Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

1,8% stuðningur við borgarstjórann

206451_19_preview.jpg

Ólafur F. Magnússon nálgast botninn. Það hlýtur að vera nýtt met að innan við 2% kjósenda ætli að kjósa sitjandi borgarstjóra. Það athyglisverðast við þessa könnun fyrir utan að hún er birt þremur vikum eftir að hún var gerð er að um 30% ætla að kjósa íhaldið þrátt fyrir að þar standi ekki steinn yfir steini. En sennilega gerir fólk þetta bara af gömlum vana. Vinstri græn geta vel við unað með um 19% en ættu auðvitað að fá enn meira ef kosið yrði núna. Samfó er búin að toppa, til lukku með það.


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott sýning og gjörningur

459770AMaður er kannski alveg hlutlaus en sýningin í Myndlistarskólanum er ansi góð. Sjón (og heyrn) eru sögu ríkari í þessu tilfelli svo að ég mæli með því að fólk fari á sýninguna í dag eða á morgun (mánudag). Það var fullt hús í gær og frábær stemning. Ég er pínu stoltur, viðurkenni það alveg en reyni samt að missa mig ekki. Svo er hægt að sjá sýningu Steins í Populus Tremula, Steina í GalleríVíð8ttu og Veggverkið hennar Línu í leiðinni. Þeir sem ekki komast norður geta látið sig dreyma og skoðað þetta allt og meira til á netinu.

Á myndinni eru Inga Björk Harðardóttir, Margrét Ingibjörg Lindquist, Friðlaugur Jónsson, Karl Halldór Reynisson, Margeir Dire Sigurðsson og Hertha Richardt Úlfarsdóttir. Skapti á mbl tók myndina.

Á heimasíðu Myndlistarskólans á Akureyri og bloggsíðu Helga Vilbergs, skólastjóra er hægt að sjá myndband af gjörningi Margeirs Dire sem hann framdi á opnuninni og er afar flott verk og um leið yfirlýsing um "veggjakrots-" eða veggmálverksmálin í höfuðborginni (og víðar). Mæli með því að þið skoðið það.


mbl.is Vorsýning í Myndlistaskólanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri

big-AkureyrijpgFastur liður í menningarlífinu á Akureyri er Vorsýning Myndlistaskólans. Það er búið að vinna hörðum höndum að því að undirbúa þessa sýningu síðustu vikurnar og nú er allt klappað og klárt og sýningin verður opnuð á morgun klukkan 14. Það eru sautján nemendur að útskrifast af þremur deildum skólans og ég hef umsjón með þremur nemendum sem útskrifast sem myndlistarmenn af fagurlistadeildinni sem venjulega er bara kölluð myndlistardeildin (eða málaradeildin!) Þetta eru þau Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Inga Björk Harðardóttir og Margeir Sigurðsson "Dire". Þau vinna afar ólík og skemmtileg verk, persónuleg og flott og ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að sjá afraksturinn um helgina. Hér er svo fréttatilkynningin frá skólanum:

"Þrítugasta og fjórða starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.

Fjörutíu og fjórir nemendur stunduðu nám í dagdeildum skólans og af þeim munu sautján brautskrást frá skólanum að þessu sinni. Þrír sem grafískir hönnuðir, Friðlaugur Jónsson, Karl Halldór Reynisson og Margrét Ingibjörg Lindquist. Þrír sem myndlistarmenn, Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Inga Björk Harðardóttir og Margeir Sigurðsson. Ellefu úr fornámsdeild, Berglind H. Helgadóttir, Bjartur Karlsson, Dagrún Íris Sigmundsdóttir, Guðrún Eysteinsdóttir, Gunnar Rúnar Guðnason, Heiða Erlingsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Sindri Smárason, Unnur Jónsdóttir og Þuríður  Sverrisdóttir

Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiðum á vorönn. Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri um helgina. Sýningin verður opin kl. 14:00 til 18:00 laugardag, sunnudag og mánudag, annan í hvítasunnu."

Heimasíða skólans: www.myndak.is

VORSÝNING 2008
Myndlistaskólinn á Akureyri.
Opin helgina 10. - 12. maí kl. 14:00 - 18:00
Sýningarstaður: Kaupvangsstræti 16


Heimskautaréttur á Akureyri

IcelandHáskólinn á Akureyri er frábær stofnun og hefur haft meiri áhrif á mannlíf, atvinnulíf og menningu á Eyjarfjarðarsvæðinu en mörgum dettur í hug. Og jafnvel víðar, því starfsemi hans teygir sig ekki bara um allt land heldur langt út fyrir landssteinana.

Nýjasta snilldin hjá HA er nám í heimskautarétti sem hefst í haust eftir mikinn undirbúning. Þetta nám er eitthvað það merkilegasta sem er að gerast í íslenskum háskólamálum nú um stundir. Með námi í heimskautarétti erum við að undirbúa sjálfstæða utanríkispólitík Íslendinga til ókominnar framtíðar.

Á meðal kennslugreina eru inngangur að heimskautarétti, umhverfisréttur og loftslagsbreytingar, þjóðaréttur, frumbyggjaréttur, auðlinda- og umhverfisréttur, réttindafræði og mannréttindalögfræði. Einnig er kenndur venjuréttur samfélaga á norðurslóðum, færeyskur réttur og námskeið í alþjóðaviðskiptum og alþjóðasamvinnu þar sem fjallað er um stjórnskipun og öryggismál. 

Dagana 7. - 9. september 2008 verður svo haldin mikil alþjóðleg ráðstefna í HA um afrakstur heimskautaársins 2007/2008. Hægt er að fræðast um þessa ráðstefnu hér.

Nánari upplýsingar á námið á ensku eru hér http://www.polarlaw.is

Ég mæli með þessu spennandi námi fyrir alla sem hugsa fram á veginn.


Íshokkípeysan mun koma upp um hann

459511

Drengurinn er í einhverju íshokkíliði sýnist mér. Best er samt að nota þyrluna til að finna hann, einkennilegt að það hafi ekki tekist! Lögreglan er ekki að skora mörg stig þessar vikurnar. Það er greinilega þörf á aukavaraliði, óeirðalöggu og víkingasveitum.


mbl.is Myndir birtar af bankaræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Lágmarksgæsla í öðrum borgarhlutum núna..."

459491ABíddu... eru þetta skilaboð til annarra bankaræningja og glæpona í borginni? Nú er tækifærið til að ræna og rupla, allir af stað! Er það ekki frekar ábyrgðarlaust af varðstjóra lögreglunnar að lýsa þessu yfir?

"„Það er allt tiltækt lið að leita að ræningjanum, það er bara lágmarksgæsla í öðrum borgarhlutum núna," sagði varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins fyrir skömmu."

Vonandi næst bankaræninginn fljótt og vel svo aðrir borgarbúar í "öðrum borgarhlutum" geti verið óhultir.


mbl.is Enn er leitað að bankaræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkaskólinn óhagstæður fyrir foreldra og Akureyrarbæ

Holmasol3Hér á eftir er bókunin eins og ég lagði hann fram á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar. Haft er eftir Gunnari Gíslasyni fræðslustjóra í þessari frétt á mbl.is að: "Ef foreldrar eru að greiða meira þá er það eitthvað sem samið hefur verið sérstaklega um." Ég get upplýst hér að foreldrar barna í Hólmasól þurfa að greiða 1.900 krónur aukalega á mánuði auk venjulegra gjalda og það er ekki "samið sérstaklega" um það við foreldrana heldur bara rukkað og flestir borga bara með boðgreiðslum og pæla ekkert í þessu. Gjöldin skiptast svona:

Netgjald 500 kr.

Foreldragjald 500 kr. og svo

Annað 900 kr.

Aðalmálið er hinsvegar að samningurinn við Hjallastefnuna ehf er vísitölubundinn og ríkur því upp í 12% verðbólgu meðan aðrir leikskólar sitja eftir og þurfa að herða sultarólina þegar matarkarfan hækkar. Það sitja ekki allir við sama borð og það er ekki í lagi.

Hér er bókunin:

"Nú stefnir í að leikskólinn Hólmasól verði Akureyrarbæ enn kostnaðarsamari en fyrirséð var. Samningur bæjaryfirvalda við "Hjallastefnuna ehf" er vísitölubundinn meðan aðrir leikskólar á Akureyri fá fasta upphæð árið 2008, þrátt fyrir um 12% verðbólgu. Hvert pláss á Hólmasól er nú þegar dýrara fyrir Akureyrarbæ og foreldra en pláss á öðrum leikskólum og ef fram heldur sem horfir mun Akureyrarbær greiða hlutfallslega mun hærri upphæð fyrir Hólmasól en aðra leikskóla í bænum.
Það er því ljóst að einkarekstrarstefna Sjálfstæðisflokks hefur enn og aftur beðið skipsbrot og nú bitnar það á foreldrum barna á Akureyri og Akureyrarbæ. Þessa mismunun þarf að leiðrétta.

Fjölbreytt skólastarf er mikilvægt og Vinstrihreyfingin grænt framboð styður heilshugar frumkvæði foreldra og fjölbreytni í skólastarfi á öllum stigum. Nú þegar er kynskipting eða svokölluð Hjallastefna rekin með góðum árangri í leikskólum hjá Reykjavíkurborg og víðar á mun hagkvæmari hátt en “Hjallastefnan ehf” treystir sér til að gera. Akureyrabær mætti gjarnan beita sér fyrir enn fjölbreyttari stefnu í starfi leikskóla t.d. í samvinnu við foreldra með stefnur eins og Waldorfstefnuna, Rudolf Steiner eða Reggio Emilio svo nokkur dæmi séu nefnd. Leikskólar á Akureyri eru afar fjölbreyttir og leggja áherslu á mismunandi þætti eins og heimsspeki, fjölmenningu og hreyfingu svo dæmi séu tekin. Leikskólar Akureyrar eru afar vel reknir og mannaðir hæfu og menntuðu starfsfólki og til fyrirmyndar. Metnaðarfull símenntunaráætlun þeirra liggur fyrir en því miður hefur skólanefnd Akureyrarbæjar ekki yfirliti yfir símenntunaráætlun fyrir Hólmasól og Hlíðarból sem rekin er af Hvítasunnukirkjunni með samningi við Akureyrarbæ.

Þessi bókun er ekki lögð fram sem gagnrýni á Hjallastefnuna eða leikskólann Hólmasól heldur til að benda á þann aukna kostnað sem einkavæðing hefur í för með sér og að nú stefnir í að sá mismunur muni stóraukast á næstunni sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana.

Hlynur Hallsson
fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skólanefnd Akureyrarbæjar"

Tengill á frétt á rúv um málið


mbl.is Dýrara að reka leikskólann Hólmasól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plat Tal

Þessi "frétt" um "aukna samkeppni" á símamarkaðinum sýnist mér vera fullkomið plat. Það er í raun verið að draga úr samkeppni og fækka fyrirtækjum á markaði. Þetta nýja Tal verður í meirihlutaeign Vodafone og er varla í mikilli "samkeppni" við móðurfyrirtækið? Það er í raun verið að fjarlægja Hive af markaði, það er málið. Mér finnst framsetning mbl.is ekki nægilega gagnrýnin og þetta er í raun og verum bara birting á "fréttatilkynningu" sem er í rauninni dulbúin auglýsing frá Tali (Vodafone). Ef þetta er rangt hjá mér bið ég ykkur að gera athugasemdir (auðvitað undir fullu nafni!)


mbl.is Boða 20-30% lækkun fjarskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott bænakall raskar ró sofandi fólks

Þórarinn Jónsson er greinilega hress náungi og þetta verk hans er ansi gott. Samt pínu grunsamlegt að tölvubilun hafi valdið því að bænakallið fór í gang klukkan fimm að morgni! Ef myndlist truflar fólk er áhugavert að skoða í hvaða samhengi það er og af hverju fólk truflast auðveldlega.

Þórarinn komst heldur betur í fréttirnar í vetur með verkið sitt "This is not a bomb" sem hann kom fyrir á listasafni í Toronto, við lítinn fögnuð starfsfólks og lögreglu. Hann var handtekinn, rekinn úr skólanum og svaka læti en ég veit ekki hvort hann var kærður og þá fyrir hvað. Þetta nýja verk hans "Bænakall" er betra finnst mér en auðvitað leitt að það hafi farið í gang svona snemma dags og raskað nágranna. Það var fín umfjöllun um málið í kvöldfréttum ruv.


mbl.is Kvartað til lögreglu yfir bænakalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjartan Sigtryggsson opnar sýninguna "Í framan - In the face" á Café Karólínu laugardaginn 3. maí 2008

Laugardaginn 3. maí 2008, opnar Kjartan Sigtryggsson sýninguna "Í framan - In the face", á Café Karólínu á Akureyri.
Kjartan Sigtryggsson stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri og Listaháskóla íslands og útskrifaðist þaðan 2006. Hann segir um verkin sem hann sýnir á Café Karólínu:

"Þetta er afrakstur vinnu minnar upp á síðkastið, ég blanda saman málverkum og teikningum þar sem andlitið er aðalviðfangsefnið, þá aðallega á huglægum grundvelli fremur en formlegum og bókstaflegum”

 

Kjartan Sigtryggsson

Í framan - In the face

03.05.2008 - 13.06.2008  

Café Karólína // www.karolina.is

Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755


Nánari upplýsingar veitir Kjartan í kjartansigtryggss(hjá)gmail.com

Sýningin á Café Karólínu stendur til 13. júní, 2008.

Meðfylgjandi er mynd ef einu verkanna sem Kjartan sýnir á Café Karólínu.

Sýning Jóns Laxdal “Úr formsmiðju” á Karólínu Restaurant stendur yfir til 5. september 2008.


Næstu sýningar á Café Karólínu:
14.06.08-04.07.08    Arnar Ómarsson
05.07.08-01.08.08    Vilhelm Jónsson
02.08.08-05.09.08    Margeir Sigurðsson
06.09.08-03.10.08    Sigurlín M. Grétarsdóttir
04.10.08-31.10.08    Ingunn St. Svavarsdóttir Yst
01.11.08-05.12.08    Þorsteinn Gíslason

Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband