Leita í fréttum mbl.is

Frá Feneyjum til Berlínar

eyfjord

Afsakið þetta langa blogghlé en það er einmitt tilkomið vegna langdvalar í Feneyjum og án netsambands! Sýningin hans Steingríms Eyfjörð er frábær og vonandi að sem flestir sem koma á tvíæringinn fari einnig á sýninguna hans þó að íslenski skálinn sé að þessu sinni ekki inni á Giardini heldur niður í bæ rétt hjá Rialto-brúnni. Hér eru upplýsingar um staðsetningu og þessháttar af síðu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar

bienaleNú er ég kominn í þetta fína netsamband hér í Berlín þar sem við verðum öll fram í byrjun ágúst og get því bloggað aftur af krafti! 


mbl.is Mikil aðsókn að íslenska skálanum á Feneyjartvíæringnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sæll frændi, já það hefði verið gaman að sjá þessa sýningu í íslenska skálanum. 

Hvenær fær maður svo að sjá sýningu frá þér?  

Marinó Már Marinósson, 11.6.2007 kl. 23:47

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Leyfi mér að samgleðjast þér að hafa komist á tvíæringinn. Þarf greinilega að fara að fylgjast með því hvað Steingrímur er að gera, mikið vatn runnið til sjávar síðan hann lánaði mér bækurnar sínar til að koma mér í gegnum inntökuprófið í Mynd- og hand (það tókst) en hann hefur haldið sig við efnið og uppsker núna eins og hann sáir. Óskaplega gaman að fá smá smjörþef gegnum sjónvarpið og heyra af þessum fantagóðu viðtökum. Svo fæ ég eflaust að spyrja vin konar míns útúr, sem skellti sér á tvíæringinn að þessu sinni. En takk fyrir pistilinn og linkana. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2007 kl. 00:36

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kær kvedja til ykkar allra, og takk fyrir sidast, thid erud bara yndisleg!

ljós

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson

Myndlistarmaður, umhverfisverndarsinni og sennilega margt fleira. Nánari upplýsingar hér.

Síður

Tónlistarspilari

Air - Ce Matin La
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.