Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
29.6.2007 | 22:24
Sýning í Póllandi og minnismerki um gyðinga sem nasistar myrtu
Við fórum með vinum okkar í dag að skoða minnismerki um gyðinga sem nasistar myrtu í Evrópu á valdatíma sínum. Það var áhrifaríkt og dapurlegt en einnig mikilvægt að þetta safn er loksins komið upp hér í Berlín. Við komum einnig við í þinghúsinu og skoðuðum það vandlega. Maður drífur loksins í því að skoða eitthvað þegar vinir koma í heimsókn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.6.2007 | 21:33
Til varnar fórnarlömbum pyndinga
Á morgun laugardag stendur hópur ungra Amnesty-félaga á Íslandi fyrir uppákomu á Austurvelli. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að mæta. Þeir sem ekki komast geta skrifað undir undirskriftalista með hvatningu til íslenskra stjórnvalda að fullgilda valfrjálsa bókun við Samning Sþ gegn pyndingum með því að senda tölvupóst með upplýsingum um nafn, kennitölu og aðsetur á netfangið ie(hjá)amnesty.is
Hér er tilkymmingin fra Amnesty:
Til varnar fórnarlömbum pyndinga
Amnesty International á Austurvelli laugardaginn 30. júní 13-17
Laugardaginn 30. júní kl. 13-17 stendur hópur ungra Amnesty-félaga fyrir uppákomu á Austurvelli þar sem vakin verður athygli á þeim pyndingaraðferðum sem eiga sér stað í stríðinu gegn hryðjuverkum en teljast, samkvæmt endurskilgreiningum ýmissa ríkja á hugtakinu, yfirheyrsla. Gestir og gangandi geta kynnt sér aðferðirnar og þann skaða sem þær valda og gripið til aðgerða gegn pyndingum og illri meðferð.
Arnar Grant einkaþjálfari, Ásgeir Kolbeinsson sjónvarpsmaður og Lóa Fatumata Touray fyrirsæta hafa gengið til liðs við hópinn til að vekja athygli á pyndingum og hlutskipti þolenda. Þau sitja fyrir í sárum á plakötum sem nú prýða strætóskýli víða um bæinn.
Félagar eru hvattir til að mæta, kynna sér málið og grípa til aðgerða til varnar fórnarlömbum pyndinga.
Þann 26. júní voru liðin 20 ár frá gildistöku Samnings Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. 144 ríki hafa fullgilt hann og önnur 8 hafa skrifað undir hann. Einnig hafa 56 ríki fullgilt valfrjálsa bókun við samninginn sem heimilar eftirlitsfólki að heimsækja fangelsi og aðrar varðhaldsstofnanir án fyrirvara.
Þrátt fyrir það sýna ársskýrslur Amnesty International, ár eftir ár, að í meirihluta ríkja heims er fólk pyndað eða látið sæta illri meðferð. Ársskýrslan árið 2007 fjallaði um 153 ríki og af þeim höfðu minnst 102 beitt pyndingum eða annars konar illri meðferð.
Ein þeirra áskorana sem mannréttindasamtök standa nú frammi fyrir eru tilraunir sumra ríkja til að grafa undan skilyrðislausu banni gegn pyndingum og annarri illri meðferð, t.d. með þeirri rökfærslu að slík meðferð sé nauðsynlegt vopn í stríðinu gegn hryðjuverkum. Þessar staðhæfingar hafa mætt mikilli andstöðu en þá hafa ríkisstjórnir gripið til orðaleikja og reynt að túlka og skilgreina hugtök upp á nýtt, t.d. með því að;
- halda því fram að ákveðnar yfirheyrsluaðferðir eða refsingar teljist ekki til pyndinga
-halda því fram að bannið við grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð sé ekki eins afdráttarlaust og bannið gegn pyndingum og því megi ríki láta fanga sæta illri meðferð í ákveðnum tilfellum
- framselja pyndingar til annarra ríkja og staðhæfa að þau ein beri ábyrgðina
-nota t.d. diplómatískar tryggingar til að sniðganga skuldbindingar til að framselja ekki fanga til landa þar sem hætta er á að þeir verði pyndaðir
Austurvöllur á morgun og undirskriftalisti gegn pyndingum
Við minnum á uppákomu sem hópur ungra Amnesty-félaga stendur fyrir á morgun laugardaginn 30. júní á Austurvelli. Þar verður vakin athygli á þeim pyndingaraðferðum sem eiga sér stað í stríðinu gegn hryðjuverkum en teljast, samkvæmt endurskilgreiningum ýmissa ríkja á hugtakinu, yfirheyrsla. Gestir og gangandi geta kynnt sér aðferðirnar og þann skaða sem þær valda og gripið til aðgerða gegn pyndingum og illri meðferð.
Meðal aðgerða verður undirskriftalisti með hvatningu til íslenskra stjórnvalda að fullgilda valfrjálsa bókun við Samning Sþ gegn pyndingum (sjá fylgibréf hér að neðan). Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á Austurvöll en vilja bæta nafni sínu við listann geta sent tölvupóst með upplýsingum um nafn, kennitölu og aðsetur á netfangið ie(hjá)amnesty.is.
Háttvirti utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Þann 26. júní voru 20 ár liðin frá gildistöku Samnings Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. 144 ríki hafa fullgilt samninginn og önnur 8 hafa skrifað undir hann. Einnig hafa 56 ríki fullgilt valfrjálsa bókun við samninginn sem heimilar eftirlitsfólki að heimsækja fangelsi og aðrar varðhaldsstofnanir án fyrirvara.
Ísland hefur undirritað valfrjálsu bókunina en ekki fullgilt hana. Í tilefni af alþjóðlegum degi í þágu fórnarlamba pyndinga 26. júní sl. skorum við undirrituð á íslensk stjórnvöld að fullgilda valfrjálsa bókun við Samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Einnig hvetjum við þig, háttvirti utanríkisráðherra, að beita þér á alþjóðvettvangi fyrir því að önnur ríki fullgildi samninginn og valfrjálsa bókun við hann.
Viðingarfyllst
Hlynur Hallsson
28.6.2007 | 13:01
Sonic Youth tónleikar í gær
Við Hugi skelltum okkur á tónleika með Sonic Youth í Columbiahalle í gærkvöldi. Þetta voru frábærir tónleikar. Þau spiluðu nýju plötuna "Daydream Nation" eins og hún lagði sig og töku svo nokkur aukalög í lokin. Þvílíkur hávaði og stuð. Ekki beint verið að hlífa gíturunum. Ég sá Sonic Youth á tónleikum í New York fyrir tæpum 15 árum í skólaferðalagi MHÍ. Það var frábært og gott að rifja upp fjörið í gærkvöldi. Áhorfendur gáfust ekki upp á að klappa þau upp og seinna uppklappið stóð í hálftíma. Það margborgaði sig.
Ég efast um að "Daydream Nation" fari á íslenska vinsældarlistann enda ekki beint um vinsældarpopp að ræða, en samt aldrei að vita. Þau verða að túra út árið og spila í Marfa, Texas þann 6. október 2007. Ég reikna ekki með að Bush mæti þó að það sé ekki svo langt fyrir hann að fara af búgarðinum sínum.
Sprengjuregn og dansandi Bítlar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.6.2007 | 10:35
Hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna
Samtökin Saving Iceland boða til áhugaverðrar ráðstefnu helgina 7. og 8. júlí 2007 á Hótel Hlíð í Ölfusi. Hér eru upplýsingar fyrir þá sem vilja taka þátt í þessari ráðstefnu þar sem fulltrúar samtaka frá Trinidad og Tóbagó, Indlandi, Brasilíu, Canada, Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum mæta:
Ráðstefna Saving Iceland" 2007
Hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna
Helgina 7. og 8. júlí 2007
Fyrir hönd Saving Iceland, viljum við bjóða ykkur velkomin á ráðstefnuna, auk þess sem við viljum fá ykkur til þess að taka þátt í pallborðsumræðum. Innlegg ykkar væri okkur mikils virði og er nauðsynlegt á tíma stóriðjuvæðingar á kostnað ómetanlegra íslenskra náttúruundra. Það væri okkur ánægja ef þið sæjuð ykkur fært að taka þátt í þessu verkefni: fyrstu ráðstefnunni á Íslandi sem gefur sanna hnattræna sýn yfir nútíma borgaralega umhverfisbaráttu og ástæðurnar sem liggja henni að baki.
Ráðstefnan hefst kl. 11 á laugardaginn og fer fram á Hótel Hlíð, Ölfusi (6 km. frá Hveragerði á leiðinni þaðan til Þorlákshafnar.) Hún er einn fjölda atburða sem "Saving Iceland" hafa staðið að, og munu standa að á árinu, í baráttunni gegn eyðileggingu ósnortnar íslenskrar náttúru.
Nú hafa fulltrúar samtaka frá Trinidad og Tóbagó, Indlandi, Brasilíu, Canada, Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum tekið boði Saving Iceland um að taka þátt í ráðstefnunni. Hér gefst því einstakt tækifæri til að hitta erlent fólk sem stendur í svipaðri baráttu og við sjálf gegn stíflum og meira að segja sömu stórfyrirtækjum. Fólki úr íslenskum umhverfissamtökunum hefur verið boðið á ráðstefnuna og gefst okkur þar gott tækifæri til að bera saman bækur okkar við erlenda aðila sem standa í baráttunni gegn álvæðingunni.
Saving Iceland eru ekki meðlimasamtök, heldur hópur einstaklinga alls staðar að úr heiminum, sem eru staðráðnir í að standa gegn því að íslensk náttúra sé eyðilögð fyrir hagsmuni stóriðjufyrirtækja. Rétt eins og stórfyrirtækin sjálf eru alþjóðleg er baráttan gegn þeim einnig alþjóðleg.
Við byggjum okkar starfssemi á jafnræði þar sem enginn er yfir aðra hafinn í ákvarðanatöku og ákvarðanir eru teknar með upplýstu samþykki (consensus decision). Við erum samtaka um að gefa aldrei eftir grundvallarkröfur okkar. Engar málamiðlanir þegar kemur að því að vernda náttúruna.
Ef þið hafið einhverjar spurningar, hikið þá ekki við að hafa samband. Við værum þakklát ef þið létuð okkur vita sem fyrst hvort þið hafið áhuga á því að koma og taka þátt.
Meðfylgjandi er listi yfir helstu umfjöllunarefni erinda og umræðna á ráðstefnunni.
Drög að helstu umfjöllunarefnum erinda og umræðna
* Íslandi ógnað/
Kynning á þeirri ógn sem steðjar að Íslandi vegna stóriðju.
* Stórar stíflur, áliðnaðurinn og loftslagsbreytingar/
Ekki aðeins álframleiðsla loftslagsáhrif metans og perflúorkolefna.
* Áhrif stórstíflna á vistkerfi vatnsfalla/
Vistfræði og líffræðileg fjölbreytni áhrif stórra stíflna.
* Saga borgaralegrar óhlýðni og beinna aðgerða/
Frá fortíð til framtíðar Hvernig beinar aðgerðir geta breytt gangi sögunnar
* Græn eða grá framtíð?/
Mismunandi framtíðarsýn
* Orkuöflun til stóriðju - Frá Kyoto til Peak Oil/
Stóriðja í leit að hernaðarlega hentugri staðsetningu orkuvera
* Barátta í Trinidad/
Barátta fólks gegn nýjum bræðslum ALCOA og Alutrint í Trinidad & Tobago.
* Narmada Bachao Andolan/
Best þekkta alþýðuhreyfingin á Indlandi,sem berst fyrir réttindum adivasi-ættbálksins sem hrakinn hefur verið frá heimkynnum sínum vegna stórstíflu.
* Baráttan í Kashipur/
Barátta gegn yfirborðsnámu ALCAN í Kashipur, norðaustur Indlandi.
* Stíflur á Amazonsvæðinu/
Ál ógnar regskógunum.
* Rannsókn á áliðnaðinum/
Kynntir helstu aðilar til leiks og greint frá nýjustu þróun í áliðnaði
* Stærsta ósnortna víðernið í Evrópu/
Landslag og lífríki sem ógnað er á Íslandi
* Breytingar á erfðavísum á Íslandi/
Víðara sjónarhorn á erfðabreytt bygg á Íslandi.
* Vaxandi þungi gegn risavélinni/
Að bera saman bækur: alþýðuhreyfingar gegn stóriðju, stórstíflum og hnattvæðingu.
Eftir þriggja ára baráttu gegn stórstíflum og stóriðju mun herferð Saving Iceland" tengjast baráttunni um heim allan. Um víða veröld hafa stóriðja og stórstífluframkvæmdir hrakið á brott fólk í milljónatali, að mestu án þess að bætur hafi fengist fyrir þann skaða sem hefur orðið. Þessi mannvirki hafa eyðilagt vistkerfi á sjó og landi og eytt dýralífi. Þau hafa mengað andrúmsloft okkar og vötn og breytt loftslagi á óbætanlegan hátt í nafni framfara. Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, Jawaharlal Nehru, orðaði það svo: Ef þú þarft að þjást, ættirðu að gera það í þágu lands þíns", í ræðu yfir þorpsbúum sem átti að hrekja frá heimilum sínum vegna Hirakud-stíflunnar árið 1948. Ríkisstjórnir Íslands og Indlands telja risaraforkuver enn vera tákn um hugvitsemi, framfarir og þjóðarstolt. Í Trinidad og Tobago, sem og á Íslandi leitar áliðnaðurinn að óþrjótandi orkulindum á tímum vaxandi óvissu í orkumálum.
Samt hefur sagan alltaf sýnt undirstrauma sem ekki eru í samræmi við hin ríkjandi framfaraviðhorf. Fjöldi fólks berst gegn því að vera fórnað í þágu lands síns eða efnahagsins og margir hafa barist gegn því að landi þeirra og óbyggðum sé fórnað.
Ráðstefna Saving Iceland" 2007 mun auka og dýpka þekkingu þína á baráttunni gegn stóriðjunni, í rúmi og tíma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.6.2007 | 13:43
Stórtónleikar til verndunar náttúru Íslands og gegn stóriðju
STÓRTÓNLEIKAR Á NASA TIL VERNDUNAR NÁTTÚRU ÍSLANDS OG GEGN STÓRIÐJU, MÁNUDAGINN 2. JÚLÍ KL 20.00
Hljómsveitir og tónlistamenn sem fram koma eru meðal annarra:
Múm, Ólöf Arnalds, Bogomil Font og félagar, Magga Stína, Rúnar Júl, Ellen Eyþórs, Mr. Silla og Mongoose, Bloodgroup, Evil Madness, Skátar, Ljótu Hálfvitarnir, Retro Stefsson, Strakovsky Horo, Dj Árni Sveins.
Miðaverð er 2500,- og rennur allur ágóði til náttúruverndar. Miðar verða seldir við innganginn. Frjáls framlög eru einnig vel þegin. Allir listamennirnir gefa vinnu sína til stuðnings samtakana Saving Iceland og verndunar náttúru Íslands.
Þeir sem að tónleikunum standa að þessu sinni eru samtökin Saving Iceland, sem verða með mótmælabúðir í sumar þriðja árið í röð, og standa einnig fyrir ráðstefnunni Hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna, um helgina 7. - 8. júlí að Hótel Hlíð, Króki, Ölfusi, þar sem fjöldi fyrirlesara mun flytja erindi og innlendir og erlendir náttúruverndarsinnar munu bera saman bækur sínar.
Náttúruverndarsinnar og aðrir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta og sýna góðu málefni stuðning í sumri og sól.
Látið ekki þessa stórtónleika fram hjá ykkur fara.
Eins og fyrr segir hefjast tónleikarnir kl 20.00, mánudaginn 2. júlí. Húsið opnar kl 19.30.
BJÖRGUM ÍSLANDI FRÁ STÓRIÐJU!
Nánari upplýsingar hjá www.savingiceland.org, Sigurði Harðarsyni - 6637653 Jason Slade - 6902862
Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.6.2007 | 14:13
Fimm látnir við byggingu Kárahnjúkavirkjunar
Lést á leið í sjúkraflugið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.6.2007 | 10:06
Klámvæðing eða kynfræsla
Það er athyglisverð frétt á mbl.is um mikla fjölgun á fóstureyðingum meðal unglingsstúlkna í Svíþjóð. Fréttin er af fréttavef Dagens Nyheter um könnun sem gerð var við háskólann í Uppsala og þar kemur fram að breytt viðhorf til kynlífs meðal unglinga sé um að kenna að fóstureyðingar eru flestar í Svíþjóð af öllum Norðurlöndunum og að aukningin sé mest meðal unglingsstúlkna. Ennfremur segir á mbl.is "Þar er klámvæðingu meðal annars kennt um og tekið fram að unglingar sæki kunnáttu sína nú í auknum mæli í klámmyndir fremur en að fá fræðslu í skólunum og því skorti mjög á fræðslu um getnaðarvarnir, ábyrgð og tillit." Þetta er alvarlegt mál og ber að skoða einnig hér á landi. Það er ljóst að klámvæðingin í samfélaginu hefur víðtæk áhrif og það er okkar að finna leiðir til að sporna gegn henni. Þegar unglingar telja sig fá meiri "kynfræslu" úr klámmyndum en í kynfræðslu í skólanum. Einnig á Íslandi þarf að auka kynfræðslu í grunnskólum og hefja hana fyrr en nú er. Jafnréttisfræðsla og aukin kynfræsla er eitt af því sem leggja þarf meiri áherslu á. Fagna ber tillögunni sem Vinstri græn lögðu fram í borgarstjórn og fékkst samþykkt með öllum greiddum atkvæðum um að koma á jafnréttisfræðslu í skólum í Reykjavík. Það er fyrsta skrefið í rétta átt.
Hér eru svo tölulegar upplýsingar um fóstureyðingar á Noðrulöndunum af fréttavef Dagens Nyheter.
Og hér er greinin öll þar sem meðal annars segir: "Vår forskning gör klart att unga män tycker att de lär sig mycket om sex via pornografi, säger Tanja Tydén [barnmorska och professor vid Uppsala universitet]. För dem har pornografin övertagit skolans roll. Ansvar, hänsyn och kondomanvändning lyser dock med sin frånvaro i porrfilmerna de hämtar sin kunskap ifrån."
Mikil fjölgum meðal unglingsstúlkna sem fara í fóstureyðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2007 | 16:09
Flokksleiðtogi eða formaður
Titillinn "aðstoðarflokkleiðtogi" er einhver sá óþjálasti sem ég hef heyrt lengi og eru þó til margir óþjálir titlar innan embættismannakerfisins (einnig óþjált) og í stjórnmálunum. En af hverju kallar mbl.is Gordon Brown nýkosinn formann breska verkamannaflokksins "flokksleiðtoga" og Harriet Harman "aðstoðarflokkleiðtoga" en ekki bara varaformann? Nú getur vel verið að titlarnir í Bretlandi heiti einhverjum furðulegum nöfnum og að það sé ástæðan fyrir þessari þýðingu. Yfirleitt er talað um "leader" sem vissulega er beint þýtt sem leiðtogi en getur auðvitað einnig verið bara formaður.
En burtséð frá titlatogi þá segir eyjan.is frá því að Björgvin G. viðskiptaráðherra sé gestur á flokksþingi Verkamannaflokksins og þar sé mikill baráttuandi og menn gera sér vonir um auknar vinsældir eftir að hafa loksins losnað við Tony B.liar. Til hamingju Harriet Herman með varaformennskuna og Gordon Brown með formennskuna. Hér eru fréttir af kosningunum á Guardian:
Harman elected Labour deputy leader
Og hér er fréttaskýring bloggfélaga míns Stefáns Friðriks
Gordon Brown orðinn flokksleiðtogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.6.2007 | 08:24
500.000 ný bílnúmer ættu að duga í nokkur ár
Fjöldi fastanúmera á bílum uppurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.6.2007 | 09:01
Flughræddur hvítur karlmaður rífur sæti í flugvél í BNA og er snúinn niður af löggu á frívakt
Hér kemur nánar fréttaskýring af þessum atburð sem átti sér stað um borð í vél US Airways á leið frá Phoenix til Seattle þann 12. júní síðastliðinn því öll kurl eru ekki komin til grafar.
Það er eitthvað sem segir manni að gúrkutíð sé upphafin. Mbl.is er farið að vitna í blaðið "Tri-City Herald"! Og það með frétt sem átti sér stað 12. júní eða fyrir 10 dögum! Þetta er hinsvegar svo skemmtilegt að full ástæða er til að kryfja málið nánar:
"Lögreglumaður á frívakt kom í veg fyrir að óður farþegi opnaði neyðarútgang flugvélar í áætlunarflugi í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum."
Semsagt alltaf gott að hafa sem flestar löggur á frívakt í flugvélum. Þetta er eins og byrjun á "góðri" bíómynd: Þreytta löggan á leið heim til konu og barna reddar málunum, réttur maður á réttum stað.
"Eftir lendingu tók lögregla við manninum og var farið með hann á sjúkrahús til athugunar."
Hér vantar hver sjúkdómsgreiningin var: flughræðsla, fullur maður eða bara brjálaður farþegi eða þá frjálshyggjumaður sem ekki lætur fosjárhyggjuleiðindapúka segja sér hvenær hann eigi að spenna belti og hvenær ekki!
"Lögreglumaðurinn verður heiðraður fyrir snör viðbrögð."
Þó það nú væri enda maðurinn ekki einu sinni við skyldustörf heldur á frívakt. Fálkaorðu handa löggunni duglegu.
"Atvikið átti sér stað um borð í vél US Airways á leið frá Phoenix til Seattle 12. júní, að því er blaðið Tri-City Herald greinir frá."
Þetta er mikilvægt, best að forðast þessa flugleið í framtíðinni, eða voru ef til vill einhverjir íslendingar um borð í vélinni eða ætluðu að taka þetta flug en misstu af því? Aðeins farið að slá í 9 daga gamla frétt en samt góð fyrir því og blaðið Tri-City Herald örugglega gott blað, fyrst með fréttirnar.
"Þegar hafin var lækkun til lendingar í Seattle neitaði farþeginn að festa öryggisbeltið og fór að rífa sætið í sundur."
Hérna koma mikilvægar upplýsingar fram, allt annað mál hefði verið ef þetta hefði verið í flugtaki. En af hverju fór hann að rífa sætið í sundur? Ætlaði hann að setja það saman aftur? Var sætið óþægilegt? Var þetta leðursæti eða var það ef til vill ástæðan fyrir því að maðurinn byrjaði að rífa það í sundur að þetta var ekki leðursæti eins og hann vildi? Kannski er maðurinn bólstrari?
"Flugliðar reyndu að fá hann til að setjast og festa beltið, en þá teygði hann sig í handfangið á neyðarútganginum, sagði lögreglumaðurinn, sem skarst í leikinn, hafði óða farþegan undir og fór með hann aftur í vélina þar sem tókst að koma á hann böndum."
Sat maðurinn semsagt við neyðarútgang? Og hvar sat löggan? Við hliðina á manninum? Af hverju fór löggan með manninn afturí? Er ekki líka neyðarútgangur þar?
Ég krefst þess að mogginn fari í málið og komst að öllu því mikilvæga í þessu máli svo við lesendur mbl.is sitjum ekki uppi með helling af óleystum ráðgátum.
Óður farþegi reyndi að opna neyðarútgang á flugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Tenglar
Myndlist
MYNDLIST
- heimasíðan mín
- galerie kuckei+kuckei
- myndlistarfélagið
- veggverk
- nýlistasafnið
- listasafnið á akureyri
- listasafn reykjavikur
- listasafn íslands
- safn
- umm
- icelandic art center
- sím
- listaháskólinn
- myndlistaskólinn á ak
Umhverfisvernd
- náttúruverndarsamtökin
- framtíðarlandið
- landvernd
- náttúran.is
- sól á suðurnesjum
- saving iceland
- greenpeace
Íslenskir fjölmiðlar
- akureyri.net
- vikudagur
- N4
- landpósturinn
- austurglugginn
- skarpur
- bæjarins besta
- gúttó
- kaffið.is
- mbl.is
- visir.is
- dv.is
- ríkisútvarpið
- bændablaðið
- fréttatiminn
- jonas.is
Erlendir fjölmiðlar
- berliner zeitung
- spiegel
- süddeutsche zeitung
- die zeit
- die tageszeitung
- the new york times
- aftenposten
- svenska dagbladet
- politiken
- information
- guardian
- bbc
Skoðaðu þetta
Heimasíðurnar mínar
Vinstri græn
Vinstri græn
- davíð stefánsson
- stefán pálsson
- kristín halldórsdóttir
- sóley tómasdóttir
- kristín tómasdóttir
- steinunn þóra árnad.
- jóhann björnsson
- álfheiður ingadóttir
- paul f. nikolov
- mireya samper
- g. lilja grétarsdóttir
- gestur svavarsson
- auður lilja erlingsdóttir
- andrea ólafsdóttir
- björn valur gíslason
- katrín jakobsdóttir
- bjarkey gunnarsdóttir
- silja bára ómarsdóttir
- gerast félagi í vg
- árni þór sigurðsson
- svandís svavarsdóttir
- kolbrún halldórsdóttir
- ögmundur jónasson
- vg.is
- uvg
Nýjustu færslur
- osloBIENNALEN First Edition 20192024
- ALLTSAMAN DAS GANZE ALL OF IT
- THE FOUNTAIN MÉMOIRE
- HRINA / BOUT í Listasafni Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
- BLATT BLAÐ númer 62 er komið út
- STINGUR Í AUGUN í Verksmiðjunni á Hjalteyri
- Þetta er það - Das ist es - This is it
- Gullkistan: 20 ára
- 100 Kápur á Frakkastíg
- MENN / MEN í Hafnarborg 28. mars - 10. maí 2015
- COLLABORATION_7 Munich - Mostar - Belgrade
- Hlynur Hallsson opnar í Geimdósinni
- ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU Á SIGLUFIRÐI OPNAR 8. MARS 2014
- Fresh Winds in Garður
- BLATT BLAÐ #61 er komið út
Síður
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Eldri færslur
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 379808
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Aldís Gunnarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Rúnar Ingason
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Lilja
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Anna Þorbjörg Jónasdóttir
- Ari Matthíasson
- Arinbjörn Kúld
- arnar valgeirsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Auðun Gíslason
- Árni Árnason
- Árni "Gamli" Einarsson
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ása Richardsdóttir
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Ásta Möller
- Ásta Rut Björnsdóttir og Snorri Kristjánsson
- Ásta Svavarsdóttir
- Baldur Gautur Baldursson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Barði Bárðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Bergþóra Jónsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Bleika Eldingin
- BookIceland
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Davíð
- Dofri Hermannsson
- DÓNAS
- Edda Agnarsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Elfar Logi Hannesson
- Elín Sigurðardóttir
- Ellý Ármannsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- erlahlyns.blogspot.com
- ESB og almannahagur
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Forvitna blaðakonan
- FreedomFries
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Gammur drils
- Gaukur Úlfarsson
- Geiri glaði
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Tryggvason
- Goggi
- gudni.is
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Björnsson
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- halkatla
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Kristinn Haraldsson
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Bjarnason
- Haraldur Davíðsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Haukur Vilhjálmsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hildur Sif Kristborgardóttir
- Hilmar Björgvinsson
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hjalti Már Björnsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlédís
- Hlynur Sigurðsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hreiðar Eiríksson
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Ibba Sig.
- Indriði Haukur Þorláksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Ingimar Björn Davíðsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- íd
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Björnsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jónas Viðar
- Jón Bjarnason
- Jón Hafsteinn Ragnarsson
- Jón Hrói Finnsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Sigurbergsdóttir
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Kolbrún Kolbeinsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristján Pétursson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Linda Rós Jóhannsdóttir
- Listasumar á Akureyri
- LKS - hvunndagshetja
- Logi Már Einarsson
- Magnús Bergsson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Paul Nikolov
- Páll Helgi Hannesson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Thayer
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Pétur Björgvin
- Pétur Þorleifsson
- Pollurinn
- Ragnar Bjarnason
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Ransu
- Rauður vettvangur
- Róbert Björnsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Dögg
- SeeingRed
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigrún Dóra
- Sigtryggur Magnason
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Hólm Gunnarsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón M. Egilsson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sól á Suðurnesjum
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Steindór Grétar Jónsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Stjórnmál
- Svansson
- Svanur Jóhannesson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- SVB
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sverrir Þorleifsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Már Sævarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sölvi Breiðfjörð
- Thelma Ásdísardóttir
- Theódór Norðkvist
- Tinna Eik Rakelardóttir
- Tíðarandinn.is
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- TómasHa
- Trúnó
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tryggvi H.
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Úrsúla Jünemann
- Valgeir Bjarnason
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- Viðar Eggertsson
- Vika símenntunar
- Vilberg Helgason
- Vinir Tíbets
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórbergur Torfason
- Þórdís tinna
- Þór Gíslason
- Þór Jóhannesson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?