Leita í fréttum mbl.is

Er ekki kominn tími á að frysta eignir?

141578AÞað líður varla sú vika að ekki komi meiri drulla upp úr lánabókum bankanna og fréttir af því hvernig eigendur og stjórnendur þeirra hafa hagað sér á kostnað venjulegs fólks í þessu landi því við þurfum jú að borga brúsann að lokum. Ég er ekkert sérstaklega harðorður en get tekið undir með Agli Helgasyni þar sem hann segir meðal annars:

"Ríkisútvarpið sagði frá lánum Landsbankans til Björgólfsfeðga, eigenda bankans.

Lára Hanna skoðar fréttina í þessari bloggfærslu.

Er kannski komið að því að lánabækur Landsbankans og Glitnis fari að opnast? Að óþverrinn velli þar út líka?

Hingað til hefur lekið mest úr Kaupþingi; lánastarfsemin þar virðist hafa verið með algjörum ólíkindum.

Þetta virðist skiptast alveg í tvennt:

Annars vegar er venjulegt fólk sem fær lán og þarf að borga þau aftur með vöxtum og verðbótum og allt er gjaldfellt ef greiðslur berast ekki með skilum.

Hins vegar eigendur bankanna, stjórnendur og vildarvinir sem fá lán eins og hentar og þurfa varla að borga neitt aftur.

Hvað á að kalla þessa tegund af lánastarfsemi?

Ræningjalán?

Hvers konar lið var þetta sem fékk íslensku bankana nánast gefins?

Voru þetta ótíndir þjófar?"

 

Og Jónas Kristjánsson er ekki að skafa utan af því frekar en fyrri daginn en hann segir í pistli:

"Hafa má til marks um fákænsku og eymd Geirs H. Haarde, að hann sóttist eftir að hitta Björgólf Thor Björgólfsson. Vildi að eigin sögn alltaf tala við hann, þegar Björgólfur væri á landinu. Á þessum tíma sagði ég, að menn ættu ekki að taka mark á Björgólfi. Hann væri aumingi, sem ekki borgaði skatta til samfélagsins. Árum saman var hann skattlaus og fyrir rest borgaði hann vinnukonuskatta. Fólk á ekki að taka mark á manni, sem ekki sinnir skyldum sínum við samfélagið. Fyrir mörgum árum sagði ég ítrekað, að Björgólfur Thor væri bara ómerkur græðgiskarl. Ég held, að Geir hafi ekki fattað það enn."

Þessar skilanefndir bankanna sem hin vanhæfa ríkisstjórn SjálfstæðisFLokks og Samfylkingar setti á fót eru einnig grunsamlegar. Er ekki kominn tími til að fá nýtt fólk þar til starfa?

Og eftir hverju er verið að bíða? Það eru rúmir 9 mánuðir frá hruninu og enginn hefur verið handtekinn og eignir aðalgauranna ekki frystar. Þeir hafa haft nægan tíma til að koma öllu undan eins og er að koma í ljós. Það er sem betur fer ljós í þessu myrkri og það er að ríkisstjórninni tókst að fá Evu Joly til starfa og er að fara eftir leiðbeiningum hennar. Það er gott.


mbl.is Skoða lánveitingar Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef "heyrt" það að ALDREI hafi staðið til að gera neitt í þessum stærsta fjárdrætti og glæpamáli Íslandssögunnar ef ekki heimssögunnar, því margir hátt settir menn/konur í þjóðfélaginu séu flæktir í það, sel þetta ekki dýrara en ég keypti.

Jóhann Elíasson, 27.7.2009 kl. 10:22

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Algjörlega sammála þér Hlynur, löngu orðið tímabært. Okkar fólk verður að fara að gera eitthvað í þessu.

Sædís Ósk Harðardóttir, 27.7.2009 kl. 11:02

3 identicon

Hlynur.
Mig langar að reyna að setja þessi lánamál Landsbankans og Icesave í samhengi.

Hinir nýju "eigendur" bankans fara af stað með því að taka lán í öðrum íslenskum banka til að greiða fyrir kaupin.
Um leið og þeir eru komnir með tögl og haldir hefst útlánaveisla.
Stofnuð eru félög um allar jarðir, Tortóla, Möltu, Lúx, Bretlandi, Hollandi, Búlagríu og gott ef ekki Gíbraltar. Til verður mítan um "ríkustu menn" í heimi.
Aðgengi að ódýru lánsfé á heimsvísu er nánast ótakmarkað enda Ísland vel þokkað og talið með traustustu þjóðum.
Allir sjóðir eru hins vegar tæmdir, allt flutt til og frá.
Nú herðir að á heimsmarkaði, stofnað er til Icesave.
Enn er gefið í, innlánspeningarnir frá Bretum og síðar Hollendingum eru jafnharðan lánaðir í "einkaverkefnin".
Farið er langt framúr öllum heimildum og reikningar falsaðir.
Styggð kemur að erlendum eftirliststofnunum en FME, forsetinn og ráðherrar stinga höfðinu í sandinn, - ekkert er að á Íslandi, þetta er allt traust og gott.
Svo kemur hrunið.
Þá komast stjórnvöld í Bretlandi að þeirri niðurstöðu að glæpir hafi verið framdir.
Landsbankinn er settur á hryðjuverkalista.
Íslensk stjórnvöld taka í ákefð yfir hinn tóma banka.
Bretar vita sem er að bankinn er tómur, litlar líkur eru á að nokkuð innheimtist.
Þeir telja Íslensk stjórnvöld vera hálfvita sem hafi kóað með glæpamönnunum í Landsbankanum.
Þeir greiða sínum almenningi út upphæðina og krefjast þess að Íslendingar sjálfir reyni að ná til baka einhverjum peningum eða borgi annars með fé eigin skattgreiðenda.
Stjórnvöld hér heima vita ekkert í sinn haus, trúa ekki að þau hafi verið göbbuð svona svakalega og að landið hafi alið af sér slíka ótrúlega glæframennsku og siðleysi.
Margir gamalgrónir máttarstólpar í þjóðfélaginu mötuðu krókinn á brauðmolum Landsbankaglæpa, núverandi stjórn þorir ekki að hjóla í liðið þar sem kjarni valdastétta á Íslandi er þátttakendur.
Verið er að reyna að fara mildilega í hið óhjákvæmilega uppgjör því í hvert sinn sem sýndir eru einhverjir tilburðir til að fletta ofan af svikunum upphefst kór popúlista og embættismanna sem verja valdaklíkuna.
Almenningur á Íslandi veit ekkert hvað skal halda, trúir því jafnvel að bið geti læknað öl sár.
Svo er ekki, þetta stefnir bara í blóðug átök.

Jóhann F Kristjánsson (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 11:15

4 Smámynd: Dexter Morgan

DREAM ON, kæri Hlynur, dream on.....

Þetta verður aldrei, og hefur aldrei staðið til. Maður hélt kannski, í einfeldni sinni, að núverandi stjórnvöld myndu gera eitthvað í málunum, en svo er ekki. Jafnvel ekki búið að skipta út þessum handónýtu og furðulega skipuðu "skila"-nefndum !

Og fréttirnar af stórfeldum þjófnaði úr bönkunum, jafnvel eftir að ríkið tók þá yfir, dynja nú á okkur. Og ég held að þetta sé nú bara toppurinn á ísjakanum.

Dexter Morgan, 27.7.2009 kl. 21:35

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vegna sjónvarpsviðtals við Hlyn í kvöld spyr ég:

Hefurðu prófað að snúa Esb-fánanum öfugum ofan í hólmann?

Er það ekki öruggasta leiðin til að hann fái að vera í friði?

Jón Valur Jensson, 27.7.2009 kl. 21:40

6 identicon

Ánægjulegt á sjá þig á blogglífi! Eiginlega tímabært að hittast aftur á ráðhústorginu.

p.s. Láttu mig vita ef þú verður uppiskroppa með evrópufána! Djöf.s dónaskapur!

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 21:45

7 Smámynd: Karl Tómasson

Góður að vanda minn kæri.

Ég fékk góða heimsókn nýlega frá sameiginlegri vinkonu okkar henni Steinu, hún talaði fallega um þig, eins og við var að búast.

Hafðu það gott og stattu þig vel með listaverkið góða í hólmanum. Þú varst flottur í viðtalinu og í bátinum.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 27.7.2009 kl. 22:58

8 Smámynd: Sverrir Páll Erlendsson

Sjáðu nú til. Það er búið að gefa þeim sem rændu arðinum næstum því ár til að koma honum fyrir. Heldurðu virkilega að það hafist eitthvað út úr því að frysta einhverjar eignir núna? Það er búið að þvæla þessu hring eftir hring um heiminn og skipta um kennitölur og skrá á börn, foreldra, ættingja og eiginkonur. Þessarar spurningar þinnar spurði ég fyrir síðustu áramót og þótti þá tímabært að reyna að bjarga einhverju af aurunum. Núna er það um seinan. Saksóknari þorir ekki einu sinni að tala við þessa menn - það gæti verið ólöglegt!!!

Sverrir Páll Erlendsson, 27.7.2009 kl. 23:27

9 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll.Hlynur.

 Undarlegt er hve menn geta lagst lágt til að eyðileggja fyrir öðrum sem menn skapa með list sinni, skemmdarfíkn og lákúra er engum til sóma.

http://redlion.blog.is/blog/redlion/entry/921271/

Rauða Ljónið, 27.7.2009 kl. 23:42

10 Smámynd: Andrés.si

Furðulegt hvað engin hugsar lengur en til þessa menn.  Vegna þess að ég trúi ekki að þeir einir eru með peningar og eignir geta út í heiminum verið bara einhverjir eftir sem hafa strengir hér á landi.  Það má gíska á her, má segja NATO, gyðinga eða skipulagt glæparstarfsemi með samþykk  erlenda og íslenska ríkistjórna. Það er eini svar hver vegna engin var tekinn.

Andrés.si, 28.7.2009 kl. 01:34

11 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir þetta öll. Einnig Rauða Ljón alías Sigurjón Vigfússon og Andrés.si alías Andrés Zoran Ivanovic.

Hlynur Hallsson, 28.7.2009 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.