5.10.2007 | 00:02
Sjónauki, nýtt tímarit um myndlist kemur út
Það er ekki á hverjum degi sem það kemur út íslenskt tímarit um myndlist. Hundruð erlendra tímarita um myndlist blómstra og nú hafa myndlistarmennirnir Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal gefið út nýtt tímarit, Sjónauka. Til hamingju með það! Hingað til hefur rás eitt fjallað mest um myndlist á Íslandi en bókmenntirnar eru í sjónvarpinu! Hrós til Rásar eitt en Sjónvarpið getur tekið sig heldur betur á. Það verður haldið útgáfuteiti Sjónauka laugardaginn 6. október kl. 17-19 í Pikknikksalnum, Grandagarði 8 (við hliðina á Kaffivagninum).
Í tímaritinu verða jafnan greinar eftir bæði innlenda og erlenda listgagnrýnendur, heimspekinga, rithöfunda og listamenn. Aðal viðfangsefni Sjónauka verður íslensk myndlist, umhverfi hennar og tengd málefni. Í hverju tölublaði verður nýtt verk unnið sérstaklega fyrir blaðið af völdum listamanni ásamt ítarlegri umfjöllun um hann. Fjölfaldað eintak af verkinu, í takmörkuðu upplagi, fylgir með blaðinu. Tímaritið verður gefið út tvisvar á ári, vor og haust og verða allar greina birtar bæði á íslensku og ensku.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2007 | 14:09
NATO fundur og krakkarnir sendi heim
Við erum að sóa helling af peningum í þetta hernaðarbandalag í stað þess að setja fjármagn í að hækka laun hjá umönnunarstéttum eins og Jón Bjarnason fulltrú VG í fjárlaganefnd benti réttilega á í þingræðu í morgun. Væri ekki nær að hækka laun leikskólakennara og starfsfólks sjúkrahúsa og dvalarheimila í stað þess að setja pening í hernað? Sem betur fer eru friðarsinnarnir í Samtökum hernaðarandsræðinga og ung vinstr græn að standa sig og mótmæla þessum NATO fundi. Svo eru skólabörn að missa af dans- og íþróttatímunum sínum af því að einhverjir borðalagðir herforingjar og þingmenn eru að plana eitthvað í Laugardalshöll. Geta þeir ekki bara skroppið tilí Afganistan? Á friðarfvefnum friður.is er hægt að lesa nánar um NATO fundinn.
Á mánudag munu SHA standa fyrir hádegisverðarfundi í tengslum við NATO-þingið. Nánari dagskrá og tilhögun verður kynnt síðar, en fundurinn verður haldinn í Litlu-Brekku í Bankastræti.
Ungliðahreyfing Vinstri grænna hefur sömuleiðis boðað táknrænar mótmælaaðgerðir við Laugardalshöll, fundarstað þingsins á laugardag. Ungliðarnir eru árrisulir og eru mótmælin boðuð kl. 8:00. Morgunhanar í hópi friðarsinna eru hvattir til að mæta, en dagskrá verður kynnt á heimasíðu UVG, www.vinstri.is
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla því að til standi að halda þingmannafund NATO hér á landi um komandi helgi. Íslendingar eru herlaus og friðelskandi þjóð, sem ekki á að taka að sér gestgjafahlutverk fyrir slíkar samkomur. Að þessu tilefni vilja SHA minna á eftirfarandi staðreyndir um hlutverk og eðli NATO:
* NATO er hernaðarbandalag sem hefur yfir að ráða gríðarlegum hernaðarmætti. NATO hefur ekki útilokað beitingu kjarnorkuvopna að fyrra bragði.
* NATO hefur tekið þátt í árásarstríðum, s.s. á Balkanskaga. Um þessar mundir tekur bandalagið virkan þátt í hernámi Afganistan og hefur með aðgerðum sínum leitt til dauða fjölda saklausra borgara.
* Aðildarríki NATO eru ásamt Rússlandi langstærstu vopnaframleiðslulönd í heimi. Með vopnasölu sinni til stríðshrjáðra svæða bera þau ábyrgð á þjáningum fólks um víða veröld,
* NATO og einstök NATO-ríki hafa staðið gegn gerð og samþykkt fjölmargra afvopnunarsamninga á liðnum árum og áratugum, þar á meðal á sviði kjarnorkuafvopnunar.
* það er innbyggt í skipulag NATO að Bandaríkjamenn hafi með höndum hernaðarlega stjórn þess. Bandaríkjastjórn hefur ítrekað notað NATO sem verkfæri eftir innrásir sínar, bæði í Afganistan og í Írak, undir yfirskini friðargæslu eða uppbyggingarstarfs.
* Ein af röksemdum Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi utanríkisráðherra, gegn tillögum um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum árið 2004 var að það samrýmdist ekki skuldbindingum Íslands gagnvart NATO.
* Hinar umdeildu áætlanir Bandaríkjanna um gagneldflaugakerfi eru gerðar með fullu samþykki NATO og eru í raun liður í áætlunum NATO. Þessar áætlanir eru taldar spilla mjög fyrir viðleitni til afvopnunar.
* Einstök aðildarríki NATO bera höfuðábyrgð á stríðinu í Írak sem kostað hefur hundruð þúsunda Íraka lífið og hrakið milljónir á flótta.
Um leið og Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fundarhöldum þessum, hvetja þau íslensk stjórnvöld til að taka upp sjálfstæða og friðsama utanríkisstefnu. Úrsögn úr NATO er rökrétt fyrsta skref í þá átt.
![]() |
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla NATO fundi á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2007 | 12:06
Kraftur í Saving Iceland
Saving Iceland heldur úti flottri heimasíðu og þau eru afar virk í baráttunni fyrir verndun náttúru Íslands, sannir íslandsvinir. Hótanir útlendingastofnunar um að reka Miriam Rose úr landi eru fáránlegar og allt tal um brot á grunngildum út í hött. Þessi herferð íslenskra stjórnvalda gegn þeim sem berjast á friðsaman hátt fyrir náttúrunni er furðuleg. Sem betur fer blöskrar flestu hugsandi fólki þessi aðför að mannréttindum. Saving Iceland standa fyrir tónleikum á Organ miðvikudagskvöldið 10. október. Þar sem fram koma nokkrar frábærar hljómsveitir eins og Authentic, Tveir Leikmenn, Hraun, Dys og Jan Mayen. Nánari upplýsingar um tónleikana eru hér. Ég verð í München og kemst ekki en hvet alla til að skella sér á frábæra tónleika.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.10.2007 | 21:51
Geisp... Gulli heilbrigðisráðherra að leika sér í símanum
Það voru margir sem áttu erfitt með að halda sér vakandi undir stefnuræðu Geirs H. Haarde. Gulli stytti sér stundir með því að fikta í símanum sínum, varla var hann að senda sms allan tímann? Líklega bara að leika sér eitthvað. Pínu vandræðalegt samt að hann hafi ekki meiri áhuga á stefnuræðu leiðtoga síns. Samt var Geir með ágætis punkta í ræðunni sinni. Til dæmis að það ætti loksins að fara fram heildarstefnumótun á sviði neytendamála. Það er löngu kominn tími fyrir aukna neytendavernd hér á landi. Við erum langt á eftir nágrannaþjóðunum í þeim málum. Aðra uppgötvanir Geirs voru nú kannski alveg eins áhugaverðar. Og ekkert minnst á misskiptinguna sem alltaf er að aukast enda veit hann uppá sig skömmina.
Óðamála sjávarútvegsráðherra æsti sig aðallega yfir ljómandi ræðu Steingríms og eyddi drjúgum tíma í að snúa út úr henni en ókst ekki sérlega vel en hann hafði eitthvað svo lítinn ræðutíma, hann var að klára. Kolbrún Halldórsdóttir er flott, jákvæð og ljómandi skýr.
![]() |
Traust afkoma ríkissjóðs forsenda fyrir frekari skattalækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.10.2007 | 14:00
Vinstri græn mæta vel undirbúin til þings

![]() |
VG: Endurheimta þarf jafnvægi og stöðugleika í efnahagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2007 | 11:34
Marsibil G. Kristjánsdóttir opnar sýninguna "Hugarflug" á Café Karólínu
Það eru enn og aftur komin mánaðarmót og það eru alltaf opnanir fyrsta laugardag í mánuði á Café Karólínu í Listagilinu. Það er hægt að sjá sýningu Stefáns Jónssonar fram á föstudag en þá tekur Marsibil G. Kristjánsdóttir við. Allir eru velkomnir á opnunina klukkan 14 og hér er tilkynningin um sýninguna:
Marsibil G. Kristjánsdóttir
Hugarflug
06.10.07 - 02.11.07
Velkomin á opnun laugardaginn 6. október 2007, klukkan 14
Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Laugardaginn 6. október, 2007, klukkan 14 opnar Marsibil G. Kristjánsdóttir sýninguna "Hugarflug" á Café Karólínu.
Marsibil segir um sýninguna "Þessi verk eru unnin með ímyndum og hugarflugi mínu, hugmyndir sæki ég úr draumum mínum, tilfinningum og óraunverulegum veruleika."
Marsibil G. Kristjánsdóttir er fædd á Þingeyri 1971. Hún hefur hannað leikmyndir, brúður og leikmuni fyrir fjölda leiksýninga m.a. fyrir einleikina Gísli Súrsson, Dimmalimm og Skrímsli. Einnig hannað og unnið ýmiskonar handverk á tré og gler s.s. jólasveina og galdrastafi. Hún hefur sett upp einkasýningar á eftirtöldum stöðum: Veitingastofan Vegamót Bíldudal, Café Milanó Reykjavík, Langi Mangi Ísafirði, Hótel Flókalundur, Gallerí Koltra Þingeyri, The Commedia School Kaupmannahöfn og í Vigur Ísafjarðardjúpi.
Nánari upplýsingar veitir Marsibil í netfangi billa(hjá)snerpa.is og í síma 8998698
Meðfylgjandi myndir eru af verkum Marsibil sem hún sýnir á Café Karólínu.
Marsibil verður viðstödd opnunina. Sýningin á Café Karólínu stendur til 2. nóvember, 2007. Allir eru velkomnir á opnun laugardaginn 6. október, klukkan 14.
Á sama tíma stendur yfir sýning Brynhildar Kristinsdóttur á Karólínu Restaurant.
Næstu sýningar á Café Karólínu:
03.11.07-30.11.07 Birgir Sigurðsson
01.12.07-04.01.08 Steinunn Helga Sigurðardóttir
05.01.08-02.02.08 Guðrún Vaka
03.02.08-02.03.08 Steinn Kristjánsson
03.03.08-04.04.08 Unnur Óttarsdóttir
05.04.08-02.05.08 Guðmundur R Lúðvíksson
03.05.08-06.06.08 Kjartan Sigtryggsson
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2007 | 10:23
Þrjár kvikmyndir sýndar á Akureyri
Dagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátiðarinar er glæsileg og mér til mikillar gleði verða þrjár myndir af þessum 90 sýndar hér á Akureyri um helgina. Vonandi verða svo fleiri sýndar í kjölfarið en það er allavega hægt að skella sér í bíó líka fyrir norðan. Það er kvikmyndaklúbburinn KvikYndi sem stendur fyrri sýningum í Borgarbíói og þær eru:
Föstudagurinn, 28. september kl. 18.00
THE ART OF CRYING (Listin að gráta í kór)
e. Peter Schønau Fog
105 mínútur
Danmörk
Laugardagurinn 29. september kl. 18.00
FOREVER, NEVER, ANYWHERE (Ávallt, aldrei og hvarsemer)
e. Antonin Svoboda
88 mínútur
Austurríki
Sunnudagurinn 30. september kl. 18.00
CRAZY LOVE (Tryllt ást)
e. Dan Klores
92 mínútur
Bandaríkin
Og að öðrum málum en um síðustu helgi var formlega opnuð heimasíða AkureyrarAkademíunnar og hér er tengill á hana. Ég hvet svo alla til að klæðast rauðum bol í dag til stuðnings fólkinu í Burma. Hér er umfjöllun amnesty international um mótmælin.
![]() |
Alþjóðleg kvikmyndahátíð hefst í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.9.2007 | 22:40
Fjölskyldumót á Akureyri
Það hefur verið mikið fjör síðustu daga. Systkinin öll saman komin nema Sigurbjörn sem komst ekki frá Danmörku en frá Svíþjóð, Þýskalandi og úr Höfuðborginni eru allir mættir. Hugi var með myndasýningu og tók auk þess fjölskyldumyndir og Lóa Aðalheiður bloggaði um matarboðið í gær.
19.9.2007 | 14:39
Góðar fréttir
Það er afar ánægjulegt að húsafriðunarnefnd hafi ákveðið að friða húsin þrjú við Hafnarstræti og nú er drífa í því að gera upp Hafnarstræti 98 því hin húsin tvö Hamborg og París eru orðin glæsileg. Þetta er ekki eina góða fréttin í dag því borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti tillögu Vinstri grænna um að unnin verði sérstök hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík. Nánar má lesa um þetta á heimsíðu Árna Þórs sem nú er að flytja sig yfir á Alþingi. Flott hjá Árna Þór að enda með svona góðu máli starf sitt í borgarstjórn. Síðan er skemmtilegt tilboð Samtaka hernaðarandstæðinga um að hjálpa til við að koma fyrirhugaðri Friðarstofnun á fót. Fréttin af mbl er hér. Fullt af góðum fréttum.
![]() |
Húsafriðunarnefnd vill friða öll húsin þrjú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.9.2007 | 08:58
Opnun í DaLí Gallery á föstudaginn klukkan 17
Það verður mikið um að vera hér á Akureyri um næstu helgi þegar Sjónlistaverðlaunin verða afhent. Megas er líka með tónleika og mikið fjör. Ég ætla að opna sýningu hjá Dagrúnu og Línu í DaLí galleríinu og hér er fréttatilkynning um sýninguna:
HLYNUR HALLSSON
ÞETTA - DAS - THIS
21.09. - 11.10.2007
Opnun föstudaginn 21. september 2007 klukkan 17-19
DaLí Gallery
Brekkugata 9
600 Akureyri
http://daligallery.blogspot.com
Opið föstudaga og laugardaga kl. 14-17
og eftir samkomulagi.
http://www.hallsson.de
http://www.hlynur.is
Hlynur Hallsson opnar sýninguna ÞETTA - DAS - THIS í DaLí Gallery, Brekkugötu 9, á Akureyri, föstudaginn 21. september 2007, klukkan 17-19.
Sýningin samanstendur af spreyji á vegg, myndbandi, stórri ljósmynd með texta, litakúlum og minni textamyndum sem gestir geta tekið með sér.
Litakúlurnar koma frá sýningu sem Hlynur setti upp á Bókasafni Háskólans á Akureyri 2005 en myndbandið er frá því í sumar og hægt að sjá það nú þegar á netinu á http://youtube.com/watch?v=Hr7dcL6mp3U
Hlynur hefur verið að vinna með textamyndirnar síðustu ár og nú er væntanleg bók með öllum myndunum. Á sýningunni í DaLí Gallery þekur ein myndin heilan vegg en tvær aðrar eru í stöflum á gólfinu og geta gestir tekið með sér eintak. Hlynur var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2005 og gefur nú Akureyringum og öðrum sýningargestum myndir sem hægt er að hengja upp í til dæmis í eldhúsinu eða svefnherberginu. Textinn sem Hlynur spreyjar á vegginn í sýningarrýminu er splunkunýr. Sýningin í DaLí Gallery stendur til 11. október 2007 en þann dag opnar Hlynur sýningu hjá E.ON í München.
Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík, Hannover, Hamborg og í Düsseldorf. Hann hefur sett upp um 50 einkasýningar og tekið þátt í um 70 samsýningum. Hlynur hlaut verðlaun Kunstverein Hannover 1997 og verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra-Saxlandi 2001 og verðlaun Sparda Bank árið 2005. Hann hefur fengið 6 mánaða listamannalaun 1997, 2002 og 2003 og tveggja ára starfslaun 2006.
Verk Hlyns eru í eigu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins, Listasafnsins á Akureyri, Listasjóðs Dungals, Listasafns Flugleiða, Samlung Howig í Zürich auk nokkurra einkasafna í Evrópu.
Hlynur vinnur með ljósmyndir, texta, innsetningar, gjörninga, myndbönd, teikningar og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Hversdagslegir atburðir eins og sundferð, gönguferðir eða snjóhúsbygging geta verið efniviður í verkum hans en einnig landmæri, litir, stjórnmál, samskipti fólks og viðhorf okkar.
Hægt er að sjá verk Hlyns á sýningunni "Skyldi´ ég vera þetta sjálfur!" til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni í Ketilhúsinu sem lýkur sunnudaginn 23. september og þátttökuspreyverk í verslun Pennans-Eymundson í Hafnarstræti á Akureyri til 31. nóvember.
Hlynur býr ásamt konu og þremur börnum á Akureyri og í Berlín.
Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimsíðunni www.hallsson.de
bloggsíða: www.hlynur.is
sími: 6594744
netfang: hlynur(hjá)gmx.net
Meðfylgjandi eru tvær myndir úr röðinni MYNDIR - BILDER - PICTURES og texti eftir Raimar Stange í Berlín sem er einn af textunum sem verða í samnefndri bók.
--
DaLí Gallery
Dagrún Matthíasdóttir s.8957173
Sigurlín M. Grétarsdóttir s.8697872
Brekkugata 9
600 Akureyri
http://daligallery.blogspot.com
dagrunm(hjá)snerpa.is
Make words not war!
Raimar Stange fjallar um textaverk Hlyns Hallssonar
Það var á seinni hluta tíunda áratugarins sem Hlynur Hallsson sendi mér póstkort frá ýmsum heimshornum. Þar skrifaði hann á íslensku þótt hann vissi mætavel að ég hef alls engan skilning á því tungumáli, en á þeim tíma var skilningsleysið - það að skilja eitthvað ekki og fagurfræðileg gæði þess aðalmálið í hinni fagurfræðilegu heildarsýn. Slíkt er jú alveg í anda Jóhanns Heinrich Pestallozi, svissneska menntafrömuðarins. Pestallozi kom einmitt með þá hugmynd að börn ættu að umgangast framandi tungumál til þess að þeim yrði ljóst að maður getur ekki skilið allt, að skilningur manns er takmarkaður.
En pólitískar aðstæður hafa undið enn meira upp á sig. Hrottaleg nýfrjálshyggja og miskunnarlaus alþjóðahyggja skilja varla eftir nokkurt rými hvorki fyrir næma íhugun um fagurfræði samtímans né heldur (hugmyndafræðilausa) heimssýn. Þýski rithöfundurinn Hermann Hesse orðaði þetta svona: "Drukknandi syngja engar aríur". Á nýju árþúsundi syngur Hlynur Hallsson heldur engar aríur lengur, nýju textaverkin hans eru að vísu oft enn á mörgum tungumálum, en í því fjöltyngi er minni ráðgáta en lífsmáti hans í alþjóðavæddri fjölþjóðahyggju, sem Hlynur tjáir nú í verkum sínum. Auk þess, en þó reyndar fyrst og fremst, eru textaverk Hlyns Hallssonar með auðþekkjanlegu pólitísku, já, ef ekki árásargjörnu innihaldi. Það er ekki tilviljun að þau minna á nafnlaust veggjarkrot, eins og þetta hér til dæmis:
"BUSH+BLAIR
TERROR+FEAR"
slagorð sem hinn ungi Íslendingur skrifaði á húsveggi Feneyja á meðan Feneyjartvíæringnum 2005 stóð. Og sýningarrýmið í Charlottenborg í Kaupmannahöfn breyttist árið 2004 beinlínis í pólitískan vettvang með orðunum:
"WAR IS TERRORISM WITH A BIGGER BUDGET
FIGHT TERRORISM WITH ALL POWER"
Slagorð gegn nýlendustefnunni sem fylgdi í kjölfar auðvaldsstefnunnar og eins slagorð gegn (Íraks-)stríði eru orðin að lögreglufyrirskipunum sem Sameinuðu þjóðirnar þurfa ekki einu sinni að samþykkja. En Antonio Negri og Michael Hardt benda einmitt á þetta í Empire eða Heimsveldi, áróðursverki sínu gegn alþjóðavæðingunni. Í verkum Hlyns virka slík slagorð egnandi, geta þýtt allt og ekkert. Það er ekkert nema gott um það að segja, því þeim mun spennandi verður myndlistin, einnig þótt slíkt gleymist auðveldlega á tímum nýformalisma í myndlist og innileiksmiðjaðrar málaralistar, svo ekki sé minnst á innprentun mórals og samvisku.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2007 | 08:55
Lesefni fyrir helgina
Verst að missa af göngum í dag en við erum að fara vestur á Stykkishólm að skoða Vatnasafn Roni Horn og Stórvalsmyndirnar hennar. Ég fletti Blaðinu áðan og þessar hugmyndir um miðborg við Geirsnef eru skemmtilegar og einhver Manahattanfílingur í þeim. Trausti Valsson er líka snillingur og Sturla Snorrason hefur greinilega skoðað þróun borgarinnar. Það eru heldur ekki allir sem vilja aka í klukkutíma úr einhverju úthverfi á hverjum degi í vinnuna. Þetta þurfum við að skoða vandlega.
Tillögurnar sem kynntar voru um daginn um uppbyggingu Austurstrætis eru einnig glæsilegar og kominn tími til að sumir átta sig á því að það dugar ekki alltaf að rífa niður það sem er gamalt til að byggja steypuklumpa í staðinn. Það er skemmtileg grein eftir KGA í Mogganum í gær með spurningu handa bæjarstjórn Akureyrar sem verða vonandi til þess að sumir sjái kostina við að bjarga Hafnarstræti 98. Viðtalið við Hólmstein Snædal á N4 er einmitt komið á netið og hægt að horfa á það hér. Svo er greinin hans Árna Þórs í Blaðinu í morgun holl lesning fyrir Sam-fólkið. Sem sagt nóg að lesa.
![]() |
Nýr miðbær gæti losað stíflurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.9.2007 | 09:59
iPhone lækkar um 33% í BNA

![]() |
Apple kynnir endurhannaðan iPod |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.9.2007 | 14:27
Til hamingju Háskólinn á Akureyri
Það er gleðiefni að Háskólinn á Akureyri skuli vera orðinn 20 ára og ég óska öllum starfsmönnum og nemendum til hamingju með það. Skólinn hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og þrátt fyrir fjársvelti og skilningsleysi hjá ríkisstjórnum hefur tekist að efla skólann og enn er fólk stórhuga þar á bæ. Það væri hægt að fara mörgum orðum um gildi skólans fyrir Akureyri, Eyjafjarðarsvæðið og landið allt en ég ætla að sleppa því núna. Nenni ekki að skrifa einhverja lofrullu eins og stjórnmálamenn halda gjarnan á tyllidögum en standa svo ekki við neitt þegar kemur að því að standa við stóru orðin.
En það eru einnig ánægjulegar fréttir af framvindu mála með Hafnarstræti 98 (Hótel Akureyri) því í gær var ítarlegt viðtal við Hólmstein Snædal húsasmið og Vigni Þormóðsson eiganda hússins á N4. Viðtalið er enn ekki komið á netið en ætti að koma hér hið fyrsta. Hólmsteinn fer yfir merka sögu hússins og skoðar það í krók og kima ásamt Dagmar dagskrárgerðarkonu. Hann segir að húsið sé í mun betra standi en fullyrt hafi verið og að þetta sé hið besta hús. Hólsteinn veit hvað hann syngur og hefur sennilega bestu þekkingu á endurbyggingu gamalla húsa á Akureyri og þó víðar væri leitað. Vignir segir svo að það sé sér ekkert kappsmál að rífa húsið þó að það standi til innan örfárra vikna. Hann sé alveg til í að selja húsið einhverjum sem vill gera það upp. Þetta eru góðar fréttir og bjartsýni mín á að hægt verði að bjarga húsinu hefur tekið kipp enda er vilji allt sem þarf. Þá er bara að finna stórhuga fólk sem er til í að ráðast í verkið og ég hef ákveðið fólk í huga sem vonandi slær til!
Og aftur á Háskólanum því nemendur í fjölmiðlafræði halda úti ágætis fréttavef, Landpóstinum og þar er einmitt könnun í gangi um hvort fólk vilji láta rífa húsið. Síðast þegar ég skoðaði var mikill meirihluti sem sagði NEI ég vil ekki láta rífa það. Það er þvert á niðurrifsumræðuna sem sumir háværi halda uppi. Það er ánægjulegt að fólk getur séð verðmæti í því sem gamalt og gott er og nú er bara að þrýsta á um að viðhalda, endurbyggja og nýta.
![]() |
HA gerir samstarfssamning við BioPol |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.9.2007 kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.9.2007 | 08:26
Endurbyggjum Hótel Akureyri

![]() |
Bíða eftir að Hótel Akureyri verði rifið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
3.9.2007 | 22:52
Til hamingju Vinstri græn

![]() |
Guðfríður Lilja framkvæmdarstýra þingflokks VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
-
Agnar Freyr Helgason
-
Agný
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Anna Lilja
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Pála Sverrisdóttir
-
Anna Þorbjörg Jónasdóttir
-
Ari Matthíasson
-
Arinbjörn Kúld
-
arnar valgeirsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Atli Fannar Bjarkason
-
Auðun Gíslason
-
Árni Árnason
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ása Richardsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásta Möller
-
Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
-
Ásta Svavarsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bandalag atvinnuleikhópa - SL
-
Barði Bárðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Bleika Eldingin
-
BookIceland
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynjar Davíðsson
-
Dagbjört Hákonardóttir
-
Davíð
-
Dofri Hermannsson
-
DÓNAS
-
Edda Agnarsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Egill Helgason
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Elín Sigurðardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
E.R Gunnlaugs
-
erlahlyns.blogspot.com
-
ESB og almannahagur
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eva G. S.
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Ingi Jónsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Forvitna blaðakonan
-
FreedomFries
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Gammur drils
-
Gaukur Úlfarsson
-
Geiri glaði
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Aðalsteinsson
-
Gísli Tryggvason
-
Goggi
-
gudni.is
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Helmut Kerchner
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Auðunsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Guðni Már Henningsson
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Björnsson
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
halkatla
-
Halla Gunnarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Halldór Kristinn Haraldsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haukur Már Helgason
-
Haukur Nikulásson
-
Haukur Vilhjálmsson
-
Heidi Strand
-
Heiða
-
Helgi Guðmundsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Helgi Már Barðason
-
Helgi Seljan
-
Helgi Vilberg
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Hilmar Björgvinsson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlédís
-
Hlynur Sigurðsson
-
Hlynur Snæbjörnsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hreiðar Eiríksson
-
hreinsamviska
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ibba Sig.
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Ingimar Björn Davíðsson
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingólfur Þór Guðmundsson
-
íd
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Björnsson
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson
-
Jónas Viðar
-
Jón Bjarnason
-
Jón Hafsteinn Ragnarsson
-
Jón Hrói Finnsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Júlíus Garðar Júlíusson
-
Júlíus Sigurþórsson
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Ketilás
-
Killer Joe
-
Kjartan Jónsson
-
Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Kolgrima
-
kona
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristján Pétursson
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Krummi
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Linda Rós Jóhannsdóttir
-
Listasumar á Akureyri
-
LKS - hvunndagshetja
-
Logi Már Einarsson
-
Magnús Bergsson
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Marinó Már Marinósson
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Oddur Helgi Halldórsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Paul Nikolov
-
Páll Helgi Hannesson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Páll Thayer
-
Pálmi Freyr Óskarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Björgvin
-
Pétur Þorleifsson
-
Pollurinn
-
Ragnar Bjarnason
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Ransu
-
Rauður vettvangur
-
Róbert Björnsson
-
Rúnar Haukur Ingimarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sara Dögg
-
SeeingRed
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigrún Dóra
-
Sigtryggur Magnason
-
Sigurður Á. Friðþjófsson
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Hólm Gunnarsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sól á Suðurnesjum
-
Sóley Björk Stefánsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Jón Hafstein
-
Stefán Stefánsson
-
Stefán Þórsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Steindór Grétar Jónsson
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Stjórnmál
-
Svansson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
SVB
-
Sveinn Arnarsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Páll Erlendsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Már Sævarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sölvi Breiðfjörð
-
Thelma Ásdísardóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tíðarandinn.is
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
TómasHa
-
Trúnó
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tryggvi H.
-
Ugla Egilsdóttir
-
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
-
Úrsúla Jünemann
-
Valgeir Bjarnason
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Varðhundar frelsisins
-
Varmársamtökin
-
Vefritid
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Viðar Eggertsson
-
Vika símenntunar
-
Vilberg Helgason
-
Vinir Tíbets
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórbergur Torfason
-
Þórdís tinna
-
Þór Gíslason
-
Þór Jóhannesson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Saari
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Öll lífsins gæði?