Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Kynningarbæklingur frambjóðenda kominn á netið

Það er gott hversu margt nýtt og ferskt fólk gefur kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Til að gefa yfirlit um allt þetta fólk, hugsjónir þeirra, stefnu og bakgrunn hefur kosningastjórnin gefið út ljómandi bækling um alla frambjóðendur sem sendur verður í pósti til allra félaga í kjördæminu ásamt atkvæðaseðli. Það er einnig hægt að nálgast þennan bækling í PDF formi hér.

Þeir sem gerast félagar í Vg fyrir klukkan 17 mánudaginn 23. febrúar geta kosið í forvalinu. Hér er hægt að skrá sig.

Svo eru kynningarfundir í kosningamiðstöðvunum á Akureyri laugardaginn 21. feb. klukkan 15 og á Egilsstöðum sunnudaginn 22. feb. klukkan 15.


mbl.is Ingunn tekur þátt í forvali VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilindi

bluelagoon.jpg

Ég er sannfærður um að þörf er á nýju siðferði í íslensk stjórnmál sem og viðskiptalíf og almennt í þjóðfélaginu. Ég vil gera orð Davíðs Stefánssonar frambjóðanda í forvali Vg í Reykjavík að mínum. Hann veitti mér góðfúslegt leyfi til að birta þessa yfirlýsingu hér.

Ég kem hreint og beint fram og hef þá einföldu trú að kærleikur, mannvirðing og heiðarleiki borgi sig á öllum sviðum lífsins – líka í stjórnmálum.

 

Ég mun ávallt kjósa samkvæmt eigin sannfæringu í öllum málum og styðja frumvörp annarra stjórnmálaflokka ef þau samræmast minni sannfæringu.

Ég mun meta aðra stjórnmálamenn eftir orðum þeirra og gjörðum, hvorki eftir flokksskírteini þeirra né stefnu þess flokks sem þeir tilheyra.

Ég mun, hvorki í kosningabaráttu innan flokksins né í kosningabaráttu við aðra flokka, beita óvönduðum meðulum.

Ég mun svara beinum spurningum sem ég get svarað og ekki reyna að tala mig í gegnum spurningar sem ég get ekki svarað.

Ég mun axla ábyrgð á eigin gjörðum.

 


Forvalsreglur fyrir Vinstri græn í Norðausturkjördæmi

solarlag_796344.jpg

Allir félagar í VG í Norðausturkjördæmi fá sendan póst og þrennt í hendur:
1. Kjörseðil eingöngu með nöfnum frambjóðenda ásamt reit fyrir númer fyrir framan hvert nafn og umslög til að senda hann til baka.
2. Kynningarbækling
3. Forvalsreglur

 

1. Kosning:
a) Félagar kjósa frambjóðendur með því að merkja með tölunum 1-8 í ferning fyrir framan nöfn þeirra frambjóðanda, sem þeir vilja sjá í átta efstu sætunum.  Þannig táknar talan 1 fyrsta sætið, talan 2 annað sætið o.s.frv.
b) Heimilt er að merkja við færri en átta en merki félagi við fleiri, þ.e. raði í 9. sæti eða ofar, verða þau sæti ekki talin.
c)  Heimilt er að raða frambjóðendum í önnur sæti en þeir hafa tilgreint.
d)  Raði félagi tveimur eða fleiri frambjóðendum í sama sæti er sú röðun ógild fyrir báða (alla) frambjóðendurna í því sæti.
e)  Ítrekað er að félagar eiga að númera við frambjóðendur í þau sæti, sem þar vilja sjá þá í á endanlegum lista flokksins í kjördæminu.  
Ekki skal merkja við nafn eins eða fleiri frambjóðenda með krossi og verða slíkir krossar ekki taldir.

2.  Úrvinnsla:
a) Atkvæði eru talin í hvert sæti.  Nú býður einhver sig fram í fleiri en eitt sæti og gildir þá sú regla að atkvæðin leggjast saman að sæti með hærri tölu.  Dæmi:  Einstaklingur býður sig fram í sæti 6-8 og fær 15 atkvæði í hvert þeirra.  Þá telst hann með 15 atkvæði í 6. sæti, 30 atkvæði í 7. sæti og 45 atkvæði í 8. sæti.
b) Sá sem fær flest atkvæði í ákveðið sæti fær það sæti að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem kjörstjórn vinnur eftir:
Í fyrsta lagi mun kjörstjórn tryggja sem jafnasta dreifingu kynja í 8 efstu sætin.  Fái karl t.d. 1. sætið verður kona í 2. sæti.  Fái kona 3. sætið verður karl í 4. sæti, þ.e. dreifingin væri þá orðin karl - kona - kona - karl, o.s.frv.
Í öðru lagi mun kjörstjórn taka tillit til byggðasjónarmiða eins og kostur er.
Í þriðja lagi mun kjörstjórn taka tillit til aldursdreifingar eins og kostur er.
Í fjórða lagi, að framansögðu jöfnu, ræður hlutkesti, falli atkvæði tveggja eða fleiri frambjóðenda jöfn í eitthvert sæti.


Kjörfundur verður svo haldinn 28. febrúar 2009 að Geislagötu 7 á Akureyri og að Kaupvangi 5 á Egilsstöðum kl. 10:00 – 22:00.  Enn fremur geta félagar skilað atkvæði sínu í pósti, sem verður að póstleggja í síðasta lagi 27. febrúar.

Félagar í svæðisfélögum í NA-kjördæmi, sem eru búsettir utan kjördæmisins innanlands, hafi samband við Ólaf Þ. Jónsson í síma 4623463 til að fá send kjörgögn.

Félagar í svæðisfélögum í NA-kjördæmi, sem eru búsettir erlendis hafi samband við undirritaðan í tölvupósti, brell@simnet.is

Kosningarétt hafi allir félagsmenn í VGNA miðað við 23.febrúar 2009.
Kjörskrá verður lokað kl. 17:00 þann 23. febrúar 2009.


Glæsileg þátttaka í forvali Vg

 

Það eru góðar fréttar að svo margir gefi kost á sér í forvali Vg hér í Norðausturkjördæmi. Hópur af góðu fólki og sérstaklega ánægjulegt hvað margt ungt fólk ætlar að taka þátt. Mér sýnist dreifingin yfir allt kjördæmið sé einnig góð og þetta er fólk úr hinum ýmsu starfstéttum með fjölbreyttan bakgrunn. Það eru vissulega fleiri karlar en konur sem gefa kost á sér en það getur verið að það nýtist konunum betur. Ég ætla að minnsta kosti að kjósa fjórar konur og fjóra karla í átta efstu sætin. Hér er allur listinn.

Þetta er fyrsta forvalið sem fer af stað á landinu og þrátt fyrir skamman aðdraganda eru 21 í framboði. Þeir sem vilja ganga til liðs við Vinstri græn geta skráð sig hér. Það þarf að gera það fyrir mánudaginn 23. febrúar klukkan 17. Þá fær maður kynningarbækling og atkvæðaseðil sendan í pósti og kjörfundur fer fram laugardaginn 28. febrúar klukkan 10-22. 

Ég var að stofna stuðningshóp á Facebook og viðbrögðin eru afar góð. Takk fyrir það og bestu baráttukveðjur!


mbl.is 21 í forvali VG í NA-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, við þorum, viljum og VIÐ GETUM!

afmalislogo_netstard_795680.jpgÍsland er á tímamótum þar sem frjálshyggjan hefur beðið skipbrot og framundan eru krefjandi og erfið verkefni við að endurmóta íslenskt samfélag. Í þeirri vinnu er þörf á skapandi hugsun og nýjum hugmyndum.
Ég er tilbúinn að leggja mitt fram til að byggja upp kraftmikið og réttlátara þjóðfélag. Þess vegna gef ég kost á mér í 1.-3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Þeir sem vilja styðja mig geta gengið til liðs við Vinstri græn fyrir klukkan 17 mánudaginn 23. febrúar 2009 og fá þá sendar upplýsingar um frambjóðendur og kjörseðil þar sem númera skal í sæti 1.-8. Kosningunni lýkur laugardaginn 28. febrúar.


Þetta vil ég sjá:


+ Aukið beint lýðræði
, valdið til almennings, þjóðaratkvæðagreiðslur ef 25% kjósenda krefjast þess. 16 ára fái kosningarétt. Auka fræðslu um lýðræði í grunn- og framhaldsskólum.

+ Afnema launaleynd, konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Hækka laun umönnunarstétta.

+ Auðlindir landsins séu sameign þjóðarinnar
og verði ekki framseldar fyrirtækjum eða einstaklingum. Leggjum áherslu á vistvænar veiðar og fullvinnslu hráefnis.

+ Bjarga heimilum
frá gjaldþroti, lækka vexti strax.

+ Ísland verði óháð og friðelskandi ríki utan hernaðarbandalaga.

+ Fólk verði ráðið eftir hæfni
og á faglegum forsendum en ekki eftir flokksskírteini. Burt með spillingu og einkavinavæðingu.

+ Hlúð verði að ferðaþjónustu
og hún byggð upp allt árið um kring. Beint flug milli Norðausturlands og Evrópu.

+ Efla Háskólann á Akureyri og nýta betur þá þekkingu sem er til staðar til atvinnusköpunar.

+ Stutt verði við vistvæna ræktun
, skógrækt, umhverfisvernd, skapandi starfsemi, þekkingariðnað og hugvit. Það er atvinnusköpun.

+ Sjálfbær þróun verði ætíð höfð að leiðarljósi.


Þau sem fólk treystir og treystir ekki

Það er ánægjulegt að sjá hvað ráðherrar í nýrri ríkisstjórn njóta mikils traust meðal fólks. Á þessum erfiðu tímum þar sem þau hafa þurft að taka óvinsælar ákvarðanir. Það kemur ekki á óvart að Jóhanna Sigurðardóttir, Gylfi Magnússon og Katrín Jakobsdóttir njóta mests trausts. Ég er viss um að Ögmundur Jónasson mun vaxa í áliti hjá fólki því hann er að gera góða hluti. Það er til dæmis frábært hjá honum að gefa kost á sér í baráttusætið í kraganum og gefa eftir fyrsta sætið til Guðfríðar Lilju. Það er áhætta en frábær ákvörðun og ég er viss um að hann flýgur inn á þing.

Hér er stöplaritið eftir stuðningsfólki flokkanna.

490633


mbl.is Flestir bera traust til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjarstjórnin slekkur ljósin

490221.jpg

Það hefur vakið athygli hér á Akureyri að eitt af sparnarráðum meirihluta Sjálfstæðsiflokks og Samfylkingar er að slökkva ljósin á fótboltavöllum við grunnskóla bæjarins. Og reyndar taka einnig hitann af! Ég efast um að þær krónur sem sparast við þessa aðgerð skipti sköpum í hallarekstri bæjarins. Á tímum sem þessum væri vænlegra að horfa til mannlegra gilda og hvetja börn og unglinga og reyndar alla til að stunda líkmsrækt á ódýran og hagkvæman hátt en ekki slökkva ljósin.

Krakkarnir (bæði stelpur og strákar) sem mættu í Ráðhús Akureyrarbæjar eiga heiður skilinn. Hógværar og sanngjarnar kröfur þeirra ættu að eiga hljómgrunn meðal ráðamanna en Sigrún Björk bæjarstýra segist ekki geta lofað neinu. Ég bið þig Sigrún um að lofa því að kveikja aftur ljósin svo að krakkarnir geti spilað fótbolta og leikið sér.


mbl.is „Kreppan er ekki okkur að kenna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingin lengi lifi!

afmalislogo_netstard.jpgÞað er gaman að vera til þessa dagana. Við erum að skrifa söguna og það er tími breytinga. Mitt í svartnætti gjaldþrotastefnu Sjálfstæðisflokksins er að rísa nýtt Ísland þar sem kynjajafnrétti verður í fyrirrúmi og það gefur manni von.

En þetta er ekki búið, byltingin er rétt að byrja og varðhundar Sjálfstæðisflokksins munu gelta og bíta sem aldrei fyrr. Þeir eru hamslausir af bræði og það er dálítið sorglegt. Það er svo auðvitað dæmigert að það séu konur sem þurfa að taka til eftir karlana sem klúðruðu hlutunum fullkomlega. Og óskandi væri að þeir myndu hafa vit á því að þegja meðan það er verið að taka til eftir þá.

Klukkan 14:00 – 17:00 í dag laugardag verður málþing á Grand Hótel um framtíð lýðræðis á Íslandi. Þar er hópur frábærra frummælenda og málþingsstýra er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.

Stefán Ólafsson: Farsældarsamfélagið - hvaða leið er best?

Margrét Pétursdóttir: Lýðræði frá rótum

Sigtryggur Magnason
: Guð blessi Ísland

Oddný Eir Ævarsdóttir
: Frumspeki lýðræðisins


Í kvöld verður svo kvöldverður og ball með Cc Reykjavík, Súpergrúppu Kalla Tomm bæjarfulltrúa Vg í Mósó og bloggfélega. Ég verð að fara norður og missi því miður af ballinu. Það er fúlt en maður getur víst ekki verið á mörgum stöðum í einu.

Til hamingju öll


mbl.is Öld testósterónsins lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppbyggilegur fundur á Akureyri

logo_200Samtökin Landsbyggðin lifi efna til fundar á Akureyri á laugardaginn. Ég missi því miður af fundinum, verð í 10 ára afmæli Vinstri grænna í höfuðborginni en bendi öllum sem vettlingi geta valdið á að mæta á þennan áhugaverða og uppbyggilega fund. Hellingur af góðu fólki er í pallborði og með framsögur.

Það var heldur fámennt en góðmennt í 18. mótmælagöngunni á Akureyri um síðustu helgi en nú þarf að veita stjórnmálamönnum aðhald og viðhalda búsáhaldabyltingunni. Við megum ekki gleyma eða detta aftur ofan í sama gamla farið. En hér er dagskrá fundarins:

 

Farsæld til framtíðar!


Undir þessu kjörorði skipuleggur Landsbyggðin lifi (LBL) fundi á landsbyggðinni í samvinnu við stofnanir og félagasamtök úr ýmsum greinum atvinnulífsins

Fyrsti fundurinn verður á Akureyri Laugardaginn 7. febrúar 2009 - Kl 12:30- 15:00 í Brekkuskóla v/ Hrafnagilsstræti (fyrir ofan Akureyrarkirkju).

Dagskrá:
Setning 
Ragnar Stefánsson, prófessor og varaformaður LBL setur fundinn og ýtir  fundaherferðinni úr vör.
   
Framsöguerindi 

Framtíð lýðræðis
Páll Skúlason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands

Ný tækifæri í sjávarútvegi
Hjörleifur Einarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri

Framtíð landbúnaðar – lífrænn iðnaður?
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands

Ný sköpun – Ný framtíð
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Ferðaþjónusta til farsældar
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir,  deildarstjóri ferðamála við Háskólann á Hólum

Pallborðsumræða Í pallborði verða, auk frummælenda:
•    George Hollanders, leikfangasmiður
•    Hreiðar Þór Valtýsson, fiskifræðingur Háskólanum á Akureyri
•    Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, Eyjafirði
•    Guðbergur Egill Eyjólfsson, bóndi að Hléskógum
•    Sóley Björk Stefánsdóttir, háskólanemi í fjölmiðlafræði
•    Sigurbjörg Árnadóttir, verkefnisstjóri í nýsköpun í ferðamálum
•    Guðrún Þórsdóttir, nemandi við Myndlistaskólann á Akureyri

Stefnt er að því að framsöguerindi verði stutt, þannig að góður tími gefist til almennrar umræðu
Fundarstjóri er Rafn Arnbjörnsson, frjótæknir
          
Veitingasala 10. bekkjar Brekkuskóla verður opin  


Nánari upplýsingar á www.landlif.is


mbl.is Mótmælt eftir stjórnarskiptin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gef kost á mér í 1.-3. sæti í forvali Vinstri grænna

hlynur_hallsson_170105Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs í Norðausturkjördæmi sem fram fer fyrir Alþingiskosningarnar í vor og sækist eftir því að skipa 1.-3. sæti listans.

Alþingiskosningarnar sem væntanlega fara fram þann 25. apríl verða sennilega þær mikilvægustu í sögu Lýðveldisins og vil ég leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að hugsjónir Vinstri grænna um aukið lýðræði, jöfnuð, kvenfrelsi, umhverfisvernd og sjálfstæða utanríkisstefnu nái fram að ganga.

Á síðustu árum hef ég tekið virkan þátt í starfi fyrir Vinstri græn, tók fimm sinnum sæti á Alþingi sem varamaður á árunum 2003-2007. Þar lagð ég meðal annars fram frumvarp um að kosningaaldur verði 16 ár eins gert hefur verið í nokkrum löndum Evrópu og gefist vel, um leið og aukin fræðsla um lýðræði verði veitt í grunn- og framhaldsskólum. Einnig lagði ég fram þingsályktunartillögu um gerð Vaðlaheiðagangna, beitti mér fyrir auknum framlögum til Háskólans á Akureyri og til menntamála almennt. Talaði fyrir lengingu flugvallarins á Akureyri og beinu millilandaflugi og bættri aðstöðu fyrir ferðamenn á Egilsstöðum og Seyðisfirði sem og að bæta aðstöðu ferðaþjónustunnar á Norður- og Austurlandi. Umhverfismál, atvinnumál, menningarmál, beint lýðræði og byggðamál eru mér afar hugleikin.

akureyri_787439.jpgÉg er kvæntur Kristínu Þóru Kjartansdóttur félags- og sagnfræðingi og við eigum fjögur börn. Við fluttum aftur til Akureyrar árið 2001 eftir átta ára búsetu í Þýskalandi. Ég fæddist á Akureyri árið 1968, yngstur sjö systkina. Foreldrar mínir eru Aðalheiður Gunnarsdóttir húsmóðir og fyrrverandi verkakona og Hallur Sigurbjörnsson fyrrverandi skattstjóri. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1988 og vann sem leiðbeinandi og á leikskóla, í byggingarvinnu og einnig við Ríkisútvarpið á Akureyri og á Rás 2. Stundaði myndlistarnám við Myndlistarskólann á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám í myndlist í Þýskalandi.

marfa_787440.jpgÉg hef kennt við Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann á Akureyri og unnið við sýningarstjórn en fyrst og fremst starfað sjálfstætt sem myndlistamaður. Í starfi mínu hef ég öðlast víðtæka reynslu af félagsmálum, menntamálum og menningarmálum og kynnst fjölda fólks enda snýst myndlist mín að verulegu leiti um samskipti. Ég er formaður Myndlistarfélagsins og sit í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar (cia.is) og hef einnig unnið að uppbyggingu Verksmiðjunnar, menningarmiðstöðvar á Hjalteyri. Ég var formaður svæðisfélags Vg á Akureyri frá 2002 – 2004, kosningastjóri Vinstri grænna í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri 2006 og sit nú í stjórn Vg og er formaður kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis.

Frestur til að tilkynna um þátttöku í forvalinu er til 16. febrúar og nánari upplýsingar um framkvæmd forvalsins eru á www.vg.is


Hlynur Hallsson, 2509683379, Ásabyggð 2, 600 Akureyri, sími 6594744, hlynur(hjá)gmx.net


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.