Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Réttur maður í starfið

459049AÉg sé að starf forstjóra nýrrar Varnarmálastofu er eins og sniðið fyrir Stefán Pálsson. Hann er náttúrulega snillingur og þvert á báknflokkana Samfó og íhald þá ætlar Stefán að stefna að "...því að halda umsvifum hennar (Varnarmálastofu) í algjöru lágmarki og minnka allan rekstrarkostnað eins og mögulegt er."

Þetta nýja bákn sem Ingibjörg Sólrún ætlar að setja á stofn mun blása út eins og embætti Ríkislögreglustjóra hefur gert á kostnað almennrar löggæslu í landinu. Það er hægt að nota einn og hálfan milljarð í margt betra. Stefán er því réttur maður í starfið og mun koma góðu til leiðar með aðhaldssemi og hagsýni. Áfram Stefán!


mbl.is Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherrar á Íslandi og í Englandi eru rúnir trausti

Krataflokkurinn í Bretlandi fékk rassskell í kosningunum í gær og greinilegt að ríkisstjórnin er rúin trausti. Það hefur áhrif á sveitarstjórnarkosningarnar þar í landi. Gordon Brown tekur líka við ömurlegu búi frá heræsingamanninum og lýðskrumaranum Tony Blair. (Myndin er tekin af Guardian)

En ráðherrarnir hér á landi eru einnig rúnir trausti. Geir H. Haarde hefur fallið í áliti hjá þjóðinni samkvæmt Gallup könnun. Og Þorgerður "vinsæla" Gunnarsdóttir sagði í útvarpinu áðan að búast mætti við óvinsældum meðað tekið er á efnahagsvandanum. Hér er  ef til vill komin skýringin á því af hverju stjórnin tekur ekki á vandanum, hún er hrædd við að verða enn óvinsælli. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Árna Matt því það eru ekki margir eftir sem treysta honum, eða aðeins 8%! og samt segjast 37% ætla að kjósa flokkinn hans. 92% kjósneda treysta ekki manninum.

Góðu fréttirnar eru þær að Vinstri græn eru með byr í seglin enda með einu raunhæfu tillögurnar og lausnir á efnahagsvandanum og kynntu þær fyrir 2 mánuðum. Er ekki kominn tími til að Samfó hætti að vera næst sætasta stelpan á ballinu og segi upp þessum hrokagikk, Sjálfstæðisflokknum?


mbl.is Verkamannaflokkurinn tapaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. maí 2008. Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks

Ögmundur Jónasson er einhver öflugasti talsmaður launþega í þessu landi og BSRB fer fremst í flokki verkalýðsfélaga. Það er enn líf í SFR en mörg hinna eru ansi slöpp og því miður er ASí frekar aulalegt félag. En vonandi tekst þeim að reka af sér slyðruorðið og fara að gera eitthvað. Það er hægt að taka sér Ögmund til fyrirmyndar sem vinnur að mestu leyti í sjálfboðavinnu fyrir félagið sitt og launafólk í landinu.

Enn vinnast sigrar og það er sérstök ástæða til að fagna og óska hjúkrunarfræðingum til hamingju með sigurinn í vinnudeilu við yfirstjórn Landsspítalans og heilbrigðisráðherra. Samstaðan skiptir máli.

Til hamingju með daginn allir. Ég var á frábærum fundi Stefnu, félagi vinstrimanna hér á Akureyri í morgun. Það var fullt hús og fín stemning, Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur Þ. Jónsson, Valgerður Dögg Jónsdóttir, Jón Laxdal, Ingólfur Á Jóhannesson, Þórey Ómarsdóttir, Kristján Hjartarson og Þráinn Karlsson komu öll fram og aðalræðumaður dagsins var Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Hann hélt frábæra og kraftmikla ræðu. Fín stemning á þessum árvissa fundi.

Í kvöld eru Ung vinstri græn á Akureyri með tónleika á Græna hattinum og þar er frítt inn og Svavar Knútur úr Hrauni heldur uppi stuðinu. Þessir tónleikar eru einnig orðinn reglulegur viðburður á 1. maí.

Í Þýskalandi var alltaf mesta fjörið í kröfugöngum Kúrdanna enda eru kröfugöngur og mótmæli bönnuð í Tyrklandi (myndin er þaðan af spiegel.de). Nýnasistar og hægri öfgamenn reyna að skemma baráttudaginn í Þýskalandi en tekst það sem betur fer ekki. 10.000 manns mótmæltu nýnasistum í Hamborg í dag. Það er mikilvægt að stöðva frjálshyggjuna, hervæðinguna, einkavæðinguna og skerðingu lífskjara sem nú viðgengst og Samfylkingin virðist ætla að taka þátt í með íhaldinu. Það er sorglegt en er alltaf að koma betur í ljós.

Hér er mynd frá 1. maí í Pakistan úr Sueddeutsche Zeitung.

image_fmbg_0_3


mbl.is Ögmundur: Samfélagið þarf að ná sáttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband