Leita í fréttum mbl.is

Heilindi

bluelagoon.jpg

Ég er sannfærður um að þörf er á nýju siðferði í íslensk stjórnmál sem og viðskiptalíf og almennt í þjóðfélaginu. Ég vil gera orð Davíðs Stefánssonar frambjóðanda í forvali Vg í Reykjavík að mínum. Hann veitti mér góðfúslegt leyfi til að birta þessa yfirlýsingu hér.

Ég kem hreint og beint fram og hef þá einföldu trú að kærleikur, mannvirðing og heiðarleiki borgi sig á öllum sviðum lífsins – líka í stjórnmálum.

 

Ég mun ávallt kjósa samkvæmt eigin sannfæringu í öllum málum og styðja frumvörp annarra stjórnmálaflokka ef þau samræmast minni sannfæringu.

Ég mun meta aðra stjórnmálamenn eftir orðum þeirra og gjörðum, hvorki eftir flokksskírteini þeirra né stefnu þess flokks sem þeir tilheyra.

Ég mun, hvorki í kosningabaráttu innan flokksins né í kosningabaráttu við aðra flokka, beita óvönduðum meðulum.

Ég mun svara beinum spurningum sem ég get svarað og ekki reyna að tala mig í gegnum spurningar sem ég get ekki svarað.

Ég mun axla ábyrgð á eigin gjörðum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Stuðningskveðjur - það er ekki þess virði að taka þátt í pólítík án viðhorfs af þessum toga.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 19.2.2009 kl. 12:00

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og svo mælti hver Hlynur minn? Svo margir að bjóða sig fram.

Magnús Geir Guðmundsson, 19.2.2009 kl. 22:24

3 Smámynd: Sigurður Hrellir

Davíð er minn maður - ég vona að orð hans verði fleiri frambjóðendum umhugsunarefni.

Sigurður Hrellir, 19.2.2009 kl. 23:48

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Davíð Stefánsson mælir hér Magnús. Tengill á síðuna hans er hérna.

Það er rétt Ingólfur, þetta er eitthvað sem allir ættu að fara eftir.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 20.2.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.