Leita í fréttum mbl.is

Persepolis í Amnesty-bíói

Kvikmyndin Persepolis eftir Vincent Parronaud og Marjane Satrapi verður sýnd í Amnesty-bíó þriðjudaginn 20. maí kl. 20.00 í Hinu húsinu (Gamla pósthúsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis).

Myndin er byggð á samnefndri myndasögu eftir Marjane Satrapi þar sem höfundur bregður upp eftirminnilegri mynd af uppvaxtarárum ungrar stúlku á tímum íslömsku byltingarinnar í Íran.

Eftir myndina verða umræður um stöðu kvenna í Íran og ný skýrsla Amnesty International um grýtingar kvenna kynnt. Einnig verður fólki gefinn kostur á að skrifa undir aðgerðabeiðni til stjórnvalda í Íran vegna grýtinga á konum.

Myndin er á ensku með íslenskum texta.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Sæll Hlynur

 Mikið er ergilegt að vera ekki á landinu til að sjá þessa forvitnilegu mynd.

Anna Karlsdóttir, 19.5.2008 kl. 20:59

2 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Steina á afmæli á morgun (þriðjudag) fædd 20. 05. 1960. Láttu það ganga.

Gunni Palli kokkur.

Gunnar Páll Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 21:08

3 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Ég vona að síðuhöfundur sé ekki í Ammesty. Það á að banna félögum í stjórnmálahreyfingu aðild að Ammesty.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 20.5.2008 kl. 02:04

4 identicon

Þessi mynd er algerlega frábær. Það ætti að skylda fólk á borð við Magnús Þór Hafsteinsson til að horfa á hana. Gæti kannski lært eitthvað...opnað hugann oggupons.

Jesús Kristur (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 10:20

5 Smámynd: Valgerður Sigurðardóttir

Hef ekki séð myndina en á myndasögurnar og það tekur á að lesa hana og átta sig á lúxusnum sem við lifum við. Þetta ætti í raun að vera skyldulesning og ég veit að ég verð að drífa mig að sjá myndina.

Innlitskvitt

Valgerður Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 10:45

6 Smámynd: Hlynur Hallsson

Já, leitt að missa af þessari mynd. En af hverju í ósköpunam ætti að banna fólki í stjórnmálahreyfingum að vera í Amnesty, Kristján? Það væri gott ef sem flestir væru í Amnesty International. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 20.5.2008 kl. 11:48

7 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þetta bíó líst mér á!

Vésteinn Valgarðsson, 20.5.2008 kl. 16:00

8 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Kvalarar sem Amesty hefur afskipti af eru undantekningalaust meðlimir í stjórnmálahreifingu. Í 99,999% tilvika ganga stjórnmálamenn í Ammesty til að láta mynda sig á aðalfundinum og eru óðara roknir á hæla ljósmyndurunum. Stjórnmálamenn leita valda hvað sem það kostar.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 20.5.2008 kl. 16:28

9 Smámynd: Hlynur Hallsson

Það getur vel verið að sumir stjórnmálamenn leiti valda hvað sem það kostar en sem betur fer hef ég ekki séð margar myndir af stjórnmálamönnum á aðalfundum hjá Amnesty.

Mér finnst þú setja alla sem koma nálægt stjórnmálum undir sama hatt og það er ekki mjög sanngjarnt Kristján. Þessi prósentutala er einnig út í hött. Allir sem brjóta hinsvegar mannréttindi eiga ekki að komast upp með það og það er baráttumál Amnesty.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 21.5.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.