Th. Gunnarsson, 15.2.2008 kl. 01:13
"Veist þú Örvar hvað stór hluti af þessum 2,4% eru konur? Mig grunar að það sé meirihlutinn, sem sennilega á þá að vinna í álbræðslunni (aðallega við skúringar og mötuneyti eins og hjá Alcoa/Rio Tinto) eða hvað?" skrifar Hallur.
Ég verð nú að segja það hér, mér finnst þetta ansi hrokafullt í garð kvenna, að gefa í skyn, að þær geti eingöngu skúrað eða eldað.
Á hvaða öld er maðurinn?
Hvernig væri að Hallur og (þessir örfáu) skoðanabræður hans kynntu sér hlutfall kvenna við hin ýmsu störf við álverið á Reyðarfirði og kynntu sér við hvað þær starfa, áður en farið er af stað með svona skrif.
Benedikt V. Warén, 15.2.2008 kl. 13:41
Biðst forláts, - þar sem ég nefni Hall hér að framan, á ég auðvitað við Hlyn, sem er Hallsson.
Benedikt V. Warén, 15.2.2008 kl. 14:08
Sæll Sigurður. Þetta er ekki hrokafullt í garð kvenna, ekkert væri mér fjær. Það er hinsvegar staðreynd að í álbræðslum á Íslandi starfa um 80% karlar og 20% konur. Og konurnar eru því miður í verst launuðu störfunum (fyrir utan eina!)
Ég er staddur á 21. öldinni kæri Benedikt en þungaiðnaður eins og þessar álbræðslur sem þú viðist hrifinn af eru hinsvegar 20. aldar drasl. Iðnbyltingin var fyrir rúmlega hundrað árum. 21. öldin verður öld hinna skapandi greina. Ég mæli með því að Gunnar, Benedikt og Örvar hrökkvi nú inn í nútíðina og hætti þessu rausi.
Og hið frábæra orð Davíðs Oddssonar "afturhaldskommatittir" var sagt um Samfylkingarfólk en ekki okkur í Vinstrihreyfingunni grænu-framboði, bara svo því sé einnig haldið til haga. En sumir menn eru auðvitað snillingar í því að hagræða staðreyndum, snúa út úr og bulla.
En sem betur fer er batnandi mönnum best að lifa. Og það á vonandi við þremenningana.
Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 15.2.2008 kl. 15:22
Þú sérð lausn í netþjónabúum sem krefjast mikillar orku, virkjana og línulagna en leggjst svo gegn því þegar um Álbræðslu er um að ræða??
Hvar eru þessir endalausu möguleikar, nefndu einn sem gæti skapað hundruði starfa fyrir sunnan nú í ár??
Það geislar af þér hrokinn í skrifum þínum og vanþekking. Að þú skulir hafa verið þingmaður er sorglegt. Konur hafa tækifæri á góðum stöðum hjá Norðuráli, annað en skúringar og störf í mötuneytum. Reyndar ber ég fulla virðingu fyrir þessum störfum, enda unnið við slíkt sjálfur. Slík störf þarf ávallt að vinna. Þú setur þig á ansi háan hest en aldrei koma rökin gegn Álverinu, amk ekki haldbær. Mengunarkvótar eru fullir en oft þarf að fórna minni hagsmunum fyrir meiri og vel tímabært að hækka þessa kvóta.
Þú talar um að batnandi mönnum sé best að lifa. Okkur er einungis annt um svæðið okkar og viljum að fólk búi við atvinnuöryggi. Það sér það hver heilvita maður að tilkoma Álvers styrkir okkar tilvist, það þurfa allir að draga björg í bú.
Álver mun rísa, samstaðan á Suðurnesjum er mikil, sú samstaða og kraftur fólksins mun koma þessu í gegn.
Örvar Þór Kristjánsson, 15.2.2008 kl. 16:36
Hjá mér eru álverksmiðjur ekkert sáluhjálparatriði öfugt með þig Hlynur, sem ekki þolir slík fyrirbrigði. Ég er hins vegar hrifinn af öllu stórtæku og þar falla slíkar verksmiðjur vel að mínum hugsunarhætti. Það útilokar ekki meðalstór og lítil fyrirtæki og ég get upplýst þig um það að skógrækt er mér sérstaklega þóknanleg.
Ég tengist flugheiminum talsvert og sé ekki í bráð annað efni sem er jafn heppiegt í flugflotann. Ég er opinn fyrir nær öllum atvinnutækifærum og vil skoða þau með opnum huga, bæði stór og smá.
Ég hef búið á Austurlandi í um 50 ár og munað tímana tvenna í fjórðungnum. Ég man síldarævintýrið og uppgripin því samfara. Ég sá uppbygginguna, gleðina og athafnaþrána. Ég upplifði einnig hrunið í fjórðungnum þar sem á annað hundrað manns flutti af svæðinu á ári, sorgina og vonleysið.
Nú eru aftur tími uppbyggingar og sveiflan sem því fylgir blæs manni stolt í brjóst, að vera þáttakandi í þessari umbreytingu.
Benedikt V. Warén, 15.2.2008 kl. 16:46
Tek undir hvert orð Benedikts hér að ofan, álver er alls ekkert sáluhjálparatriði, bara gott tækifæri.
Þú gleymir því Hlynur að iðnbyltingin kom ekki hingað eins og víðast annarsstaðar í heiminum, fyrr en á allra síðustu árum... og við erum rétt í startholunum. En sem betur fer þá útilokar eitt ekki annað eins og Benedikt bendir á.
Og hvaðan hefur þú upplýsingar um hlutfall kvenna í Alcoa álverinu? Þú segir 20% en staðreyndin er yfir 30%. En staðreyndir hafa náttúrulega sjaldan skipt máli hjá afturhaldskommatittum (samheiti yfir forpokaða vinstrimenn)
Kveðja frá Reyðarfirði
Gunnar Th. Gunnarsson, 15.2.2008 kl. 17:41
Það er alltaf sama sagan, ef maður talar um álbræðslur, femínisma eða útlendingahatur hér á blogginu þá tryllist allt í athugasemdum frá mönnum sem eru með ál á heilanum, illa við jafnrétti eða fullir af kynþáttahyggju.
"Eitt stórt" lausnin virðist hanga yfir sumum sem eru blindir á báðum. Þetta er 19. aldar hugsunarháttur en sumir eru bara fastir í sömu hjólförunum. Sennilega ekki viðbjargandi. En maður getur samt haldið áfram að vona.
Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 19.2.2008 kl. 13:30
Hvað meinar þú Hlynur? Fólk sem er með álverum hefur fært ansi góð rök fyrir sínu máli hér að ofan t.d. Svo kemur þú eins og ykkar vinstri listamanna siður er með hroka og yfirlæti. Heldur þú virkilega að ég sé með ál á heilanum eða sé á móti jafnrétti? Ég skil ekki hvað er eiginlega að hjá þér, maður sem setið hefur á þingi að vera svona einfaldur. Það er nefnilega alltaf stungið höfðinu í sandinn hérna þegar menn koma með málefnanlegar athugasemdir. Þú talar um aðrar lausnir en kemur aldrei með þær. Þið nefnið uppbygginguna á flugvellinum sem note bene mengar meira en öll Álver á Íslandi til samans. En það skiptir ykkur umhverfissinnana engu máli, bara ef mengunin kemur frá áli þá gellur hátt í ykkur. Ég segi enn og aftur, er það furða að ykkur í VG er aldrei treyst til þess að stjórna eða taka vitrænar ákvarðanir þjóðfélaginu til heilla? Viltu ekki að allir þegnar landsins fái bara listamannalaun? Það væri sérdeilis fínt...
Örvar Þór Kristjánsson, 19.2.2008 kl. 14:15
Örvar málefnalegur og fyndinn að vanda.) Þessi samlíking með flugvöll og álver er í besta falli brosleg. Það eru allir sammála um að við verðum að hafa millilandaflugvöll (þó að flugvélar mengi) en það er ekkert að gera með allar þessar álbræðslur hér. Hvernig væri að fara að vinna úr þessu hrááli sem er brætt hérna og skapa þannig verðmæti?
Þó ég myndi birta hér langan lista um atvinnutækifæri þá myndi Örvar fussa og sveija því þar væri ekkert "nógu stórt". Og ég sagði ekkert um afstöðu Örvars til jafnréttis, þekki hana ekki og hef ekki séð hann skrifa neitt um jafnrétti, bara ál.)
Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 19.2.2008 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.