Leita í fréttum mbl.is

Alþjóðleg mótmæli gegn stríðinu í Írak verða þann 15. mars

15mars2008a

Næstkomandi laugardag, 15. mars, kl. 13, verður útifundur á Ingólfstorgi til að mótmæla stríðinu í Írak og krefjast friðar þar og um heim allan.

Þann 20. mars verða liðin fimm ár frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak með stuðningi íslensku ríkisstjórnarinnar. Mótmælaaðgerðir verða víða um heim á laugardaginn og í næstu viku undir kjörorðinu „Allur heimurinn gegn stríðinu”!


Ávörp:
Hjalti Hugason prófessor
Steinunn Rögnvaldsdóttir nemi


Tónlistarflutningur:
Hörður Torfason


Tökum höndum saman við almenning um allan heim.
Mótmælum stríðinu! 
Krefjumst friðar!
Stríðinu verður að linna!

Látið þetta berast. Segið vinum, vinnufélögum, nágrönnum.
Fjölmennum!

Nánari upplýsingar á Friðarvefnum, www.fridur.is. Fylgist með honum.

Í dag, 13. mars, munu SHA afhenda utanríkisráðherra og utanríkisnefnd tillögur um leiðir til að benda endi á hernámið og stríðið Írak. Þessar tillögur verða birtar innan skamms á Friðarvefnum.

Laugardaginn 15. mars, kl. 14.00, verða svo kaffiveitingar á Múltikúlti, Ingólfsstræti 8. Tilefnið er að 5 ár eru liðin frá innrásinni í Írak og hvetjum við alla til að mæta fyrst, kl. 13.00 og taka þátt í útifundi af því tilefni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Vonandi mæta sem flestir til að mótmæla ráni Bandaríkjamanna á olíulindum Íraks og stríðsglæpum þeirra í landinu, með stuðningi leppa þeirra hér á Íslandi.

Theódór Norðkvist, 14.3.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Magnús V. Skúlason

Hvernig er hægt að krefjast friðar ef hinn deiluaðilinn hefur ekki áhuga á því?

Magnús V. Skúlason, 14.3.2008 kl. 15:07

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gott hjá þér Hlynur að vekja athygli á þessu.

Munið svo að þetta er alþjóðlegur FRIÐARDAGUR.

Edda Agnarsdóttir, 14.3.2008 kl. 17:16

4 Smámynd: Alfreð Símonarson

Flott, ég tel þetta mjög gott framtak að krefjast friðar. Ég styð ykkur heilshugar.

Kær kveðja Alli.

Alfreð Símonarson, 14.3.2008 kl. 17:34

5 identicon

Mæta svo á Bæ bæ Ísland

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 22:33

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

....klukkan 13:00...eins gott að fara að skríða uppí!

Georg P Sveinbjörnsson, 15.3.2008 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.